Víkurfréttir - 24.11.2005, Qupperneq 22
VÍKURFRÉTTIR SPORT
Jeb Ivey hrökk í gang var ekki
aftur snúið og öruggur sigur
var staðreynd
Stigahæstir Njarðvíkingar
voru Jeb Ivey með 20 stig.
Friðrik Stefánsson og Brenton
Birmingham voru með 19 stig
Stigahæstur KR var Omari
Westley 28.
Njarðvíkingar eru
Powerade
arar eftir frækinn
sigur á KR-90-78 á laugar-
dag. KR-ingar byrjuðu mun
betur og leiddu mestallan
fyrri hálfleikinn, en Njarðvík-
ingar voru sterkari í seinni
hálfleik.
Þegar vörnin small saman og
JÓLAGLAÐNINGUR
PERLUNNAR
3 mánuðir í þrek + æfingabolur á:
kr. 10.990,-
1 2 mánuðir í þrek og sund
+ æfingarbolur + brúsi á
kr. 39.000,-
Tilvalin jólagjöf fyrir þann sem þér þykir vænt um.
InnifaliS í kortunum er: sm og fitumæling og
1 tími í einkaþjálfun. Gildir til 24. desember 2005
Frábær arangur IRB
undfólk ÍRB stóð sig frábærlega á íslands-
mótinu í 25m laug um helgina.
Afraksturinn var eftirfarandi:
Níu Islandsmeistaratitlar, fimm silfurverðlaun, sjö
bronsverðlaun, sex aldursflokkamet, efnilegasti
sundmaðurinn, besti unglingaþjálfarinn, fjórir
sundmenn valdir til þáttöku á Norðurlandameist-
armóti unglinga, þau Marin Hrund Jónsdóttir,
Hafdís Ósk Pétursdóttir, Helena Ósk Ivarsdóttir
og Guðni Emilsson. Tveir náðu lágmörkum í
afrekslandslið SSl og þrír nýjir bættust í unglinga-
landsliðshóp SSÍ, en þar eiga iRB-liðar nú átta
einstaklinga í þeim hópi.
Þeir sem unnu til Islandsmeistaratitla voru:
Birkir Már Jónsson 400m skriðsund, 200m
flugsund, 200m skriðsund og lOOm flugsund.
Helena Ósk ívarsdóttir 100 og 200m bringusund.
Guðni Emilsson 200m bórsund.
Erla Dögg Haraldsdóttir 50m bringusund.
Hilmar Pétur Sigurðsson 1500m skriðsund.
Tveir sundmenn félagsins náðu lágmörkum í af-
rekshóp SSl, en það voru þau Birkir Már Jónsson
og Erla Dögg Haraldsdóttir.
Sundmenn félagsins slógu sex aldursflokkamet á
mótinu og þar má með sanni segja að Soffía Klem-
enzdóttir hafi verið fremst í flokki, en hún setti
þrjú Islandsmet í meyjaflokki en það var í 50m
flugsundi, 200m skriðsundi og lOOm fjórsundi.
Svandís Þóra Sæmundsdóttir stóð sig líka frábær-
lega þegar hún stórbætti sig og setti íslandsmet
meyja í 200m flugsundi. Stórefnilegar stúlkur þar
á ferð sem væntanlega eiga eftir að gera góða hluti
í framtíðinni.
Liðsmenn ÍRB settu einnig tvö aldursflokkamet
í boðsundum. I telpnaflokki í 4 xlOOm fjórsundi
en sveitina skipuðu Marín Hrund Jónsdóttir,
Elín Óla Klemenzdóttir, Hafdís Ósk Pétursdóttir
og Jóna Helena Bjarnadóttir og í meyjaflokki í
4 x 200m skriðsundi en þá sveit skipuðu Soffía
Klemenzdóttir, María Halldórsdóttir, Hildur Ýr
Sæbjörnsdóttir og Svandís Þóra Sæmundsdóttir.
