Víkurfréttir - 24.11.2005, Side 12
Fjárhagsáætlun Reykjanesbæjar:
Q
160 milljónir í hagnað
Tekju- og gjaldaáætlun fjárhagsáætlunar Reykjanesbæjar fyrir næsta ár, sem
kynnt var í bæjarráði í síðustu viku, gerir ráð fyrir 155 milljón kr. rekstraraf-
gangi. Áætlunin verður lögð til fyrri umræðu þann 6. desember n.k.
Reykjanesbær mun einnig skila
um 160 milljón kr. jákvæðri
rekstrarniðurstöðu fyrir árið
2005, samkvæmt nýendurskoð-
aðri íjárhagsáætlun Reykjanes-
bæjar. Veltufé frá rekstri er já-
kvætt um 73 milljónir kr.
Þetta er mikill viðsnúningur
frá árinu 2004 þegar stórfram-
kvæmdir við endurnýjun Hafn-
argötu á fjórða hundrað milljón
kr. voru að mestu gjaldfærðar
á rekstur og gangskör var gerð
í endurreikningi lífeyrisskuld-
bindinga sem einnig var fært á
rekstur. Árið 2004 var því rekstr-
arniðurstaða neikvæð um 210
milljónir kr.
Vegna jákvæðrar rekstrarniður-
stöðu þessa og næsta árs telja
bæjaryfirvöld svigrúm tii skatta-
lækkana og aukinnar þjónustu
við barnafólk í Reykjanesbæ
sem tekin verður afstaða til við
fjárhagsáætlunargerð ársins
2006.
í frétt á heimasíðu bæjarins
kemur fram að margvísleg þjón-
usta sé nú í bænum umfram
það sem gerist hjá stærstu sveit-
arfélögunum á landinu: Engir
biðlistar eru á leikskóla í Reykja-
nesbæ, frítt er í strætisvagna,
gjald fyrir hádegismáltíðir í
grunnskólum er lægst í Reykja-
nesbæ, frítt er í forskóla tón-
listar fýrir öll börn fyrstu 2 árin.
Þá er gjald í Frístundaskóla að
loknum grunnskóladegi lægst í
Reykjanesbæ, þrátt fýrir að gjald
fyrir íþróttaæfingar sé innifalið í
verði.
I umræðu um málið á bæjar-
stjórnarfundi á þriðjudag gerði
Kjartan Már Kjartansson, full-
trúi Framsóknarmanna, gerði
athugasemdir við færslur í árs-
reikningunum. Hann telur að
leigugreiðslur bæjarins vegna
opinberra bygginga flokkist sem
fjármögnunarleigusamningur
en ekki sem rekstarleiga og skuli
því færðir í efnahagsreikning
bæjarins.
Hann taldi til þrjú atriði í
reglum um leigusamninga í bók-
haldi og reikningsskilum sveit-
arfélaga sem sýndu það að um
fjármögnunarleigusaming sé að
ræða.
1 samtali við Víkurfréttir fagn-
aði Kjartan því að meirihlut-
inn ætlaði að skoða þessi mál
betur og vonaði að þessar tölur
myndu rata rétta leið til að sjá
stöðuna eins og hún er. „Þetta
snýst ekki um að draga upp ein-
hverja vonda mynd af ástand-
inu, heldur að allir geti séð raun-
verulega mynd af stöðunni,”
sagði hann að lokum.
Böðvar Jónsson, formaður bæj-
arráðs, sagði í viðtali við Vík-
urfréttir að hann væri alls ekki
sammála Kjartani.
Þessi aðferð sé í fuilu samræmi
við alþjóðlegar reglur um reikn-
ingsskil og sagði hann að atriðin
sem Kjartan týndi til ættu ekki
við í þessu tilfelli.
Eitt atriðið sem talið var upp
sagði að um fjármögnunarleigu-
samning væri að ræða ef leigða
eignin væri svo sérhæfð að að-
WEB
A SUÐURNESJUM
BOKAKYNNING
fyrir eldri borgara á bókasafninu
Starfsmenn safnsins kynna nýútkomnar bækur
í dag kl. 17:00. Heitt á könnunni.
Félag eldri borgara á Suðurnesjum
Bókasafn Reykjanesbæjar
HOPFERÐIR
vi& öll tækifæri fyrir stóra jafnt sem smóa hópa
Bílar fyrir 9-56 manns
Allir vel útbúnir og öruggir
Hafðu samband og fáðu verðtilboð í þína ferð
-
eins leigutaki gæti notað hana á
mikilla breytinga. Benti Kjartan
á grunnskólahús og sundlaugar
í því samhengi.
Böðvar sagði að t.d. gætu aðrir
aðilar mögulega nýtt skólahús-
næði undir einkaskóla, eða skrif-
stofurekstur þegar fram í sækir,
en annars væri ómögulegt að
segja til um slíkt þar sem húsin
myndu standa í áratugi í viðbót.
Böðvar sagði að þeir færu í einu
og öllu eftir þeim reglum sem
gilda um reikningsskil. „Þetta er
allt eftir settum reglum og sam-
kvæmt okkar endurskoðendum,
sem fara eftir þeim lögum og
reglum sem eru í gildi fýrir sveit-
arfélögin.“
Skrifstofu-
starf - 50%
Þjónustufyrirtæki í sjávarútvegi, nýflutt á Suður-
nesin, óskar eftir að ráða starfsmann á skrifstofu
sína. Starfið felst m.a. í símsvörun, skjalavörslu,
færslu bókhalds og öðrum almennum skrifstofu-
störfum. Starfshlutfall er 50% til að byrja með
en gæti orðið meira í framtíðinni.
Hæfniskröfur:
>Góð þekking af almennum skrifstofustörfum.
> Góð enskukunnátta.
> Geta til að vinna sjálfstætt.
Nánari upplýsingar um þetta starf veitir Jens
Ólafsson hjá Ábendi (jens@abendi.is), símatími
14:00-17:00.
Farið verður með allar umsóknir og fyrirspurnir
sem trúnaðarmál.
Umsóknarfrestur er til og með 29. nóv-
ember nk. Vinsamlegast sækið um starfið
á heimasíðu okkar, www.abendi.is.
A
<C fyl >1
RAÐNINGAR OG RAÐGJOF
SIMI: 544-4554 - abendi@abendi.is
BORGARTÚNI 20 - 105 REYKJAVÍK
www.abendi.is
12
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NVJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!