Víkurfréttir - 14.12.2006, Qupperneq 58
■ Ólafur Sæmundsson skrifar:
Leiðrétting
Varðandi bréf sem birt-
ist í Víkurfréttum í
síðustu viku undir
titlinum :
„Iþróttaaka-
dcmían á villi-
jBEjL ^ götum varð-
tL' £ , andi næring-
arfræði" vill
undirritaður
I koina eftirfar-
andi á fram-
færi. Undirritaður gerði þau
regin mistök að leita ekki eftir
samþykki um undirskrift sam-
nefndarmanna vegna kaflans
sem fjallaði um Iþróttaaka-
demíuna. Reyndar fékk hann
einn nefndarmanna til að lesa
kaflann yfir og sá gerði engar
athugasemdir við efnistök.
Engu að síður er það kristal-
tært að undirritaður gerði sig
sekan um ófagleg vinnubrögð
sem hann að sjálfsögðu tekur
fulla ábyrgð á og biðst á því
afsökunar. Það er því ljóst að
kaflinn sem tjallar um Iþrótta-
akademíuna er alfarið á hans
ábyrgð!
Undirritaður vill biðja Víkur-
fréttir góðfúslega að birta leið-
réttingu þessa um leið og hann
óskar að sjálfsögðu íþróttaaka-
demíunni alls góðs enda veit
hann að þar fer fram gott starf
þó hann telji ekki eðlilegt að
Íþróttaakademían, sem er skóli
á háskólastigi, sé að leggja nafn
sitt við næringartengda fyrir-
lestra eða námskeið í umsjón
aðila sem hafa enga háskóla-
menntun eða faglega þekkingu
að baki sér í næringarfræði.
Ólafnr G. Sœmundsson,
nœringatfrœðingur
■ Geir Sveinsson skrifar:
Elskuleg móðir okkar, tengdamóöir, amma
og langamma,
Guöríöur Guömundsdóttir,
Hólabraut 2,
Keflavík,
verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 15.
desember nk. kl. 14.00.
Sverrir Jóhannsson, Ingibjörg Guðnadóttir,
Einar Jóhannsson, Hjördís Brynleifsdóttir,
Guðlaug Jóhannsdóttir, Ómar Steindórsson,
Þórunn Jóhannsdóttir, Eiríkur Hansen,
ömmu- og langömmubörn.
íþróttaakademían á réttri braut
varðandi næringarfræði!
Fyrir viku síðan birtist á
síðum Víkurfrétta grein
undir fyrirsögninni
„íþróttaaka-
demían á villi-
götum varð-
andi næringar-
fræði“ Undir
þessa grein eru
skrifuð nær-
ingarfræðing-
arnir Sigríður
Eysteinsdóttir, Ólöf Guðný
Geirsdóttir, Ólafur Sæmunds-
son og Hildur Atladóttir fyrir
hönd næringarhóps Matvæla-
og næringafræðifélag íslands.
Síðan hefur komið í ljós að
Ólafur Sæmundsson, sem skrif-
aði þessa grein, tók sér það bessa-
leyfi að setja nöfn hinna þriggja
undir, án þeirra samþykkis, auk
þess sem greinin er alls ekki
skrifuð fyrir hönd næringarhóps
Matvæla- og næringarfræðifélag
íslands. Verð ég að lýsa furðu
minni á þessum vinnubrögðum
sem ekki þykja traustvekjandi
og vekja upp spurningar um
tilgang skrifanna. Það er því
Ólafur Sæmundsson einn, sem
stendur á bak við þessi skrif.
En að skrifunum sjálfum sem ég
tel skyldu mína og í raun nauð-
synlegt að gera athugasemdir
við.
Ólafur Sæmundsson, telur sig
tilneyddan að senda þetta bréf
vegna þeirrar staðreyndar að
Íþróttaakademía Reykjanes-
bæjar hafi staðið fyrir næring-
artengdum námskeiðum/fyrir-
lestrum sem hafi verið í umsjón
aðila sem titla sig næringar-
þerapista auk þess sem hann
kvartar yfir því að ekki skuli
vera leitað til næringarmennt-
aðra einstaklinga, sem sagt hans
eða annara næringarfræðinga,
til námskeiða- og fyrirlestra-
halds.
