Víkurfréttir - 14.12.2006, Page 74
GUÐJÓN GUÐMUNDSSON Á ÓTRÚLEGT SAFN UM VÍÐISMENN
Knattspyrnufélagið
Víðir í Garði fagnaði
á dögunum 70 ára af-
mælisínuog af þvítil-
efni hittu Víkurfréttir
á einn ástsælasta leik-
mann Víðis í gegnum
tíðina. Guðjón Guð-
mundsson erfæddur
og uppalinn Garðbúi
ogvarfyrirliði Víðis
þegar frægðarsól fé-
lagsins reis sem hæst.
Árið 1984 unnu Víð-
ismenn sér inn sæti í
1. deildinni, nú Lands-
bankadeildin, ífyrsta
sinn í sögu félagsins.
ftarleg heimildaskráning
Guðjón hélt vel utan um sinn
tíma hjá Víði og safnaði úr-
klippum og hélt utan um töl-
fræði liðsins allt frá árinu 1977
eða þegar hann hóf leik með
félaginu. Fyrsti leikur Guðjóns,
ef hann minnir rétt, var gegn
Grindavík í Suðurnesjamótinu.
„Ég lék með Víði allan minn
feril allt til 1993 en undir lokin
var ég einnig spilandi þjálfari,”
sagði Guðjón sem nú er bú-
settur í Reykjanesbæ.
Leiðin á toppinn
Marteinn Geirsson tók við Víðis-
mönnum árið 1984 sem spilandi
þjálfari og fór með liðið í fyrsta
sinn í sögu félagsins upp í efstu
deild. „Þetta ár fórum við upp í
1. deild með FH og við mættum
Njarðvíkingum í lokaleik 2.
deildar og við urðum að vinna
til þess að komast upp,” sagði
Guðjón sællar minningar. Yfir
600 manns rnættu á leik Víðis
og Njarðvíkinga sem Víðismenn
unnu að lokum 2-1. „Maður
heyrði ekki neitt í samherjum
sínum, áhorfendur mættu með
þokulúðra og það var gríðarleg
stemmning á vellinum,” sagði
Guðjón sem er hafsjór af fróð-
leik um Víði og var ekki lengi
til svara þegar hann var inntur
eftir því hverjir hefðu gert mörk
Víðis í leiknum. „Guðmundur
Jens Knútsson og Klemenz Sæ-
mundsson, þessi leikur lifir vel
í minningunni og það var barist
allt þar til flautan gall. Njarðvík-
ingarnir létu okkur hafa vel fyrir
sigrinum en við höfðum þetta á
endanum,” sagði Guðjón.
„Hjólari” á heimavelli
Fyrsta árið í efstu deild var erfitt
fyrir Víðsmenn en með naum-
indum náðu þeir að halda sér
uppi í deildinni og í síðasta leik
tímabilsins gerði Guðjón sitt
eftirminnilegasta mark. „Menn
gantast enn með að þetta sé
lægsta hjólhestaspyrna sem
þeir hafa séð, engu að síður fór
boltinn í netið og við komumst
yfir 2-1,” sagði Guðjón kátur en
Víðir vann leikinn 3-2 og var
það Einar Ásbjörnsson sem
gerði hin tvö rnörk Víðismanna.
Árið eftir náðu Víðismenn enn
að halda sér á floti í deildinni
en tímabilið 1987 féll liðið aftur
niður í 2. deild. Þetta sama ár
lék Víðir sinn fyrsta og eina bik-
arúrslitaleik þar sem þeir máttu
þola 5-0 tap gegn Fram. „Ég
sagði í fjölmiðlum eftir leikinn
að við myndum vinna næstu
tvo leiki, sem voru gegn ÍA
og KR, það stóð heima en við
féllum engu að síður en okkur
vantaði aðeins eitt rnark til þess
að halda okkur uppi.”
Nlður, upp og niður
„Óskar Ingimundarson tók við
sem þjálfari Víðis 1989 og þá
munaði minnstu að við færum
upp en okkur tókst svo að kom-
ast aftur á meðal þeirra bestu
árið 1990 og unnum þá 2. deild
með miklum yfirburðum. Eftir
það tímabil virtist eins og botn-
rSteinar
T v -V
»V „aiemar •£ ■ - /T
Ingimúndarson á ,
- „sokkábandsárumf1® / fr., .
Sínúmlfijá Víði/; .Ka/v % i H
„sokkaDandsarum;-
sínúmlhjá Viði. >• v. j
Hann er núna^f
- karlinn i brúnni^.V <4/ *- IfW^'Í
!%■ y
• ' •’ ^i iri
&
74 IVÍKURFRÉTTIR I 50. TÖLUBLAÐ -JÓLABLAÐIÐ 2006 I 27. ÁRGANGUR
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU • www.vf.is • LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!