Víkurfréttir - 06.04.2006, Qupperneq 20
TómasJ. Knútsson skrifar:
HÖFUÐBORG VETNIS-
FRAMLEIÐSLU RÍSIÁ
KEFLAVÍKURFLUGVELLI
S
tórtíðindi aldarinnar eru
að líta dagsins ljós. Her-
inn vill fara og það sem
fyrst. Þetta
Mer reyndar
búið að vera
lengi augljós
stefna Banda-
ríkjanna að
herseta hér sé
ekki þeim að
skapi vegna
þeirra verkefna sem þeir eru í
annarsstaðar í heiminum.
Við Islendingar erum því miður
ekki búnir að vera nógu sann-
færandi um að fá að taka við
ákveðnum verkefnum sem her-
inn var með í sínum röðum, en
kannski vorum við bara engan
veginn tilbúnir að fara að borga
meira og þiggja minna.
Núna er hinsvegar frábært tæki-
færi að koma til okkar og það
með ógnarhraða. Við eignumst
skyndilega heilt bæjarfélag með
öllu og flugvöll með.
Hvað eigum við að gera, jú
stöndum saman og setjum upp
hugmyndasamkeppni í sam-
vinnu við stjórnvöld og hug-
vitsmenn, erlenda fjárfesta og
tæknisamfélag vetnisframleið-
enda og gefum þeim tækifæri
á að setja á stofn „Höfuðborg
vetnisframleiðslu" og vélafram-
leiðslu á næstu kynslóð bílvéla.
Heimurinn er nefnilega að farast
úr mengun og okkar tækifæri
gæti einmitt legið í því að við
gætum boðið heiminum uppá
orkugjafa framtíðarinnar, ÁN
MENGUNAR. Það eru mörg
tækifæri sem hægt væri að gera
fyrir INNAN GIRÐINGAR.
Eitt er víst að hressileg umræða
um framtíð Keflavíkurflugvallar
er kærkomin og hugmyndir þar
að lútandi velkomnar á síður
dagbiaða.
Ég skora á Suðurnesjamenn að
virkja hugmyndaflugið og setja
niður á blað atvinnuskapandi
hugmyndir um hvernig við
nýtum svæðið sem best.
Það hlýtur að verða eitt fyrsta
verk stjórnvalda að koma Land-
helgisgæzlunni suður, koma
Vatnsmýrinni í byggingarlóðir,
flýta allri samgönguáætlun um
að tvöfalda samgöngur á milli
Keflavíkur og höfuðborgarinnar
og bretta upp ermar og styðja
við bakið á hugmyndum Suður-
nesjamanna.
Varðandi varnir landsins vil
ég helst sjá okkur spila stærra
hlutverk sem „Björgunarsveit
Norður Atlandshafsins" þar sem
að við fáum okkar nágranna-
þjóðir og frændur Dani og Norð-
menn til að koma stundum í
kurteisisheimsóknir með sín
varðskip og flugvélar og stunda
sínar æfingar með okkar Land-
helgisgæzlu.
Tórnas J. Knútsson
Viltu hætta aó reykja
Reykleysisnámskeið hefst
fimmtudaginn 27. apríl kl. 17-18
Nánari upplýsingar og skráning í síma 422-0533 (dagdeild)
kl.8-16 alla virka daga.
Skráningu iýkur 24.apríl.
Námskeiðsgjald er 9.500 kr.
HEILBRIGÐISSTOFNUN
SUÐURNESJA •
Sveindís Valdimarsdóttir skrifar:
Heilsa og heilbrigði
Hvað er það sem mestu
máli skiptir? Því er
fljótsvarað. Heilsa
og heilbrigði er grunnurinn.
Ef heilsan er ekki í lagi þá átt
þú við eitt vandamál að stríða
I og öll þín
fyrri vanda-
| S6L mál virðast
ft.. léttvæg. Að
I hafa trausta
I atvinnu er
I
þáttur í lífi
hvers og eins
og hefur það öryggisnet mikil
áhrif á heilsu og heilbrigði.
Margar hugmyndir hafa verið
reifaðar nú síðustu daga um
hvernig byggja megi upp at-
vinnu á svæðinu. Lengi hefur
einnig verið rætt um það
hversu mikil þörf sé hér fyrir
hjúkrunarheimili fyrir aldraða
og þá sem þurfa langtíma um-
önnun. Það er til skammar
hversu lengi við höfum flutt
fólk hreppaflutningum.
Fleiri hjúkrunarrými
Uppi eru hugmyndir um upp-
byggingu þjónustusvæðis aldr-
aðra á íþróttasvæði Njarðvíkur
og sú hugmynd er góðra gjalda
verð. Það sem þó skiptir mestu
er að brugðist verði skjótt við
og að búið verði þannig um
hnúta að allir sem þurfa á hjúkr-
unarrými að halda fái þar inni.
