Víkurfréttir - 24.11.2005, Blaðsíða 24
Til Keflvíkinga og Islendinga
GÁTA
Mestu stórvirki sinnar tíðar
Aflauk ofurhugi Ijúflingur Völundur
Reisti hróðri íslands ævarandi hermerki
Einnegin sýnast öngvir honum jafnir
Líkast tilfylgja þó einhverjir sporgöngumenn.
Því alltaf skila þeir sér, „það er lögmál".
Glúmur.
Jólin í Nýmynd
Stækkaðar myndir og
jólakort við allra hæfi.
iwámlirðd!
Iðavollum 7 • Simi: 421 10 16 • Fax: 421 13 16
www.nymynd.is • Vefpóstur: mynd@nymynd.is
1/69
Atvinna
Starfskraftur óskast til
almennra afgreiðslustarfa.
Vinnutími frá 07-13 og 08-16.
Upplýsingar á staðnum.
BAKAKIII)
-ferskara en allt!
Hafnargötu 31 ■ Sími: 4211695
Atvinna
Óskum eftir að ráða:
• Bílstjóra með meiraprófsréttindi
• Laghenta menn á verkstæði
• Verkamenn í malbikunarvinnu.
Upplýsingar ísíma 6601111,660 1125
eða á netfangið kristin@steypan.is
V^SEES
W VERKTAKAR
HILDUR SIGURÐARDÓTTIR SKRIFAR UM EINELTI:
Heimasíður barna - nýtt form eineltis
Með þess ari grein
minni vil ég koma á
framfæri við foreldra
yngri barna
hve nauðsyn-
legt er að þau
kynnisérnet-
notkunbarna
sinna bæði
með tilliti til
heimasíðna
og efnisvals.
Tölvur eru í dag eitt af mikil-
vægustu hjálpartækjum í skóla-
göngu nemanda en þær bjóða
uppá fjölmörg tækifæri til betri
menntunar og bættra efnistaka.
Um leið fylgja þessari nýju
tækni miklar hættur ef ekki er
fylgst reglulega með notkun
þeirra og þá sérstaklega óheftu
aðgengi yngri barna að netinu
og því efni sem þar er að finna.
Eitt af þeim tækifærum sem
internetið býður upp á í dag er
gerð heimasíðna á auðveldan
hátt og færist það stöðugt í vöxt
að börn á aldrinum 7 til 12 ára
eigi sína eigin síðu t.d. undir
léninu www.folk.is svo dæmi sé
tekið. Á heimasíðum sínum geta
börnin t.d. sett inn upplýsingar
um sig, fjölskyldu og vini ásamt
myndum og öðru skemmilegu
efni. Hins vegar hefur borið á
því að börnin nýti sér þennan
vettvang til að gefa öðrum
börnum umsögn þ.e. skrifa op-
inberlega um afstöðu sína til
vina og barna á þeirra aldri. Er
þessi háttur mjög algengur enda
býður stöðluð uppsetning á
þessum sértilgerðu heimasíðum
upp á valmöguleika sbr. „vinir
og vandamenn” sem í sjálfu sér
hljómar jákvætt og vinalega við
fyrstu sýn. Oftar en ekki má
ftnna í þessari upptalningu já-
kvæð ummæli um besta vin eða
vinkonu viðkomandi en svo er
því miður ekki alltaf farið og
geta stundarbrigði kallað á nei-
kvæða umfjöllun og þarf ekki
að tíunda hér hversu alvarlegt
og viðkvæmt það getur verið
fyrir þá sem um er skrifað enda
ummælin sögð á miðli sem allir
geta skoðað og lesið.
Segja má að slíkar heimasíður
séu í raun dagbækur nútímans
en munurinn er að þessi skrif
eru öllum opin og geta birst sem
niðurstaða eða álweðinn dómur
yfir þeim sem skrifað er um.
Þannig geta saklaus skrif á
heimasíðu, um vini og kunn-
ingja, auðveldlega snúist upp í
andhverfu sína enda gera börn
sér enga grein fyrir hættunni
sem þarna leynist. Þau hafa
ekki þann þroska sem þarf til
að skilja þann skaða sem þau
geta valdið með skrifum sínum.
Ummælum sem til lengri tíma
litið gæti flokkast undir andlegt
ofbeldi eða einelti.
Látum þessi viðvörunarorð
verða okkur foreldrum áminn-
ing um hve mikilvægt er að
leiðbeina börnum okkar og
kenna þeim að umgangast
netið með skilningi á kostum
þess og göllum. Kenna þeim
að bera virðingu fyrir öðrum
þannig að þau nýti sér ekki
þennan mikilvæga miðil til að
fá útrás fyrir eigin tilfinningum.
