Víkurfréttir - 24.11.2005, Side 10
VIKURFRÉTTIR VOGAR
Nýbygging við
skólann og íbúum
fjölgar hratt
Nú eru um 100 íbúðir í byggingu í bænum og eru þær
nær allar þegar seldar og segir Jón að líklega muni
bæjaryfirvöld leitast eftir því að fá hreppinn viður-
kenndan sem bæ um næstu áramót eða þar um bil.
"W" ón Gunnarsson, oddviti
I Vatnsleysustrandarhrepps,
M telur að íbúum bæjarins
muni fjölga um 30 til 40 pró-
sent á næstu 12 mánuðum, úr
um 1000 í 1300-1400. Þetta
kom fram í viðtali sem Víkur-
fréttir áttu við hann við vígslu
glæsilegrar viðbyggingar við
Stóru-Vogaskóla í síðustu
viku.
Nú eru um 100 íbúðir í bygg-
ingu í bænum og eru þær nær
allar þegar seldar og segir Jón að
líklega muni bæjaryfirvöld leit-
ast eftir því að fá hreppinn við-
urkenndan sem bæ um næstu
áramót eða þar um bil.
Segja má að vígslan sé talandi
dæmi um hinn mikla uppgang
sem hefur verið í bæjarfélaginu
allt frá því að átakinu „Vogar
færast í vöxt” var hrundið
af stokkunum fyrir nokkrum
árum. Fjölgunin hefur verið
einstaklega hröð og mest meðal
barnafólks en hlutfall grunn-
skólabarna í hreppnum er um-
talsvert hærra en landsmeðaltal.
Nú eru rúmlega 200 nemendur
í Stóru-Vogaskóla.
Ekki þarf að fjölyrða um það
hversu mikil bylting aðstaðan
í viðbyggingunni nýju er, en
hún er um 1300 m2 og eru þar
m.a. 7 nýjar kennslustofur, full-
komin raungreinastofa og stór
og mikill salur með mötuneyti,
en salurinn mun héðan í frá
einnig gegna hlutverki veislu-,
ráðstefnu- og fundasals.
Skólabyggingin er í eigu Eign-
arhaldsfélagsins Fasteignar hf.
sem bar kostnað af framkvæmd-
unum, en kostnaður við við-
bygginguna er 248 milljónir.
KS verktakar sáu um verkið sem
gekk afar vel, en starfsemi í skól-
anum hófst 9 mánuðum eftir að
framkvæmdir hófust.
Eftir athöfn í nýja salnum þar
sem ýmsir kvöddu sér hljóðs
við þetta skemmtilega tækifæri,
var boðið upp á köku og léttar
veitingar í boði Fasteignar hf.
STAFRÆN FRAMKÖLLUN
Framköllum myndirnar þínar samdægurs.
Aðeins kr. 29,- myndin út nóvember
miðað við 57 mynd o.fl.
hljóiftva{
Hafnargata 28 - Keflavík - s: 421 4933 & 4213933 - www.hljomval.is
Framköllum myndir afstafrænum kortum og diskum.
Lagfærum gamlar myndir.
15% afsláttur
aföllum jólakortum útnóvember
Persónuleg jólakort
Sparið tíma, peninga, pennan
og verið persónuleg.
Einstök börn fengu 171 þus-
und krónur í Reykjanesbæ
Islandstúr írafárs og ís-
landsbanka til styrktar
einstökum börnum hefur
gengið fábærlega, en hann
hófst í síðustu viku og í gær
spilaði írafár í Stapanum í
Reykjanesbæ. Fullt hús hefur
verið á öllum stöðum hingað
til og er söfnunarfé komið á
aðra milljón króna. Þannig
söfnuðust 171 þúsund krónur
í Reykjanesbæ í gær.
„Þetta hefur gengið allveg rosa-
lega vel og okkur þykir mjög
vænt um hvað fólk er duglegt
að mæta og styrkja þetta góða
málefni” segir Birgitta Haukdal
söngkona Irafárs. “Rútuferðin
er búin að vera mjög skrautleg.
Við vorum föst á Möðrudalsör-
æfum í nokkra klukkutíma því
að bremsurnar frusu fastar og
tók því ferðin til Húsavíkur 14
tíma”. Annars hefur allt gengið
mjög vel og við hæstánægð með
móttökurnar”.
10
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!