Til þess að leiða fólk í allan sann-
leika um þetta mál langar mig
að benda á að við íþróttaaka-
demíuna eru nú starfandi við
kennslu og fræðslu Ingibjörg
Gunnarsdóttir, Inga Þórsdóttir
og Alfons Ramel, öll löggildir
doktorsmenntaðir næringar-
fræðingar, auk þess sem nær-
ingarfræðingarnir Helga Sig-
urðardóttir, Borghildur Sigur-
bergsdóttir og Sigríður Eysteins-
dóttir hafa haldið fyrirlestra
og komið að námskeiðahaldi
hér við I’þróttaakademíuna sl.
mánuði. Það skýtur því heldur
betur skökku við að sjá þessi
skrif þar sem ráðist er að starf-
semi Íþróttaakademíunnar með
þessum hætti.
fþróttaakademían í Reykja-
nesbæ hefur kappkostað frá
fyrsta degi að sinna flestu því
sem viðkemur íþróttum og
heilsu og er næringarfræði þar
klárlega mikilvægur þáttur.
Næringarfræði er viðurkennd
vísindagrein og liggja þau vís-
indi að sjálfsögðu til grund-
vallar allri næringarfræðslu í
Íþróttaakademíunni. Hins vegar
eru skiptar skoðanir um eitt og
annað sem viðkemur næringar-
fræði og má segja að kenningar/
skoðanir manna skiptist í tvo
hópa. Annars vegar þær kenn-
ingar sem löggildir næringafræð-
ingar og ráðgjafar halda fram
og hins vegar sífellt háværari
skoðanir hóps fólks sem kalla
sig næringaþerapista og hafa
verið flokkuð undir hin óhefð-
bundnu viðhorf. Ekki er það
ætlun mín hér að ræða skoðanir
þessara hópa en við hjá fþrótta-
akademíunni höfum kosið að
nýta okkur fræðslu og þekkingu
beggja hópa.
Skýrt skal tekið fram að enn
hefur ekkert námskeið eða fyr-
irlestur verið haldinn á þessu
starfsári þar sem næringa-
þerapisti hefur komið við sögu.
Hins vegar stendur til í febrúar
n.k. að Inga Kristjánsdóttir nær-
ingarþerapisti haldi tvo fyrir-
lestra þar sem hún mun taka
fyrir annars vegar þreytu, slen
og orkuleysi og hins vegar „Ein-
földu leiðina“ þar sem kenna
á fólki notkun á lífrænum mat-
vörum.
Eins og fram kemur í títtnefndri
grein þá eiga hin óhefðbundnu
viðhorf fyllilega rétt á sér og í
raun nauðsynleg til þess að
skapa frjóa og gagnlega um-
ræðu um málefni næringar-
fræðanna, sérstaklega í ljósi sí-
vaxandi offitu og sjúkdóma sem
m.a. má klárlega rekja til versn-
andi matarræðis almennings.
Það er því á engan hátt verið að
ögra viðurkenndum viðhorfum
innan heibrigðisgreina þó það
sé stefna fþróttaakademíunnar
að kynna einnig hin óhefð-
bundnu viðhorfþví það er mark-
mið okkar að starfa með við-
urkenndum vísindamönnum,
jafnt næringarfræðingum sem
öðrunt, hér eftir sem hingað til.
Skrif sem þessi tel ég því vera
algjörlega óviðeigandi og í besta
falli byggð á vanþekkingu og for-
dómum. í versta falli eru skrifin
illkvittin og rætin og til þess
eins að grafa undan og skaða
starfsemi Íþróttaakademíunnar
í Reykjanesbæ.
Fyrir hönd
Íþróttaakademíunnar
í Reykjanesbæ.
Geir Sveinsson
framkvœmdastjóri.
Varðandi grein undir yfirskriftinni
„fþróttaakademían á villigötum
varðandi næringarfræði“
Itilefni af grein sem birt-
ist í Víkurfréttur undir
yfirskriftinni „fþrótta-
akadcmían á villigötum varð-
andi tiæringarfræði" og leið-
réttingu 10/12 sl. óskar und-
irrituð eftir því að eftirfar-
andi athugasemd verði birt í
blaðinu: „I tilefni af grein sem
birtist í Víkurfréttum undir yf-
irskriftinni „Íþi'óttaakademían
á villigötum varðandi næring-
arfræði11 og leiðréttingu Ólafs
Sæmundssonar 10. desember
sl. vil undirrituð taka fram að
greinin var birt án nokkurs
samráðs eða samþykkis und-
irritaðar og nafn mitt notað í
óleyfi. Ég harma það að það
hafi verið vegið að íþróttaaka-
demíunni með þessum hætti
og því ágæta starfi sem þar er
unnið“.
ÓlöfGuðný Geirsdóttir
58 IVÍKURFRÉTTIR I 50. TÖLUBLAÐ -JOLABLAÐIÐ 2006 I 27. ARGANGUR
VIKURFRÉTTIR Á NETINU -www.vf.is- LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!