Fréttablaðið - 19.08.2017, Blaðsíða 12
Flugvirkjanám
Markvisst, sérhæft og faglegt nám fyrir þá
sem hafa áhuga á vélum, rafmagni og
flóknum tækjabúnaði.
Samstarf við alla helstu flugrekendur og
viðhaldsstöðvar á Íslandi. Kennsla fer fram á ensku.
Nánari upplýsingar um verð og námsskipulag má finna á
heimasíðu Flugskóla Íslands (flugskoli.is)
en námið er lánshæft hjá LÍN.
Námið hefst 4. september.
Umsóknir og fyrirspurnir sendist á petur@flugskoli.is
Unnið í samstarfi við Resource Group,
Aviation Technical Training division (LRTT Ltd) sem
er viðurkenndur EASA Part 147 þjálfunaraðili með
aðalstöðvar í Bretlandi.
Alþjóðlegt verknám með mikla atvinnumöguleika
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K
halfsida-flugvirki.pdf 1 8/17/2017 2:15:48 PM
Spánn Markmiðið með árás hryðju-
verkamanna Íslamska ríkisins (ISIS)
á Römbluna í Barcelona var að setja
þrýsting á spænsk stjórnvöld og
spænskan almenning í þeirri von
að Spánn dragi sig út úr hernaðar-
bandalaginu gegn ISIS. Þessu hélt
Mina al-Lami, greinandi BBC, fram á
vefsíðu breska ríkisútvarpsins í gær.
Rás ISIS á spjallforritinu Telegram
birti í kjölfar árásarinnar fjölda inn-
leggja, bæði á arabísku og spænsku,
þar sem þeim skilaboðum var beint
til Spánverja að ríkisstjórn þeirra
bæri ábyrgð á árásinni.
„Spánverjar. Ekki flykkjast út á
götur til að mótmæla hryðjuverk-
um, það er tilgangslaust. Þrýstið
frekar á ríkisstjórn ykkar og fáið
hana til að draga Spán úr þessu
krossfararbandalagi,“ stóð í einum
skilaboðum.
Í öðrum skilaboðum stóð að fleiri
árása væri að vænta. „Spánverjar.
Það sem gerðist í Barcelona er bara
byrjunin.“
Al-Lami hélt því jafnframt fram
að miðausturlenskir hryðjuverka-
menn litu á árásirnar í Madríd árið
2004 sem fullkomið dæmi um vel
heppnaða árás. Árásin var gerð
þremur dögum fyrir þingkosningar
á Spáni og og átti drjúgan þátt í því
að Spánverjar drógu hermenn sína
heim frá Írak.
Tala látinna hækkaði í fjórtán
í gær en margir liggja enn þungt
haldnir á sjúkrahúsi og þá felldi
lögregla einnig fimm sem grunaðir
eru um aðild að árásinni í bænum
Cambrils.
Umfangsmikil leit var í gær gerð
að hinum marokkóska Moussa
Oukabir, sem talinn er hafa keyrt
sendiferðabíl niður Römbluna með
fyrrnefndum afleiðingum. Seint
í gærkvöldi var greint frá því að
Oukabir hefði verið á meðal þeirra
sem lögregla skaut til bana í Cam-
brils.
Spænskir fjölmiðlar greindu frá
því að Oukabir hefði leigt tvo sendi-
ferðabíla, annan til að fremja voða-
verkið og hinn til þess að sleppa.
Driss Oukabir, bróðir Moussa, var
eftirlýstur um stund en skilríki hans
voru notuð til að leigja bílana. Hann
gaf sig fram á miðvikudag og sagðist
saklaus, skilríkjum hans hefði verið
stolið.
Þá leitar lögregla einnig að þeim
Said Aallaa, Mohamed Hychami og
Younes Abouyaaqoub. Allir eru þeir
fæddir í Marokkó.
Katalónska lögreglan greindi frá
því í gær að til hefði staðið að gera
mun stærri árásir en þá sem gerð var
á Römbluna. Á miðvikudag sprungu
gastankar í húsi í smábænum Alc-
anar, suður af Barcelona. Sagði lög-
regla að þar hefðu fundist um tutt-
ugu gastankar sem voru útbúnir til
þess að nota í stórum árásum.
Mariano Rajoy, forsætisráð-
herra Spánar, lýsti í gær yfir þriggja
daga þjóðarsorg á Spáni. Þá munu
Spánverjar heiðra hina látnu með
mínútu þögn í hádeginu í dag, eða
klukkan 10.00 að íslenskum tíma.
thorgnyr@frettabladid.is
Vildu þrýsta á kjósendur og stjórnvöld
Íslamska ríkið vill að Spánverjar dragi sig úr hernaðarbandalaginu gegn ISIS. Fjórtán eru nú látnir eftir árásina á Römblunni í Barce-
lona. Lögregla fann tuttugu gastanka, útbúna til þess að nota í stórum árásum á Barcelona. Þriggja daga þjóðarsorg lýst yfir á Spáni.
Þjóðarsorg ríkir nú á Spáni vegna hryðjuverkaárásarinnar. NordicphotoS/AFp
Spánverjar. Það
sem gerðist í
Barcelona er bara byrjunin.
Af samskiptarás ISIS
í spjallforritinu Telegram
1 9 . á g ú S t 2 0 1 7 L A U g A R D A g U R12 f R é t t i R ∙ f R é t t A B L A ð i ð
1
9
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
8
3
-F
9
D
0
1
D
8
3
-F
8
9
4
1
D
8
3
-F
7
5
8
1
D
8
3
-F
6
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
1
2
s
_
1
8
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K