Davíð Hildiberg Aðalsteinsson var valinn efnileg-
asti sundmaður mótsins en hann var að bæta sig
talsvert í baksundsgreinunum og er sannarlega
vel að þessum titli kominn. Gríðarlega efnilegur
drengur þar á ferð sem væntanlega á eftir að vera í
fararbroddi íslenskra baksundsmanna næstu árin
ef hann heldur rétt á spilunum.
Eðvarð Þór Eðvarðsson var valinn besti unglinga-
þjálfari ársins 2005. En hann hefur unnið gríðar-
lega gott og markvisst starf með yngri kynslóð
IRB, ekki einungis á þessu ári heldur um árabil.
Að þessu íslandsmóti afstöðnu á IRB tíu sund-
menn í hinum ýmsu landsliðshópum SSl. Þar
eru þeir nú sem endranær í fararbroddi sund-
félaga á landinu. Slíkur árangur er frábær og er
sundmönnum, þjálfurum, stjórnarmeðlimum,
foreldrum, styrktaraðilum og bæjarfélaginu til
mikils sóma.
Fjölmenni á
SpKef-mótið sem Keflavík
og Njarðvík héldu saman
í 5. flokki sem fór fram
£ Reykjaneshöll um helgina
tókst frábærlega. Alls voru um
300 drengir sem kepptu frá 10
félögum og gistu þeir allir fyrir
utan heimamenn í Holtaskóla.
Úrslit í einstökum riðlum
má sjá á www.vf.is og siðum
félaganna.
Fjöldi foreldra heimadrengja að-
Spkef-móti
stoðuðu við mótið og stóðu sig
frábærlega ásamt fjölda annara
sem koma einnig við sögu og
vilja aðstandendur þakka þeim
öllum. Einnig vilja þeir þakka
aðalstyrktaraðila mótsins, Spari-
sjóðnum í Keflavík fyrir bans
framlag, KASKÓ, Langbest og
SBK þeirra þátt ásamt Slökkvi-
liðinu á Keflavíkurflugvelli fyrir
að fá að heimsækja þá.
11 stiga tap hjá Reyni
Sandgerðingar máttu játa
sig sigraða á sunnudag gegn
Vaismönnum í 1. deildinni
í körfuknattleik. Lokatöiur
leiksins voru 91-80 fyrir
Val en leikurinn fór fram í
íþróttahúsi Kennaraháskól-
ans.
Sandgerðingar hafa leikið 6
leiki í 1. deildinni, unnið 1
og tapað 5 og eru því í næst
neðsta sæti með 2 stig ásamt
KFl.
Unnu til gullverðlauna
í fimleikum
Helgina 5. - 6. nóvember fór
Haustmót FSÍ fram og sendi
Fimleikadeild Keflavíkur 15
stúlkur til þátttöku.
Eva Rós Guðmundsdóttir og
Berglind Sveinbjörnsdóttir
stóðu sig með miklum
ágætum og unnu til gullverð-
launa í sínu þrepi. Arndís
Ingvarsdóttir náði svo að
vinna sig upp um þrep. Sann-
arlega glæsilegur árangur hjá
keppendum Keflavíkur.
Sjö í æfingahóp U-17
Knattspyrnukonurnar Eva
Kristinsdóttir, Anna Rún Jó-
hannsdóttir og Helena Rós
Þórólfsdóttir frá Keflavík,
og Alma Garðardóttir, Anna
Þórunn Guðmundsdóttir,
Elínborg Ingvarsdóttir
'og Kristín Karlsdóttir úr
Grindavik hafa verið valdar
í 26 manna úrtak fyrir U 17
ára landslið stúlkna. Þær
voru einnig í 35 manna æf-
ingahópnum en komust í
gegnum niðurskurðinn.
Pílukastmót um helgina
Styrktarmót íslenska Pílukastfélagsins verður haldið í húsi Bláa
Hersins og Ragnarsbakarís í Reykjanesbæ á laugardaginn. Um er
að ræða árlegt mót og er búist við miklu íjölmenni. Mótið er til
styrktar landsliðs- og mótastarfi íslenskra pílukastara.
Mótið hefst klukkan 13 og stendur til kl. 19 um kvöldið.
22
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!