Víkurfréttir - 06.04.2006, Page 24
ÍÞRÓTTIR í BOÐI
LANDSBANKANS
\
Brenton og Guóniundur í > \
baráttunni gegn Melvin Scott |
á mánudag.
Njarðvíkingar tryggðu sér
þátttökurétt í úrslitum
Iceland Express deildar-
innar i körfubolta s.l. mánudag
með sigri á KR 85-90 í DHL-höll-
inni.
Einvígi liðanna lauk því 3-1 Njarð-
víkingum í vil sem leika nú til úr-
slita í fyrsta sinn frá árinu 2002.
„Við erum svangir í titilinn," sagði
Brenton Birmingham við Vík-
urfréttir en hann gerði 16 stig í
leiknum á mánudag. „Vörnin okkar
er komin í samt horf og allir eru
að leggja sig fram og við verðum
stöðugt betri í okkar leik,“ sagði
Brenton sem gerir ráð fyrir því að
Keflavík fari áfram eftir sigur á
Skallagrím í oddaleiknum í kvöld.
„Heimavöllurinn skiptir miklu
máli í leikjum þessara liða en það
skiptir mig ekki máli hvort við
fáum Skallagrím eða Keflavík þó
skemmtilegasta viðureignin yrði
Njarðvík-Keflavík,'1 sagði Brenton
að lokum og eru eflaust margir
sammála honum.
Hamborgari,franskar,
sósa og 1/2 Itr.Cokeí
dós kr.750,-[
eingönga sótt eda í sal
Kjúklingasalat +1/2
Itr.Toppureða Coke
Light kr. 1.050,-
Pizzutilboð nr.l
12"pizza m/2álegg
+1/2 Itr.Coke kr. 1.250,-
Pizzutilboð nr.2:
16" pizza m/2álegg
+2 Itr.Coke kr. 1.600,-
Hafnargötu 62 • 230 Keflavík • Sími 421 4777
Oddaleikur í Sláturhúsinu
Keflavík tekur á móti
Skallagrím í oddaleik
liðanna í undanúrslit-
unum Iceland Express deildar-
innar i kvöld kl. 19:15 í Slátur-
húsinu. Liðin hafa hvort um
sig unnið tvo leiki og heldur
sigurliðið í kvöld í úrslitin og
mun leika þar á móti Njarðvík.
Keflvíkingar slátruðu Skallagrím
á heimavelli síðasta fimmtudag
129 - 79 þar sem AJ Moye gerði
37 stig og tók 13 fráköst. Liðin
mættust svo á nýjan leik í Borgar-
nesi á mánudag þar sem heima-
menn höfðu betur 94-85, Vlad
Boeriu var stigahæstur Islands-
meistaranna með 18 stig og 9
fráköst. Bæði Keflavík og Skalla-
grímur hafa unnið sína leiki á
heimavelli í undanúrslitunum
og því verður ákaflega fróðlegt
að fylgjast með bræðrunum Sig-
urði og Val etja köppum sínum
saman í leik sem verður sá síð-
asti á leiktíðinni fyrir annað
hvort liðið. „Stemmningin er fín
í hópnum og við höfum oft áður
farið í oddaleik í undanúrslit-
unum, það er ágætis próf fyrir
lið að fara í oddaleik í undanúr-
slitum því ef þú vinnur hann
þá ertu klár í úrslitin," sagði Sig-
urður Ingimundarson, þjálfari
Keflvíkinga, í samtali við Vík-
urfréttir. „Við þurfum að hitta
á toppleik í kvöld og á lakan
leik hjá Keflavík til þess að ná
sigri,“ sagði Valur Ingimundar-
son, þjálfari Skallagríms, við
Víkurfréttir. „Okkur fmnst tími
kominn á nýtt meistaralið og
munum leggja allt í sölurnar.
Númer 1, 2 og 3 er að standast
áhlaup Keflvíkinga og láta þá
ekki draga okkur inn í sinn leik
en þeir eru snillingar í því að
hleypa leikjunum upp í mikinn
hraða,“ sagði Valur að lokum.
VF-sport
molar
Stefán semur
við Keflavík
FRAMHERJINN Stefán
Örn Arnarson gekk á mið-
vikudaginn í síðustu viku
til liðs við knattspyrnudeild
Keflavíkur. Stefán sem lék
með Keflavík á lánssamn-
ingi síðasta sumar og skor-
aði 4 mörk, er búsettur í
Reykjanesbæ og ákvað að
semja við Keflavík eftir að
samningur hans við Víking
rann út.
Fjör í deildarbikar
VÍÐIR gerði jafntefli við
Leikni, 1-1, í B-deild deild-
arbikarins í knattspyrnu
um síðustu helgi. Knútur
Jónsson gerði mark Víðis.
Reynismenn voru ekki eins
heppnir, en þeir töpuðu
gegn ÍR 5-1. Ólafur Ivar Jóns-
son skoraði mark Reynis í
leiknum. I C-deildinni gerði
GG svo jafntefli við Ými 2-
2. Árni Björnsson og Óskar
Hallgrímsson skoruðu mörk
GG.
Jafntefli í
síðasta leik
GRINDAVlK lauk keppni
í deildarbikar karla í knatt-
spyrnu s.l. föstudag með 1 -1
jafntefii gegn Þrótti Reykja-
vík. Mark Grindavíkur gerði
Orri Óskarsson á 55. mín-
útu en Þróttur komst yfir í
leiknum á 11. mínútu með
marki frá Óskari Vignissyni.
Grindavík lauk keppni í
deildarbikarnum með 6 stig
í 7 leikjum og eru í 6. sæti af
8 liðum en geta endað neðar
þar sem enn eru nokkrir
leikir eftir.
Töpuðu í fram-
lengdum leik
Logi Gunnarsson og félagar
hans í Bayreuth töpuðu
gegn Ratiopharm Ulm 95
- 105 í framlengdum leik s.l.
föstudag í þýsku 2. deildinni
í körfuknattleik. Logi gerði
9 stig í leiknum á tæpum 36
mínútum og tók 2 fráköst.
Bayretuth er í 6. sæti deild-
arinnar með 15 sigurleiki og
11 töp en Ulm hefur þegar
unnið deildina með 25 sigra
og aðeins eitt tap og leika
því í úrvaisdeildinni að ári.
Aðalfundur
Bifhjólaklúbbs Suðurnesja
laugardaginn 22. apríl kl.
17:00 að Hólagötu 15.
24 VIKURrRÉTTIR I ÍÞROTTASIDUR
VÍKURFRÉTTIR Á NETiNU •www.vf.is- LESTU NÝJASTA SPORTIÐ DAGLEGA!