Fréttablaðið - 19.08.2017, Side 16
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is
aðStoðarritStjórar: Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kjartan Hreinn Njálssson kjaranh@frettabladid.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.
Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000,
ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson
magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
Gunnar
Kristín
Þorsteinsdóttir
Þó verður að
segjast að það
skýtur
skökku við
að banki sem
á fyrri árs-
helmingi
ársins 2017
hagnaðist um
8 milljarða
sjái sér ekki
fært að taka á
sig kostnað
sem í stóra
samhenginu
getur vart
talist annað
en smápen-
ingar.
Mín skoðun Logi Bergmann
Laus pláss er enn fyrir nemendur á haustönn 2017.
Skólastarf hefst miðvikudaginn 23. eptember.
Kynnið ykkur heimasíðu skólans sem er: hússtjórnarskólinn.is
Hægt er að senda umsóknir í gegn um heimasíðu skólans
eða á netfangið husrvik@centrum.is
Hússtjórnarskólinn í Reykjavík
Reykjavíkurmaraþonið fer fram í dag í 33. skipti. Maraþonið hefur fyrir löngu skipað sér sess sem einn af stærstu almenn-ingsviðburðum á Íslandi. Tugir þúsunda fólks á öllum aldri safnast saman í miðborg Reykjavíkur. Sumir hlaupa, aðrir fylgjast
með og hvetja hlauparana.
Viðburðir á borð við Reykjavíkurmaraþonið eru
samfélaginu mikilvægir. Hlaupnar eru vegalengdir sem
henta öllum, ungum sem öldnum, vönum og óreynd-
um. Þeir allra hörðustu hlaupa maraþon, hálfmaraþon
eða tíu kílómetra og berjast bæði við sjálfa sig og aðra
hlaupara. Einnig er í boði skemmtiskokk fyrir fjöl-
skyldur eða þá sem láta sér skemmri vegalengdir nægja,
og fyrir þau allra yngstu er furðufatahlaup.
Allir ættu að geta fundið sér eitthvað við hæfi í
Reykjavíkurmaraþoninu. Í því eru einmitt fólgin skila-
boð sem vel hefur tekist að koma áleiðis á seinni árum.
Hlaup og hreyfing er ekki bara fyrir þrautþjálfaða mara-
þonhlaupara, heldur fyrir alla. Hreyfing er ekki bara
mikilvæg einstaklingnum, heldur samfélaginu í heild.
Reykjavíkurmaraþonið er sannkölluð hreyfingar-
hátíð.
Fyrir Reykjavíkurmaraþoninu stendur Íþrótta-
bandalag Reykjavíkur, sem eru samtök íþróttafélaganna
í Reykjavík. Íslandsbanki, og forveri þess banka, hefur
um árabil verið helsti bakhjarl hlaupsins. Reykjavíkur-
maraþonið ber nafn bankans og allt kynningarefni
hlaupsins, merki bankans og auglýsingar bera auðkenni
sem minna á bankann. Sennilega er stuðningurinn við
hlaupið stærsta markaðsátak Íslandsbanka á ári hverju,
og nokkuð sem tryggir honum athygli og umfjöllun
undir jákvæðum formerkjum.
Á seinni árum hafa áheitasafnanir færst í aukana.
Hlauparar velja sér gott málefni og safna áheitum. Á
síðasta ári söfnuðust 96 milljónir króna með þessum
hætti, og vænta má að það met verði slegið núna.
Það sem ekki allir vita er að þær upphæðir sem
safnast gegnum síðuna hlaupastyrkur.is renna ekki
óskiptar til þeirra góðu málefna sem hlauparar hafa
valið sér. Á síðunni, sem Íslandsbanki rekur og er kirfi-
lega merkt bankanum í auglýsingaskyni, kemur fram að
10% söfnunarfjár að hámarki fari í kostnað við rekstur
vefsins, greiðslu færslugjalda og fleira. Í fyrra var þessi
kostnaður um fimm milljónir króna.
Ekki skal gert lítið úr stuðningi Íslandsbanka við
Reykjavíkurmaraþonið sem hefur verið veglegur
gegnum árin, og vafalaust átt þátt í því að hefja hlaupið
til vegs og virðingar. Þó verður að segjast að það skýtur
skökku við að banki sem á fyrri árshelmingi ársins 2017
hagnaðist um átta milljarða sjái sér ekki fært að taka
á sig kostnað sem í stóra samhenginu getur vart talist
annað en smápeningar. Hreinlegra væri að styrktarféð
rynni óskipt í góðan málstað.
Því skal tækifærið notað hér og skorað á Íslands-
banka að leggja þetta fyrirkomulag af, og sjá til þess að
þau áheit sem berast vegna hlaupsins renni óskert til
góðra málefna. Jafnvel þótt það kosti bankann ein-
hverjar krónur og aura.
