Víkurfréttir - 24.11.2005, Side 2
Suðurnes í sókn á aðalfundi Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum
1B50 ÍBÚÐIR í BYGGINGU
EFNIBÍÐUR
BIRTINGAR
Hlutfall auglýsinga
er hærra í þessu
tölublaði Víkurfrétta
en lesendur eiga að venjast.
Þetta skýrist af því að óvenju
mikið magn auglýsinga barst
á þeim tímapunkti að ekki
var hægt að fjölga síðum.
Þar af leiðandi hefur mikið
af efni þurft að víkja fyrir
auglýsingum.
Við sjáum samt fram á að
efnið fái sinn stað í næstu
viku, þegar myndarleg útgáfa
verður hjá Víkurfréttum.
Þá koma út hefðbundnar
Víkurfréttir á fimmtudegi og
síðan Jólahandbókin okkar á
föstudegi.
Ritstjórn.
Aþessu ári hafa verið eða
eru 1350 íbúðir í bygg-
ingu á Suðurnesjum.
Þær munu rúma allt að 3500
íbúa. Þetta kom fram á 28.
aðalfundi Sambands sveitarfé-
laga á Suðurnesjum. Fundur-
inn var haldinn í Fjölbrauta-
skóla Suðurnesja um síðustu
helgi.
Á fundinum fluttu sveitarstjórn-
armenn erindið Suðurnes í
sókn, þar sem uppbygging í
nútíð og nánustu framtíð var
kynnt. Auk þessara 1350 íbúða
sem eru í byggingu eru 3-4000
íbúðir á skipulagsstigi og verða
reistar fljótlega.
Miðað við sömu þróun í
íjölgun íbúa verða íbúar Suður-
nesja komnir yfir 20.000 strax
árið 2008.
I erindum sveitarstjórnar-
manna kom fram að vöxturinn
í öllum sveitarfélögum á Suð-
urnesjum er mikill og marg-
faldur miðað við landsmeðal-
tal. Landsmeðaltalið er 1% á
rneðan íbúum Suðurnesja
hefur fjölgað um 5% á þessu
ári.
Nú er verið að byggja 820
íbúðir í Reykjanesbæ, 130 í
Grindavík, 200 í Sandgerði og
100 í Garði og 100 í Vogum.
Lægra fasteignaverð og betri
samgöngur eru helstu ástæður
fólksfjölgunarinnar á Suður-
nesjum. Þar hefur tvöföldun
Reykjanesbrautar rnikið að
segja, en talsvert er um að fólk
kjósi að búa á Suðurnesjum en
sæki atvinnu til höfuðborgar-
svæðisins.
Fasteignaverð á Suðurnesjum
er 30-35% lægra á Suður-
nesjum en á höfuðborgarsvæð-
inu. Þá hefur þjónustua sveit-
arfélaganna allra verið aukin
og skólar og leikskólar eru vel
í stakk búnir að taka við fjölg-
uninni.
DAGDVÖL ALDRAÐRA
LAUSTSTARF
Fjölskyldu- og félagsþjónusta Reykjanesbæjar auglýsir laust starf
við Dagdvöl aldraðra. Um er að ræða 80% starf.
Dagdvöl aldraðra veitir öldruðum sem búa í heimahúsum þjónustu,
og er leitast við að viðhalda sjálfstæði einstaklingsins eins lengi
og kostur er með því að styrkja líkamlega og vitsmunalega hæfni
hans þannig að hann geti búið sem lengst heima
Dagdvölin er staðsett við Suðurgötu 12 í Reykjanesbæ og starfa
þar 6-8 starfsmenn.
Laun skv. kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga og viðkomandi
stéttarfélags. Nánari upplýsingar veitir Inga Lóa Guðmundsdóttir
forstöðumaður í síma 421 4669 milli kl. 10:00 til 14:00.
Umsóknir merktar ,,Dagdvöl" sendist starfsmannaþjónustu
Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12, 230 Reykjanesbæ, fyrir 28.
nóvember nk.
Starfsþróunarstjóri.
... reykjanesbaer.is
Málefni aldraðra til
umræðu I bæjarstjórn
Reykjanesbæjar
Umræður voru um að-
bún að aldr aðra í
Reykjanesbæ á fundi
bæjarstjórnar sl. þriðjudag.
Þar lagði Ólafur Thordersen,
fulltrúi Samfylkingar fram eft-
irfarandi bókun minnihlutans:
„Við undirritaðir bæjarfulltrúar
lýsum áhyggjum okkar yfir
þeim fjölda aldraðra sem nú eru
á biðlista eftir dvalarheimili og
hjúkrunarheimili. Samkvæmt
nýlegum tölum eru nú 25 á
biðlista eftir dvalarrými, þar af
16 í mjög brýnni þörf og 17 á
biðlista effir hjúkrunarrými og
þar af 15 í mjög brýnni þörf. A
sama tíma eru aðeins fá rúm á
D álmu sjúkrahússins í notkun
fyrir aldraða, þrátt fyrir að hún
hafi á sínum tíma verið byggð
til að mæta þörf íyrir hjúkxun-
arheimiii. Eftir að stjórnendur
Heilbrigðisstofnunarinnar
ákváðu að breyta notkun D-álm-
unnar gaf heilbrigðisráðherra
það loforð að sjúkir aldraðir
ættu þó forgang að D-álmu þar
til ný hjúkrunardeild tæki til
starfa.
Ólafur Thordersen, Jóhann
Geirdal, Guðbrandur Einars-
son, Sveindís Valdimarsdóttir,
Kjartan M. Kjartansson."
Fulltrúar minnihlutans sögðu
að meirihlutanum væri sjálfsagt
að bæta sínum nöfnum undir
bókunina til að þrýsta á heil-
brigðisráðherra til að bæta að-
stæður aldraðra á Suðurnesjum,
en þeir treystu sér ekki til þess
með þessu orðalagi.
Árni Sigfússon, bæjarstjóri,
sagði að enn væri unnið eftir
samkomulagi ráðherra og bæj-
aryfirvalda um að nýtt hjúkrun-
arheimili með 30 rúmum yrði
risið í bænum árið 2007. Heil-
brigðisráðherra sé að standa við
orð sín og ekki þurfi að bóka sér-
taka áskorun til hans þess vegna.
Hjúkrunarrýmum sé að fjölga á
Hlévangi og dagvistun HSS hafi
að miklu leyti létt á ákveðinni
þjónustuþörf í þeim efnum.
Kjartan Már Kjartansson, Fram-
sóknarflokki, sagði að bókunin
væri þörf áminning til ráðherra
til að sýna að fólk í Reykjanesbæ
væri ekki búið að gleyma loforð-
inu sem gefið var. Nauðsynlegt
væri að brýna menn til góðra
verka.
Væntanlegt hjúkrunarheimili
mun rísa í Njarðvík þar sem fót-
boltavöllurinn stendur nú.
ÚTSALA
VÍN Hússins afí{'**<íýrr
Áhöld, tæki og efni - Allt til heimavíngerða
Heron Bay wines
25-60% afslátur
8 og 16 Itr - Tilboð 3 fyrir 2
Valdarvöruráafslætti
Reykjavíkurvegi 64 - s: 533 3070 Opnunartími: Virka daga 10.00 -18.00 - Laugardaga 10.00 -15.00
2
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!