Víkurfréttir - 30.09.2004, Page 23
Pistlar úrPiilsinuin
> Rótgróin snyrtistofa við Sjávargötuna í Njarðvík:
Snyrtistofa Huldu 20 ára
Snyrtistofa Huldu fagnar
um þcssar mundir þcim
tímamótum aö snyrtisto-
fan hefur starfað í 20 ár.
Eigandinn, Hulda Erla
Pétursdóttir snyrtifræðingur,
hefur rekið snyrtistofuna alla
tíð að Sjávargötu 14 í Njarðvík
þar sem hún býr. I fyrstu var
snyrtistofan starfrækt í einu
herbergi cn stækkaði ört og er
nú á heilli hæö sem var hönnuð
sérstaklega sem snyrtistofa af
arkitekt og er stofan mjög vel
tækjum búin. Fyrirtækið hefur
farið vaxandi í áranna rás og
er það þakkarvert og alls ekki
sjálfgefið í dag, að sögn Huldu.
Landslagið í þessari grein hefur
breyst mikið á síðastliðnum 20
árum og segir Hulda að mest hafi
breyst í kjölfar framfara í tækni
og aukins tækjakosts. „Það eru
auðvitað alltaf að koma fram
nýjungar sem gera manni kleyft
að ná mun betri árangri en hægt
er með höndinni einni saman”.
Hulda hefur ávallt verið fljót að
tileinka sér allar helstu nýjungar
bæði í tækjum og efnum og hefur
verið leiðandi á landsvísu i þeim
efnum. Frá árinu 1987 hefiir hún
sótt Heimsþing snyrtifræðinga og
undanfarin ár hefur hún einnig
átt sæti í stjórn félags íslenskra
snyrtifræðinga og hefur sá
vettvangur meðal annars gert
henni kleyft að fýlgjast enn betur
með straumum og stefnum í
greininni.
„Eg er mjög þakklát öllum þeim
viðskiptavinum sem hafa fylgt
mér í gegnum árin og haidið
tryggð við mig”, segir Hulda.
„Margir þeirra eru orðnir mjög
góðir vinir mínir og mér finnst
alltaf jafn gaman að taka á móti
þeim”. Nú eru starfandi með
mér tveir reyndir snyrtifræðingar
þær Kristín Jóna Hilmarsdóttir
og Halldóra Sólbjartsdóttir.
Hulda segist að lokum alls ekkert
vera komin með leið á starfinu
eftir árin 20. „Ég hef alltaf jafn
gaman af snyrtifræðinni og ef ég
mætti velja mér fag upp á nýtt þá
yrði það svo sannarlega þetta
fag” - það segir meira en mörg
orð.
Hvað er jóga?
Allir geta stundað jóga. Jógastellingar þjálfa hvem líkamshluta, teygja
og styrkja vöðva, liðbönd og liðamót, hrygg og stoðgrindina í heild.
Þær hafa ekki einungis áhrif á ytra borð líkamans, vöðva og húð,
heldur einnig líffæri, kirtia og taugakerfi, með öðrum orðum; áhrifa
þeirra gætir alls staðar.
Jógastellingar draga úr spennu, huglægri og Mkamlegri. Öndunaræf-
ingamar efla líkamsstarfsemi, era slakandi og hressandi og skíra hug-
ann. Námsmenn hafa m.a. fundið vel fyrir þessu þegar þeir era í námi
og stunda jafhframt jóga.
Læknisfræðirannsóknir staðfesta góð áhrif jógaiðkunar á líkamann
fyrir alla aldurshópa; Slökunin sem fylgir æfingunum lækkar blóð-
þrýstinginn, öndunaræfingamar og jógastöðumar hafa bætandi áhrif á
gigtarsjúkdóma, æðakölkun, síþreytu, astma og margs konar hjarta-
og æðasjúkdóma. Það er líka talið að iðkun jóga hægir á öldrun.
Púlsinn ævintýrahús í Sandgerði er með sérstakan jógasal þar sem
boðið er upp á margs konar jóga. Ef þú hefur einhveija reynslu afjóga
þá eru eftirfarandi tímar í boði; Hathajóga eru alhliða æfingar sem
henta langflestum. Hathajóga era grannæfingar sem allar aðrar út-
færslur hafa sprottið út frá. Kripalujóga er ein þeirra útfærslna en
þessir tímar henta fólki sem hefur ekki hreyft sig lengi eða langar lil
að fara hægt og mjúklega af stað. í kripalujóga er mikil áhersla lögð á
öndun. Kraftjógatímar henta þeim sem era í góðu formi og vilja hrað-
ari yfirferð æfinga. Boðið er upp á byijendajóga með reglulegu milli-
bili. Allir jógatímar innihalda öndunaræfingar og enda á slökun.
Hvemig væri að skella sér í jóga?
Draumaráðningar
Hvað era draumar? Dreymir þig mikið? Langar þig að skilja betur
draumana þína? Þá áttu erindi i Púlsinn ævintýrahús í Sandgerði
næstkomandi sunnudagskvöld. Fyrsta fræðslukvöld vetrarins hefst
einmitt þá, sunnudaginn 3. október, klukkan 20. Þar flytur Sigrún
Gunnarsdóttir læknamiðill, forvitnilegt erindi sem hún kallar
“Draumaráðningar - draumar eru andleg leiðsögn”. Hún fjallar um
drauma og hvemig við getum nýtt skilaboð þeirra í daglegu lífi.
Draumatákn verða útskýrð og draumar ráðnir á staðnum.
Húsið opnar klukkan 19:40. Miðaverð er kr. 1.000. Allir hjartanlega
velkomnir á meðan húsrúm leyfir.
TIL SÖLU RAÐHÚS
Klettás 1 til 9, Reykjanesbæ
4. herbergja, 152 m2, með bílskúr
Upplýsingar hjá fasteignasölum í Reykjanesbæ! Fasteignasölunni Ás s. 520 2600 og í síma 860 5400
Húsin eru seld á 3 byggingarstigum:
1. Fullkláruð að utan með frágenginni lóð
2. Tilbúin undir tréverk
3. Fullbúin
VfKURFRÉTTIR I 40. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 30. SEPTEMBER 2004 123