Hreyfingarhátíð
Ég afrekaði það sem ungur maður að fara til Aust-ur-Þýskalands. Meira að segja tvisvar. Það var í alla staði mjög áhugavert og ýmislegt sem mér er
minnisstætt. Eitt fannst mér sérlega merkilegt. Það var
þegar ég spurði hvort við mættum taka myndir. Leið-
sögumaðurinn leit í kringum sig og sagði svo: „Ef það
er ekki leyft, þá er það sennilega bannað.“
Nú ætla ég ekki að líkja Íslandi við Austur-Þýska-
land. En stundum finnst mér eins og kerfið á Íslandi
sé að reyna að taka ráðin af fólki sem kannski vill
bara fá að taka sínar eigin ákvarðanir og mæta
afleiðingunum.
Sennilega er rétt að taka dæmi. Víða um heim er
hægt að fara á sérstök kisukaffihús. Þar eru, eins og
nafnið bendir til, kettir. Jafnvel margir og hluti af
viðskiptahugmyndinni er að fólk, sem kemur á kaffi-
húsið, vilji vera með köttum. Hljómar bæði einfalt og
sanngjarnt. En ekki á Íslandi.
Best að banna það bara
Hér er bannað að opna kisukaffihús. Það er bara
bannað og örugglega með rökum sem einhverjum
finnst fullkomlega eðlileg. Það er meira að segja
bannað að leyfa eitt einasta dýr inni á kaffihúsi eða í
strætó eða flugvél. Nema blindrahunda. Þeir virðast
vera ofnæmisprófaðir. Það hlýtur í það minnsta að
vera því rökin eru einna helst þau að þetta sé gert
fyrir fólk með ofnæmi fyrir dýrum. En hér er brjáluð
hugmynd: Væri ekki frekar ólíklegt að fólk með akút
ofnæmi fyrir dýrum myndi fara inn á kaffihús sem
væri fullt af köttum? Væri það ekki jafn líklegt og að
ég álpaðist sjálfviljugur inn í gardínubúð?
Hvernig tókst okkur þetta?
Í höfuðborg Evrópusambandsins er skemmtilegt
veitingahúsahverfi sem samanstendur af litlum og
notalegum veitingahúsum. Sum þeirra státa af sínum
eigin ketti sem snuddast utan í gestunum, sníkir
kannski einn og einn bita og er bara ofboðslega
krúttlegur, eins og katta er siður. Í ljósi þess að okkur
er stundum sagt að Evrópusambandið ákveði allt
fyrir okkur, kemur bara tvennt til greina: Íslendingar
hafa þróað með sér ofurofnæmi fyrir köttum og
dýrum almennt eða (og það sem mér finnst líklegra)
að embættismenn hafi bara ekki séð ástæðu til að
leyfa svona lagað. Eða öllu heldur sleppa að banna
það.
Reyndar bendir margt til þess. Í reglugerð um holl-
ustuhætti er sérstaklega tekið fram að gæludýr (sem
er, samkvæmt reglugerðinni, „… hvert það dýr sem
haldið er til afþreyingar“) megi ekki vera á húðflúr-
stofum og sólbaðsstofum! Segjum sem svo að ég væri
að keyra mig í gang fyrir helgina og ætli að skella á
mig góðri ermi og henda mér í tvöfaldan túrbótíma.
Væri krúttlegur kettlingur það helsta sem ég ætti að
hafa áhyggjur af? Og ég sver að ég er ekki að búa þetta
til! Hvernig í ósköpunum tókst okkur að búa til kerfi
sem gefur sér tíma til að banna gæludýr á sólbaðs-
stofum?
Er ekki kominn tími til að leyfa okkur bara að taka
áhættuna? Án þess að ég sé að gera lítið úr ofnæmi
fólks, er ekki líklegt að það myndi bara fara eitthvað
annað? Og ef í ljós kæmi að það væru svona rosalega
margir með ofnæmi eða annað óþol fyrir dýrum, þá
færi staðurinn bara á hausinn. Þá myndum við að
minnsta kosti vita það.
Kannski lagast þetta á jólaföstunni.
Bannað án leyfis
Það er meira að segja bannað að leyfa eitt
einasta dýr inni á kaffihúsi eða í strætó eða
flugvél. Nema blindrahunda. Þeir virðast
vera ofnæmisprófaðir.
1 9 . á g ú s t 2 0 1 7 L A U g A R D A g U R16 s k o ð U n ∙ F R É t t A B L A ð i ð
SKOÐUN
1
9
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
1
1
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
8
3
-D
2
5
0
1
D
8
3
-D
1
1
4
1
D
8
3
-C
F
D
8
1
D
8
3
-C
E
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
1
2
s
_
1
8
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K