Tilfinningum sem stundum
lúta að gremju og vonbrigðum
í garð vina og kunningja. Ekk-
ert foreldri óskar barni sínu
neikvæðrar umfjöllunnar á
fjölsóttum netsíðum. Við for-
eldrar erum öll ábyrg fyrir
okkar börnum og ber skylda til
að vernda þau eftir bestu getu.
Stöndum vörð um hamingju
barnanna okkar.
Hildur Sigurðardóttir
leikskólakennari.
STEINÞÓR JÓNSSON SKRIFAR UA/ISAMGÖNGUMÁL Á SUÐURNESJUM:
Yfír 20.000 íbúar árið 2008
Aðalfundur Sambands
sveitarfélaga á Suður-
nesjum var haldinn í
glæsi legu
húsnæðiFjöl-
brautaskóla
Suðurnesja
þann 19.nóv-
ember s.l. og
er ástæða að
þakka stjórn
sam bands-
ins, framkvæmdastjóra og
frummælendum sérstaklega
fyrir góðan fund.
Á fundinum lagði Samgöngu-
nefnd SSS fram áfangaskýrslu
um samgöngumál á Reykjanesi
sem er fyrsta skýrslan sem lögð
er fram um þetta efni á þessum
vettvangi. Tilgangur skýrsl-
unnar er að taka saman verkefni
sem í gangi eru og forgangsraða
öðrum enda lykilatriði að nið-
urstaða samgöngunefndar og
sveitastjórnarmanna sé skýr og
einróma þannig að árangur ná-
ist með tryggu og jákvæðu sam-
starfi við þingmenn, samgöngu-
yfirvöld og Vegagerð. Þessum
aðilum er hér með þakkað sér-
staklega fyrir vel unnin störf og
þann skilning sem þeir hafa haft
á uppbyggingu svæðisins og
þeirri þörf sem hún skapar.
Segja má að ákveðinn vendi-
punktur sé í samgöngumálum á
svæðinu enda fjölmörg verkefni
nú á framkvæmdastigi s.s. annar
áfangi að tvöföldun Reykjanes-
brautar, Suðurstrandaveg, Nes-
veg frá Grindavík að Reykjanesi,
Hafnarveg við Hafnir og Ósa-
botnaveg og því mikilvægt að
forgangsraða næstu verkefnum
með heildarhagsmuni að leið-
arljósi. Lítur nefndin þannig á
að tvöföldun Reykjanesbrautar
frá Hvassahrauni í gegnum
Hafnarfjörð verði framkvæmd
samhliða þeim kafla sem nú er
í vinnslu þ.e. Strandarheiði að
Fitjum um leið og skipulagsyf-
irvöld í Hafnarfirði hafa sam-
þykkt legu vegarins í gegnum
Hafnarfjörð í samstarfi við
Vegagerð Ríkisins. Þá er þörf á
nýjum mislægum gatnamótum
við Hæðahverfi vegna örar upp-
byggingar og lýsingu stofnvega.
Að þessu sögðu var samþykkt
einróma á fundinum að fram-
kvæmdir við Suðurstrandaveg
verði settar í algjöran forgang
en ríkisstjórnin hefur þegar
tilkynnt um fjögur hundruð
milljón króna framlag til vegar-
ins vegna sölu Símans. Þá skor-
uðu sveitarstjórnarmenn á Suð-
urnesjum á Alþingi að þær 300-
400 milljónir sem spöruðust
vegna hagstæðs útboðs á öðrum
áfanga Reykjanesbrautar verði
þegar varið til framkvæmda í
kjördæminu.
Víst er að tvöföldun Reykjanes-
brautar hefur skipt sköpum í
þeirri gríðarlegu uppbyggingu
og fjölgun íbúa sem nú á sér
stað á Reykjanesi öllu en fjölgun
íbúa á þessu ári er vel yfir fimm
prósent og allt sem bendir til að
sú fjölgun haldi áfram. Þannig
má reikna með að íbúar Reykja-
ness verði vel yfir 20000 manns
þegar árið 2008. Ljóst er að
Reykjanes er að koma sterkt inn
sem næsta uppbyggingarsvæði
í nágrenni höfuðborgarinnar
og er þegar orðinn mjög eftir-
sóttur íbúakostur. Þessi mikla
fjölgun sem og gríðarleg fjölgun
ferðamanna sem fara um Kefla-
víkurflugvöll kalla á skilvirk
vinnubrögð yfirvalda og skýra
forgangsröðun verkefna. Frekari
upplýsingar úr skýrslunni má
finna á vef Sambands sveitarfé-
laga á Suðurnesjum www.sss.is
Framundan eru tækifæri
til sóknar á Reykjanesi. Þar
verðum við öll að standa saman
og tryggja svæðinu bjarta fram-
tíð.
Steinþór Jónsson,
bœjarfulltrúi Reykjanes-
bœjar ogformaður Sam-
göngunefndar SSS
24
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!