Víkurfréttir - 24.11.2005, Qupperneq 4
Steinþór fékk Lundann
IQÍsrval af do
Samhliða Lundakvöldi
Kiwanisklúbbsins Keilis
var ákveðið að árlega
yrði veittur gripur til einstak-
lings sem að mati nefndar
hefur látið gott af sér leiða og/
eða unnið óeigingjarnt starf í
þágu bæjarbúa og/eða bæjarfé-
lagsins Reykjanesbæjar. Lund-
inn 2005 var afhentur á Lunda-
kvöldi Keilis 4. nóvember s.l.
Lundinn var fyrst afhentur árið
2002 og þá hlutu hann þeir Vil-
hjálmur Þorleifsson og Óskar
ívarsson starfsmenn Áhalda-
húss Reykjanesbæjar sem höfðu
unnið í áratugi við að fegra bæ-
inn.
Árið 2003 hlaut Lundann
Ólafur Oddur Jónsson sóknar-
prestur í Keflavíkursókn sem í
mörg ár hefur haldið uppi um-
ræðum og fræðslu gegn sjálfs-
vígum.
Tómas Knútsson hlaut Lundann
árið 2004, en Tómas setti á fót
Bláa herinn sem hefur unnið öt-
ullega við að hreinsa strandlengj-
una og þá hefur hann stjórnað
Sportköfunarskóla íslands.
Verðlaunagripurinn er upp-
stoppaður Lundi á steini ásamt
verðlaunaplötu og skjali. Nefnd-
inni, sem í sitja, Ragnar örn Pét-
ursson, Ævar Guðmundsson og
Halldór Guðmundsson, bárust
fjölmargar tillögur um einstak-
linga sem allir voru vel að því
að komnir að fá þessi verðlaun
í ár. Nefndin var sammála um
að Lundann 2005 skyldi hljóta
Steinþór Jónsson hótelstjóri og
bæjarfulltrúi. Steinþór hefur
látið margt gott af sér leiða og
unnið óeigingjarnt starf fyrir
bæjarfélagið. Steinþór var upp-
hafsmaður að lýsingu Bergsins
og síðan hátíðinni Ljósanótt
sem fylgdi í kjölfarið. Ljósanótt
í Reykjanesbæ er ein af stærri
og vinsælustu menningarhá-
tíðum sem haldnar eru hér á
landi. Öll þau ár sem Ljósanótt
hefur verið haldin hefur Stein-
þór verið formaður undirbún-
ingsnefndar og sú vinna hans
hefur verið í sjálfboðamennsku.
Steinþór er ásamt fleirum að-
alhvatamaður að tvöföldun
Reykjanesbrautar.
Um aksturslag á Reykjanesbraut
Lesandi hafði samband við Víkurfréttir og
sagði frá áhyggjum sínum af aksturslagi
á Reykjanesbraut.
Állnokkuð hefur verið um að bílar sem koma út
á Brautina frá Njarðarbraut taki óþarfa áhættu
við að skótast ffam fyrir stórar vöruflutningarbif-
reiðar sem koma niður brekkuna frá Grænás. Er
sem almennir vegfarendur geri sér ekki nægilega
grein fyrir því að fulllestaðar vörubifreiðar, t.d.
sementsbílar, geta vegið allt að 49 tonnum og er
þeim ekki hægt um vik að hægja ferð snögglega.
Þá vildi viðkomandi einnig koma þeim skila-
boðum áleiðis til þeirra sem aka einfalda hluta
Brautarinnar að vörubifreiðum er ekki óhætt
að víkja út á vegaröxl til að hleypa framúr. Það
getur haft í för með sér alvarleg slys þar sem axl-
irnar eru ekki gerðar til að bera slíkan þunga.
Að lokum má rifja upp dæmi um að keyrt hafi
verið á bíla sem eru kyrrstæðir í vegakanti, með
alvarlegum afleiðingum, þannig að ekki er van-
þörf á að brýna fýrir ökumönnum að sýna sér-
staka aðgát þegar farið er út á axlir.
Kiwanisklúbburinn Keilir afhendir lundann í fjórða sinn:
4
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!