Fréttablaðið - 19.08.2017, Page 12

Fréttablaðið - 19.08.2017, Page 12
Flugvirkjanám Markvisst, sérhæft og faglegt nám fyrir þá sem hafa áhuga á vélum, rafmagni og flóknum tækjabúnaði. Samstarf við alla helstu flugrekendur og viðhaldsstöðvar á Íslandi. Kennsla fer fram á ensku. Nánari upplýsingar um verð og námsskipulag má finna á heimasíðu Flugskóla Íslands (flugskoli.is) en námið er lánshæft hjá LÍN. Námið hefst 4. september. Umsóknir og fyrirspurnir sendist á petur@flugskoli.is Unnið í samstarfi við Resource Group, Aviation Technical Training division (LRTT Ltd) sem er viðurkenndur EASA Part 147 þjálfunaraðili með aðalstöðvar í Bretlandi. Alþjóðlegt verknám með mikla atvinnumöguleika C M Y CM MY CY CMY K halfsida-flugvirki.pdf 1 8/17/2017 2:15:48 PM Spánn Markmiðið með árás hryðju- verkamanna Íslamska ríkisins (ISIS) á Römbluna í Barcelona var að setja þrýsting á spænsk stjórnvöld og spænskan almenning í þeirri von að Spánn dragi sig út úr hernaðar- bandalaginu gegn ISIS. Þessu hélt Mina al-Lami, greinandi BBC, fram á vefsíðu breska ríkisútvarpsins í gær. Rás ISIS á spjallforritinu Telegram birti í kjölfar árásarinnar fjölda inn- leggja, bæði á arabísku og spænsku, þar sem þeim skilaboðum var beint til Spánverja að ríkisstjórn þeirra bæri ábyrgð á árásinni. „Spánverjar. Ekki flykkjast út á götur til að mótmæla hryðjuverk- um, það er tilgangslaust. Þrýstið frekar á ríkisstjórn ykkar og fáið hana til að draga Spán úr þessu krossfararbandalagi,“ stóð í einum skilaboðum. Í öðrum skilaboðum stóð að fleiri árása væri að vænta. „Spánverjar. Það sem gerðist í Barcelona er bara byrjunin.“ Al-Lami hélt því jafnframt fram að miðausturlenskir hryðjuverka- menn litu á árásirnar í Madríd árið 2004 sem fullkomið dæmi um vel heppnaða árás. Árásin var gerð þremur dögum fyrir þingkosningar á Spáni og og átti drjúgan þátt í því að Spánverjar drógu hermenn sína heim frá Írak. Tala látinna hækkaði í fjórtán í gær en margir liggja enn þungt haldnir á sjúkrahúsi og þá felldi lögregla einnig fimm sem grunaðir eru um aðild að árásinni í bænum Cambrils. Umfangsmikil leit var í gær gerð að hinum marokkóska Moussa Oukabir, sem talinn er hafa keyrt sendiferðabíl niður Römbluna með fyrrnefndum afleiðingum. Seint í gærkvöldi var greint frá því að Oukabir hefði verið á meðal þeirra sem lögregla skaut til bana í Cam- brils. Spænskir fjölmiðlar greindu frá því að Oukabir hefði leigt tvo sendi- ferðabíla, annan til að fremja voða- verkið og hinn til þess að sleppa. Driss Oukabir, bróðir Moussa, var eftirlýstur um stund en skilríki hans voru notuð til að leigja bílana. Hann gaf sig fram á miðvikudag og sagðist saklaus, skilríkjum hans hefði verið stolið. Þá leitar lögregla einnig að þeim Said Aallaa, Mohamed Hychami og Younes Abouyaaqoub. Allir eru þeir fæddir í Marokkó. Katalónska lögreglan greindi frá því í gær að til hefði staðið að gera mun stærri árásir en þá sem gerð var á Römbluna. Á miðvikudag sprungu gastankar í húsi í smábænum Alc- anar, suður af Barcelona. Sagði lög- regla að þar hefðu fundist um tutt- ugu gastankar sem voru útbúnir til þess að nota í stórum árásum. Mariano Rajoy, forsætisráð- herra Spánar, lýsti í gær yfir þriggja daga þjóðarsorg á Spáni. Þá munu Spánverjar heiðra hina látnu með mínútu þögn í hádeginu í dag, eða klukkan 10.00 að íslenskum tíma. thorgnyr@frettabladid.is Vildu þrýsta á kjósendur og stjórnvöld Íslamska ríkið vill að Spánverjar dragi sig úr hernaðarbandalaginu gegn ISIS. Fjórtán eru nú látnir eftir árásina á Römblunni í Barce- lona. Lögregla fann tuttugu gastanka, útbúna til þess að nota í stórum árásum á Barcelona. Þriggja daga þjóðarsorg lýst yfir á Spáni. Þjóðarsorg ríkir nú á Spáni vegna hryðjuverkaárásarinnar. NordicphotoS/AFp Spánverjar. Það sem gerðist í Barcelona er bara byrjunin. Af samskiptarás ISIS í spjallforritinu Telegram 1 9 . á g ú S t 2 0 1 7 L A U g A R D A g U R12 f R é t t i R ∙ f R é t t A B L A ð i ð 1 9 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :2 6 F B 1 1 2 s _ P 1 0 8 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 1 0 1 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 8 3 -F 9 D 0 1 D 8 3 -F 8 9 4 1 D 8 3 -F 7 5 8 1 D 8 3 -F 6 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 1 1 2 s _ 1 8 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.