Víkurfréttir


Víkurfréttir - 14.12.2006, Side 55

Víkurfréttir - 14.12.2006, Side 55
2006 mwm ■ Björn B.Jónsson skrifar: okkar auðlind vegna landslags, gróðurfars, jarðfræði eða sögu. Þannig fá allir núlifandi og ófæddir Islendingar, sem og erlendir gestir, möguleika á að kynna sér sérstöðu landsins okkar. Því þarf að efla núverandi þjóð- garða enn frekar og huga að stofnun fleiri slíkra, til dæmis á Hekluslóðum. Auka þarf skógrækt og fram- fylgja stefnu stjórnvalda um að 5% láglendis verði skógi vaxið. Þannig má binda kolefni í andrúmslofti, skapa atvinnu og búa til náttúruauðlind fyrir kynslóðir framtíðarinnar. Mik- ilvægt er að vanda vinnubrögð, þannig að skógrækt falli vel að umhverfi landsins og geti orðið komandi kynslóðum mikil- vægur áfangastaður í leik og í starfi. Mikilvægt er að endurheimta fyrri landgæði með skipulagðri ræktun og uppgræðslu. Heklu- skógaverkefnið er góð fyrir- mynd og vinna þarf að því að hrinda af stað fleirum slíkum verkefnum. Komið verði á kolefniskvóta. Það gefur kolefnislosandi fyrir- tækjum kost á að binda kolefni með gróðursetningu trjáa og landgræðslu. Slíkt verkefni gæti orðið einn helsti vaxtarsproti í ís- lenskum landbúnaði á nýrri öld. Sett verði á laggirnar ný skóg- ræktar- og landgræðslustofnun sem tæki við hlutverki Skógrækt- arinnar og Landgræðslunnar og tæki auk þess við nýjum verk- efnum á sviði landvörslu. Hún myndi sjá um eftirlit, þróun og rannsóknir á fyrrgreindum sviðum. Slík stofnun gæti orðið í farabroddi á heimsvísu ef vel yrði staðið að stofnun hennar. Vönduð vinnubrögð og gott aðgengi að upplýsingum koma öllum aðilum til góða. Það er því þarft verkefni að klára skipu- lag landsins alls og gera skipu- lagsgögn og landupplýsingar aðgengilegar á einfaldan hátt. Framfarir í upplýsingatækni gerir slíkt mun auðveldara en áður. Björn B. Jónsson Höfundur gefur kost á sér í 2.-3. sceti íprófkjöri Fram- sóknatflokksins til alþingis- kosninga í Suðurkjördœmi. Ósleum öllum ^eim sem kafa sýnt okkur vinarkug og glatt með keimsóknum, gleðilegra jóla og farsælkar á nýju ári. Guð klessi ykkur öll. Vistmenn Hlévangi. Nœsta blað fimmtudaginn 21. desember. Verið tímanlega með auglýsingar! 1 Sencfum Suðurnesjamönnum bestu ósCír um gCeðíCegjóf ogfarsœCt nýtt ár. fiöCCum víðsCvptín á árínu sem er að Cíða. vkmÁ* H/ IÐAVÖLLUM 6 - 230 KEFLAVÍK - SlMI 421 4700 - FAX 421 3320 Umhverfíð er ið íslendingar lifum við velsæld. Hér er lítið sem ekkert at- vinnuleysi og að gengi að menntun og þjónustu er með því besta sem gerist í heim in um. Þessi velsæld er svo sann- arlega ekki sjálfsprottin. Fjöl- margar kynslóðir íslendinga í gegnum tíðina hafa lagt grunn- inn að okkar velmegun með eljusemiogdugnaði. Eníslend- ingum hefði líklega ekki tekist að byggja upp slíkt þjóðfélag ef ekki hefðu komið til nátt- úruauðlindir á landi og í sjó. Þannig tengjast náttúran, efna- hagsástand og samfélag mann- anna órjúfanlegum böndum. Það er þvi sameiginlegt verk- efni okkar allra, sem núna njótum ávaxta fyrri kynslóða, að búa svo um hnútana að kynslóðir framtíðarinnar búi við sama aðgengi að náttúru- auðæfum og fyrri kynslóðir. Á tímum uppgangs í efnahags- lífinu er þó auðvelt að gleyma því að það eyðist sem af er tekið. Þess vegna er mikilvægt að mörkuð verði skýr stefna í umhverfismálum þjóðarinnar, sem almenningur, fyrirtæki og stjórnvöld geta staðið saman að. Fjölmörg verkefni eru þegar farin af stað, en betur má ef duga skal. Hér að neðan má sjá dæmi um verkefni sem hægt væri að hleypa af stokk- unum á næstu misserum: Þjóðgarðar eru kjörin leið til að varðveita sérstæð svæði, t.a.m. STÆRSTA FRÉTTA- 0G AUGLÝSINGABLAÐiÐ Á SUÐURNESJUM VÍKURFRÉTTIR I FIMMTUDAGURINN 14. DESEMBFR 2006 S5

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.