Víkurfréttir


Víkurfréttir - 05.10.2006, Qupperneq 24

Víkurfréttir - 05.10.2006, Qupperneq 24
• • LOGREGLAN KOM SULU TIL BJARGAR A FITJUM Vegna nýlegra athugasemda um þjónustu heilsu- gæslu HSS Ikjölfar athugasemda um þjónustu á heilsugæslu Heilbrigðisstofnunar Suð- urnesja (HSS) vill undirritaður gera grein fyrir nokkrum at- riðum málsins. Að undanförnu hefur biðtími eftir almennri móttöku á heilsu- gæslunni verið talsvert lengri en æskilegt er. Ástæður þess eru nokkrar en í hnotskurn hefur staðan verið þannig að vegna sumarleyfa, fæðingarorlofa, námsleyfa og vaktafría hefur læknamönnun heilsugæslunnar verið með minnsta móti. Nú er sumarleyfistíminn að baki og betur horfir til með mönnun nú í haust og vetur en verið hefur frá því heilsugæslulæknar hurfu frá HSS síðla árs 2002. Það hefur tekið vel á fjórða ár að koma þjónustunni affur á réttan kjöl en nú er staðan sú að bið- tími eftir röðuðum tímum hjá heilsugæslulæknum mun stytt- ast verulega á næstu vikum. Álag á vaktmóttöku hefur verið mikið meðal annars vegna þess að biðtimi eftir röðuðum tímum er of langur. Vegna þessa langa biðtíma hefur álagið á vaktmót- tökuna einnig verið meira fyrir vikið. Á vaktmóttökunni starfa á hverjum tíma tveir læknar sem sitja ekki auðum höndum. Tveir tímar eru vissulega langur tími þegar beðið er, en þykir almennt ekki langur tími eftir vaktþjón- ustu utan hefðbundins vinnu- tíma. Álagið ætti hins vegar að breytast með betri mönnun og nýju skipulagi bráðaþjónust- unnar sem verður tekið upp þann 9. október næstkomandi. Stöðugt er unnið að því að gera þjónustu HSS betri og skil- virkari. Athugasemdir frá not- endum þjónustunnar eru mik- ilvægur þáttur í því ferli og eru þær ávallt skoðaðar vandlega. Við hvetjum hins vegar til þess að þær berist beint til okkar en ekki í gegnum fjölmiðla. Sigurjón Kristinsson yfirlœknir heilsugceslu HSS Verk lögreglunnar eru margvísleg eins og svo oft hefur komið í ljós. Síðast í gær voru lag- anna verðir kallaðir á Fitjar í Njarðvík þar sem súla tafði fyrir umferð. Súlan, sem er tignarlegur sjófugl og heldur sig í stórum hópum við Eldey undan Reykjanesi, virðist hafa tapað áttum þar sem hún hélt sig annað hvort í vegar- kantinum eða hreinlega úti á miðjum vegi á Njarðarbraut- inni á Fitjum. Fljótlega hafði safnast á stað- inn talsverður íjöldi fólks til að fylgjast með fuglinum. Góð ráð voru dýr, því fuglinn var ekki talinn vængbrotinn. Hann var frekar ringlaður og lítið gefinn fyrir þá athygli sem hann var að fá. Lögreglan tók til þess ráðs að kasta teppi yfir fuglinn, enda hafði hann þegar goggað í veg- farendur og vildi ekki láta nálg- ast sig. Eftir tvær tilraunir með teppið tókst að koma því yfir súluna þannig að hægt væri að ná á henni taki. Tveir lögreglu- þjónar fóru síðan með fuglinn og slepptu honum á tjörnina á Fitjum. Þar virtist súlan una hag sínum ágætlega. Hún hefur a.m.k. ekki orðið til frekari vand- ræða í umferðinni, svo vitað sé. rcykjanesbaer. is Skipulagsþing Skipulagsþing veröur haldið á vegum Umhverfis- og skipulagssviðs Reykjanes- bæjar dagana 12. - 13. október n.k. í Bíósal Duushúsa. Markmið þingsins er að yfirfara árangur síðustu ára, taka út stöðuna í dag og líta til framtíðar. Dagskrá: Fimmtudagur 12. október Föstudagur 13. október 13:00 Setning - Steinþór Jónsson formaður Umhverfis- og skipulagsráðs 13:10 Yfirlit frá norðri til suðurs - Viðar Már framkvæmdastjóri USK 13:45 Atvinnusvæði á vestanverðu Reykjanesi - RV ráðgjöf 14:00 Rammaskipulag Reykjanesbæjar Kanon arkitektar 14:40 Hönnun húsa og veðurfar Batteríið Arkitektar 15:20 Kaffi 15:40 Umferðarskipulag - Línuhönnun 15:55 Hljóðvist - Línuhönnun 16:10 Skipulag Tjarna- og Dalshverfis Kanon Arkitektar 16:50 Fyrirspurnir og umræður 8:30 Morgunkaffi 9:00 Skipulagsmál: Stapahverfi, Fitjar, Skólalóð íþróttaakademíu, svæði vestan Reykjaneshallar og Ásahverfi - Arkitektur.is 9:40 Samantekt frá íbúaþingi - Alta 10:10 Kaffi 10:30 Nesvellir Teiknistofa Halldórs Guðmundssonar 11:00 Kynning á MotoPark 11:30 Kaffi 11:40 Vinnuhópar 12:10 Skil og niðurstöður Árni Sigfússon bæjarstjóri fer yfir stöðu mála Umhverfis - og skipulagssvið Reykjanesbæjar. Aðsent: VÍKURFRÉTTIR Á NETINU -www.vf.is- LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! 24 IVÍKURFRÉTTIR ; 40. TÖLUBLAÐ 27. ÁRGANCUR

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.