Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.12.2006, Síða 6

Víkurfréttir - 14.12.2006, Síða 6
Reykjanesbær: Afgreiðsla Víkurfrétta er opin alla virka daga frá kl. 09-12 og 13-17. Athugið að föstudaga er opið til kl. 15. Með því að hringja í síma 4210000 er hægt að velja beint samband við auglýsingadeild, fréttadeild og hönnunardeild. FRÉTTAVAKT ALLAN SÓLARHRINCINN ER í SÍMA 898 2222. Útgefandi: Afgreiðsla, ritstjórn og auglýsingar: Ritstjóri og ábm.: Fréttastjóri: Blaðamenn: Auglýsingadeild: Útlit, umbrot og prentvistun: Hönnunardeild Víkurfrétta: Prentvinnsla: Dagleg stafræn útgáfa: Skrifstofa Víkurfrétta: Víkurfréttirehf., kt. 710183-0319 Grundarvegi 23,260 Njarðvík, Sími 4210000 Fax 4210020 Páll Ketilsson, sími 4210007, pket@vf.is Hilmar Bragi Bárðarson, sími 4210002, hilmar@vf.is Ellert Grétarsson, sími 4210014, elg@vf.is Þorgils Jónsson, sími 4210003, gilsi@vf.is Jófríður Leifsdóttir, sími 4210001, jofridur@vf.is Sigríður K. Ólafsdóttir, sími 4210008, sirry@vf.is Víkurfréttirehf. Magnús Geir Gíslason, s: 4210005, magnus@vf.is Þorsteinn Kristinsson, s: 4210006, steini@vf.is Þóra Kristín Sveinsdóttir, s: 4210011, thora@vf.is Ragnheiður Kristjánsdóttir, s: 4210005, ragnheidur@vf.is OPM www.vf.is,www.vikurfrettir.is og kylfingur.is Guðrún Karitas Garðarsdóttir, sími 4210009, gudrun@vf.is Aldís Jónsdóttir, sími 4210010, aldis@vf.is t Elskulegur eiginmaöur minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Jón Jóhannsson, Melteigi 8, Keflavík, lést mánudaginn 11. desember sl. Jarðsungið verður frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 19. desember nk. kl. 14. Jóna Sigurgísladóttir, Stefanía Jónsdóttir, Pétur Sigurðsson, Guðbjörg Jónsdóttir, Árni Þór Árnason, Jóhann Gunnar Jónsson, Ásta Elín Grétarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Átt þú rétt á bílaleigubíi vegna tryggingatjóns? Hafðusambandvi&okkur! HURDAÞJÖNUSTA SUDURNESJA ehf. Uppsetning og þjónusta á bílskúrs- og iðnaðarhurðum Geri föst verðtilboð Sími 868 5253 - eddi1965@simnet.is Tíu milljóna króna afgangur varð að 340 milljóna króna halla Minnihlutinn í bæjar- stjórn Reykjanes- bæjar segir fjárhags- áætlanir Sjálfstæðismanna undanfarin ár hafa í engu stað- ist. Ár eftir ár séu lagðar fram áætlanir sem ekld standist sem gerir að verkum að skuldir sveitarfélagsins aukist sífellt, þrátt íyrir auknar tekjur bæj- arsjóðs. Sú fjárhagsáætlun sem lögð var fram í upphafi síðustu kosningabaráttu hafi í raun verið kosningapési og nú sé enn einn kosningavíx- illinn kominn fram. Þetta segir í harðorðri bókun sem Guðbrandur Einarsson (A) lagði fram fyrir hönd minni- hlutans á bæjarstjórnarfundi í gær þegar endurskoðuð fjárhagsáætlun 2006 var lögð fram. Bendir minnihlutinn á að 10 milljón krónu rekstrar- afgangur sé nú orðinn að 340 milljón króna halla í endur- skoðaðri áætlun. Böðvar Jónsson (D), formaður bæjarráðs, varð til svara í um- ræðu um málið og benti hann m.a. á að íbúafjölgun hafi orðið meiri en gert var ráð fyrir áætl- unni. Ljóst væri að þegar mikil uppbygging og fólksfjölgun væri í samfélaginu væri erfið- ara að gera haldbærar fjárhags- áætlanir. Rétt væri að nokkur breyting hafi orðið á áætluninni bæði hvað varðar skattekjur og launaliði sem hækkuðu frá upp- haflegri áætlun um 180 millj- ónir króna. Þar hafi borið hæst hækkun launa leikskólakenn- ara, heimild launanefndar til hækkunar lægstu launa, starfs- mat og nýja kjarasamninga BHM, að sögn Böðvars. Önnur rekstrargjöld hækkuðu um 140 milljónir frá því sem gert var ráð fyrir. Jon Guðlaugsson varaslökkviliðsstjóri BS skrifar: Nokkur heilræði til Suðurnesja- manna um brunavarnir Ágætu Suðurnesjabúar. Á aðventunni eru slökkviliðsmenn oft minntir á hve skammt er milli gleði og sorgar, gleði þegar jólin og áramótin ganga í garð með allri sinni ljósadýrð og þeirri eftirvæntingu sem fylgir und- irbúningi jólanna og svo þeirri sorg og örvænt- ingu sem hellist yfir fólk þegar eldur hefur lagt heimilið í rúst og ástvinir jafnvel slasast í elds- voða. Til að minnka hættu á eldsvoða er gott að hafa eftirfarandi atriði í huga: 1. Reykskynjarar, eldvarnarteppi og slökkvitæki eiga að vera á hverju heimili. 2. Aðgætið hvort reykskynjarar séu í lagi, það er gert með því að þrýsta á prófunarhnapp á reyk- skynjaranum þar til hljóðmerki heyrist, þetta þarf að gera mánaðarlega, endurnýja þarf rafhlöður árlega og líftími reykskynjara er 5-10 ár. Reykskynjarar eiga að vera í öllum herbergjum þar sem rafmagnstæki eru til staðar. 3. Gangið vel frá kertaskreytingum, þannig að þó kertin brenni niður, kvikni ekki í skreyting- unum, farið aldrei úr húsi án þess að slökkva á kertunum og slökkvið ávallt á þeim áður en farið er að sofa. Hafið aldrei logandi kerti þar sem börn eru við leik s.s. í barnaherbergjum. Staðsetning kertaskreytinga er mjög mikilvæg, gæta þarf sér- staklega að ekki séu brennanleg efni nálægt kerta- skreytingum s.s gardínur. 4. Notið viðeigandi hlífar þegar flugeldum er skotið, s.s. öryggisgleraugu og hanska, farið eítir þeim leiðbeiningum sem framleiðendur og söluað- ilar mæla með. 5. Gætið þess að framlengingarsnúrur séu heilar og yfirhlaðið ekki rafmagnsinnstungur Sé farið eftir þeim leiðbeiningum sem nefndar hafa verið hér að ofan minnkum við stórlega líkur á bruna og slysum. Að lokum. Starfsmenn Brunavarna Suðurnesja eru ávallt reiðubúnir að leiðbeina fólki um brunavarnir, séu einhverjar spurningar um brunavarnir hvort heldur er heima eða á vinnustað hafið þá sam- band við varðstofu slökkviliðsins í síma 421-4748. Starfsmenn Brunavarna Suðurnesja óska Suður- nesjamönnum gleðilegra jóla og gæfuríks kom- andi árs með þökk fyrir samstarf liðinna ára. Jón Guðlaugsson VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! VÍKURFRÉTTIR I 50. TÖLUBLAD • JÖLABLADIÐ 2006 I 27. ÁRGANGUR

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.