Víkurfréttir - 06.04.2006, Page 25
Jói þrefaldur
íslandsmeistari
J'óhann Rúnar Kristjánsson
varð þrefaldur íslands-
meistari í borðtennis um
ustu helgi en þetta er fjórða
árið í röð sem hann vinnur
alla titlana. Jóhann er í 23. sæti
heimslistans í sitjandi flokki
en var fyrir skemmstu í 32.
sæti og er því á hraðri uppleið.
„Ég er rosalega sáttur við að vera
kominn í gamla formið eftir spít-
alaleguna löngu og ef eitthvað
er þá er ég sterkari bæði líkam-
lega og andlega," sagði Jóhann
við Víkurfréttir. „Ég hef greini-
lega náð að hreinsa vel til í koll-
inum á mér inni á spítala, það
var allavega nægur tími til að
hugsa þar,“ sagði Jóhann léttur
í bragði.
Jóhann varð Islandsmeistari í
opnum flokki, sitjandi flokki
og tvíliðaleik en framundan er
langt og strangt keppnisferða-
lag. „Næsta mót er í Slóveníu
þann 10. maí en það er alþjóð-
legt punktamót sem getur gefið
20 punkta.“ Þann 24. maí heldur
Jóhann svo til Köln í Þýskalandi
og þaðan til Slóvakiu þann 31.
maí. „Það verður eitthvað lítið
um sumarfrí en ég mun æfa hér
heima eftir mótið í Slóvakíu því
16. ágúst er svo síðasta mótið
fyrir HM,“ sagði Jóhann en
Heimsmeistaramótið fer fram
í Sviss þann 22. september og
hefur Jóhann þegar tryggt sér
þátttökurétt á því móti. „Ég
mun reyna að komast í topp 10
eða 12 á heimslistanum fyrir
HM því þá gæti verið að ég
yrði annar inn í einhvern riðil-
inn sem þýðir að ég myndi fá
spilara í riðil með mér sem eru
neðar en ég á heimslistanum,
það er svona óskastaðan," sagði
Jóhann að lokum.
MARÍA OG JÓN
SIGRA Á VORMÓTI
*
fimmtudag í síðustu
viku fór púttmót fram
í Röstinni, sem styrkt
var af Sparisjóðnum í Keflavík
og kallast Vormót Sparisjóðs-
ins, alls tóku þátt 36 eldri borg-
arar og urðu sigurvegarar sem
hér segir;
Konur:
1. sæti María Einarsdóttir á 58
höggum
2. sæti Regína Guðmundsdóttir
á 64 höggum
3. sæti Lórý Erlingsdóttir á 67
höggum
Flest bingó var María einnig
með eða 14.
Karlar:
1. sæti Jón ísleifsson á 58
höggum
2. sæti Högni Oddsson á 60
höggum
3. sæti Trausti Björnsson á 63
höggum, en Trausti vann þá
Hólmgeir Guðmundsson, Sig-
urð Guðbrandsson og Ingiberg
Jónsson í bráðabana.
Flest bingó var svo Jón einnig
með eða 16.
Verðlaun sem og veitingar voru
veitt af Sparisjóðnum, og kunna
púttarar þeim þakkir fyrir, en
Daði Þorgrímsson mætti fyrir
hönd SpKef. Næsta mót er svo 6.
apríl, í dag, og verður þá einnig
haldinn aðalfundur Púttklúbbs
Suðurnesja.
Samfleytt
í sólarhring
ann 25. mars s.l. léku
Keflavíkurstúlkur í 3.
flokki kvenna knatt-
spyrnu í tólf tima.
Tilgangurinn var að safna
áheitum fyrir utanlandsferð
sem farin verður í sumar.
Byrjað var að spila kl. 20:00
á laugardagskvöldi og hætt
kl. 8:00 á sunnudagsmorgni.
Stelpurnar voru ansi
þreyttar þegar yfir iauk en
vilja koma á framfæri kæru
þakklæti til þeirra sem
studdu þær með áheitum.
Meistarar
í 7. flokki
Sjöundi flokkur Kefla-
víkurkvenna varð
ís lands meist ari í
körfuknattleik fyrir um
tveimur vikum.
Úrslitamótið fór fram í Kefla-
vík og áttu heimamenn 2 af 5
liðum í úrslitum, þ.e. Keflavík
A og Keflavík B. A liðið vann
allar sínar viðureignir og varð
Islandsmeistari en Keflavík
B vann einn leik. Það sýnir
styrk hópsins í 7. flokki að
vera með tvö lið í lokamótinu
en A lið Keflavíkur átti titil að
verja frá árinu áður.
Haukar í
Allt útlit er fyrir að
þriggja ára sigurganga
Keflavíkurkvenna sé á
enda. Deildarmeistarar Hauka
hafa yfir í úrslitaeinvígi lið-
anna 2-0 og þurfa aðeins einn
sigur til viðbótar til þess að
tryggja sér íslandsmeistaratit-
ilinn.
Liðin mættust fyrst að Ásvöllum
s.l. laugardag og lokatölur leiks-
ins voru ekki aprílgabb, 90-61,
Haukum í vil en Haukar gerðu
út um þann leik í 2. leikhluta.
Félagarnir Guðlaugur og
Halldór vita hvað þeir
syngja er kemur að því
að spá fyrir um úrslit í ensku
knattspyrnunni en Fasteigna-
salan Stuðlaberg vann get-
raunaleik barna- og unglinga-
ráðs Knattspyrnudeildar Kefla-
víkur.
lykilstöðu
Keflavíkurkonur urðu svo að
játa sig sigraðar í öðrum leik
liðanna á þriðjudagskvöld, 77-
79, eftir að hafa verið með 14
stiga forskot á kafla í leiknum.
Mikil batamerki voru þó á leik
Keflavíkur í síðari leik liðanna
og gekk þeim betur að leysa úr
pressuvörn Hauka en í fyrsta
leiknum. Keflavíkurkvenna
bíður því ærinn starfi að Ás-
völlum annað kvöld en þá mæt-
ast liðin í þriðja leiknum og
hefst hann Id. 19:15.
Stuðlabergsmenn fengu alls
91 rétta af 130 mögulegum en
næstir á eftir þeim voru tippar-
arnir hjá Hjalta Guðmundssyni
sem lögðu SpKef í lokaumferð-
inni og tóku því annað sætið
með 17 stig. Guðlaugur og Hall-
dór eru því tipparar ársins hjá
Keflavík 2006.
Stuðlaberg vann getraunaleikinn
félagslegri þjónustu
Félagsþjónusta Sandgerðisbæjar óskar eftir að ráða starfsmann í
sumarafleysingar í félagslegri heimaþjónustu. Um er að ræða fullt
starf sem snýr að almennum heimilisþrifum en verkefnin geta verið
mjög einstaklingsbundin, allt eftir þörfum þjónustuþega.
Mikilvægt er að viðkomandi starfsmaður hafi áhuga og ánægju af
mannlegum samskiptum. Æskilegt er að viðkomandi
hafi reynslu af því að starfa með fólki.
Umsóknarfrestur er til 24. apríl.
Nánari upplýsingar veitir Gyða Hjartardóttir félagsmálastjóri
eða Guðrún Björg Sigurðardóttir starfsmaður félagsþjónustu
Sandgerðisbæjar í síma 420 7555.
ÍÞRÖTTASÍÐUR VÍKURFRÉTTA ERU í BOÐI LANDSBANKANS
VIKURFRÉTTIR I ÍÞRÓTTASÍÐUR 25