Samkvæmt nýlegum tölum er
brýn þörf fyrir yfir 30 hjúkrun-
arrými í dag. Ljóst er að þörfin
fer vaxandi á næstu árum. Þessu
verður að bregðast við strax í
fyrsta áfanga og gera ráð fyrir
mun fleirum en þeim 30 hjúkr-
unarrýmum sem áætlun er um
í dag. Samkvæmt áætlunum er
gert ráð fyrir að þörf verði fyrir
helmingi fleiri hjúkrunarrými
eftir nokkur ár og er því brýnt
að bregðast við strax og byggja
stærra.
Heilbrigðismál eru at-
vinnumál
En ekki er nóg að byggja, það
þarf líka að tryggja fé til rekst-
urs og að mannsæmandi laun
séu í boði fyrir þau störf. Það er
tímabært að endurskoðun eigi
sér stað á því hvers virði heilsa
og öryggi er. Það er sorgleg
staðreynd að starfstéttir sjúkra-
flutningafólks og starfsmanna á
hjúkrunarheimilum skuli á síð-
astliðnum mánuðum hafa átt í
strangri kjarabaráttu og að mál-
efnum þeirra hafi verið vísað
frá einu ráðuneytinu til annars
og enginn þykist ábyrgur. Um-
önnunarstéttum þarf að lyfta
í launum og skapa mannsæm-
andi kjör til að tryggja starfsfrið
og öryggi þeirra sem á þjónustu
þeirra þurfa að halda.
Að sama skapi þurfum við aukið
framlag til eflingar Heilbrigði-
stofnunar Suðurnesja m.a. til að
halda uppi sólahringsvöktum á
skurðstofu. Mikil uppbygging
hefur átt sér stað hjá HSS á síð-
ustu árum en enn vantar upp
á til að starfsemin geti staðist
þær öryggiskröfur sem sjúkra-
hús og heilsugæsla ætti að gera
fyrir þetta stórt svæði. Frekari
uppbygging HSS er ekki bara
heilbrigðismál heldur einnig
atvinnumál því með henni
sköpum við atvinnu fyrir fleiri
tugi manna.
A-listinn leggur ríka áherslu á
þennan mikilvæga málaflokk
og skjót viðbrögð á þessum
sviðum hafa margvísleg áhrif,
ekki síst á þeim tímum sem nú
fara í hönd.
Sveindís Valdimarsdóttir
bœjarfidltrúi. Skipar 3. sœti
A-listans í Reykjanesbœ
Guðbrandur Einarsson skrifar:
Nýir tímar - nýir möguleikar
Þegar þetta er skrifað
blasir við sú staðreynd
að öllum starfsmönnum
Varnarliðsins á Keflavíkurflug-
velli verður sagt upp störfum
hjá Varnarliðinu á Keflavíkur-
flugvelli. Við
því er verið að
bregðast og
nú hafa stétt-
arfélög sem
eiga félags-
menn í starfi
hjá Varnarlið-
inu sameinast
ásamt Reykjanesbæ, um að
bjóða upp á víðtæka þjónustu
til aðstoðar þeim sem nú missa
vinnuna. Hún mun felast i því
að kölluð hefur verið til sam-
starfs ráðningarskrifstofa sem
mun aðstoða starfsmenn eins
og kostur er. Aðstoðin getur
m.a. falist í gerð starfsferils-
skrár, undirbúningi starfsvið-
tala, ýmis konar námskeiðum,
ábendingum um áhugaverð
störf, aðstoð og undirbúningi
fyrir viðtal eða eftirfylgni í kjöl-
far viðtals. Einnig mun verða í
boði ýmis önnur þjónusta eftir
þörfum hvers og eins.
Markmið þessa samstarfs er að
aðstoða sem flesta til þess að
finna sér aðra vinnu áður þeir
láta af störfum hjá Varnarliðinu
og til þess að gera þessa stöðu
léttbærari.
Það mun reyna verulega á sam-
félagið okkar á næstunni og
það mun koma í ljós úr hverju
við erum gerð. Við hljótum að
gera þá kröfu á stjórnvöld að
viðræður við Bandaríkjamenn
gangi hratt fyrir sig til þess að
minnka þá óvissu sem upp er
komin. Hægt verður að endur-
ráða einhvern hóp starfsmanna
hjá nýjum vinnuveitanda og
eins munu skapast nýjir mögu-
leikar tengdir flugvallarstarfs-
semi. Mestu málir skiptir að
unnið verði hratt og vel og allir
axli sína ábyrgð. Þessum kafla
í sögu okkar er lokið og nú er
það okkar að heíjast handa við
að skrifa nýja. Og ég veit að þeir
verða ekki síðri en þeir sem
búnir eru.
Guðbrandnr Einarsson
frambjóðandi A-listans
í Reykjanesbœ
20 IVÍKURFRÉTTIR 14. TÖLUBLAÐ 27. ÁRGANCUR
VÍKURFRÉTTIR Á NÉTINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTiR DAGLEGA!