Fréttablaðið - 19.08.2017, Side 20
Um helgina, af hverju ekki að....
Hlusta
Hildur
Friðriksdóttir,
blaðamaður
á Vikunni,
heillaðist af
tónlistinni
úr norsku
unglingaþátt
unum Skam.
„Ég mæli með
tónlist Astrid S
og Highasakite.“
lesa
Pnín eftir Vlad
imir Nabokov er
nýútkomin í ís
lenskri þýðingu
Árna Óskars
sonar. Sagan
þykir fyndin
og fjallar um
skondinn
rússneskan og
landflótta há
skólakennara
í Banda
ríkjunum
á sjötta
áratugnum. Þótt Nabokov sé
þekktastur fyrir skáldsögu sína
Lolitu þá telja margir Pnín vera
hans skemmtilegasta verk.
slær gras-
blettinn
Elísabet Gunn
arsdóttir, við
skiptafræðingur
og bloggari á
Trendneti, hefur
ferðast mikið
undanfarið og
kynnt sér línur
tískuhúsanna.
„Þessa helgina
verð ég heima
og ætla að
reyna að slaka
á. Vera með
fjölskyldunni og
jafnvel slá gras
blettinn.“
borða
Farðu á nýopnaða Mathöll á
Hlemmi sem lengi hefur verið
beðið og bragðaðu á veiting
um. Fyrirmynd Mathallarinnar
eru evrópskar mathallir og
opnunin markar skemmtileg
tímamót í sögu miðborgarinnar.
Kaffihúsið á Kjarvals-stöðum verður opið um helgina eftir langt hlé. Aðstaðan hefur ve r i ð e n du r g e r ð og bætt. „Það var
kominn tími til þess að fríska upp á
kaffihúsið og aðstöðuna. Kjarvals-
staðir eru fallegt hús sem við getum
verið stolt af, einn okkar glæsilegasti
arkitektúr,“ segir Marentza Poulsen
sem rekur kaffihúsið. „Það þurfti að
bæta aðstöðuna og afgreiðsluna.
Það er svo mikil gleði fyrir augað í
safninu sjálfu og þess vegna verður
kaffihúsið líka að vera fallegt,“ segir
Marentza. „Ég vil að héðan fari allir
glaðir út.“
Þótt kaffihúsið verði opið um
helgina verður staðurinn formlega
opnaður í næstu viku. „Þá fá gestir
að njóta nýs matseðils og þjónustu.
Við munum bjóða upp á bröns
um helgar. Í hádeginu verðum við
með snögga og góða afgreiðslu
og bjóðum til dæmis upp á smur-
brauð og heimabakaðar kökur og
fleira. Fyrstu helgina í hverjum
mánuði verðum við með te fyrir
lengra komna, svokallað High-tea,“
segir Marentza sem gefur forsmekk
að veitingunum með uppskrift að
ferskum rabarbarasnaps og smur-
brauði með kartöflum og rækjum.
Bröns og te fyrir lengra komna
Marentza Poulsen sem landsmenn þekkja að góðu stendur vaktina á kaffihúsinu á Kjarvalsstöðum. Aðstaðan
hefur verið endurgerð og Marentza hlakkar til að bjóða upp á bröns um helgar og halda teboð fyrir lengra komna.
Marentza Poulsen er ánægð með breytingar sem hafa verið gerðar á eldhúsi og afgreiðslu veitinga
á Kjarvalsstöðum. Kaffihúsið verður opið á opnunartíma safnsins. Fréttablaðið/Ernir
Smurbrauð með nýuppteknum
kartöflum, rækjum, súrsuðu
eggi og sítrusmajónesi
Smyrjið rúgbrauðsneið með smjöri. Skerið kart-
öfluna í fallegar sneiðar og raðið ofan á brauð-
sneiðina. Setjið eina matskeið af sítrusmajónesi
eftir miðju ofan á kartöflusneiðarnar, raðið rækjum
ofan á majónesið og síðan súrsaða egginu skornu í
báta. Skreytt með radísum, dilli og ætum blómum
úr garðinum.
SítruSMajóneS
2 dl af majónesi
1 msk. sítrónusafi
1 tsk. rifinn sítrónubörkur
Öllu hrært vel saman.
SúrSuð egg
Harðsoðin egg, soðin í 7 mínútur, skurnuð og sett
í heitan edikslög. Eggin látin liggja í leginum helst
yfir nótt.
edikSlögur
½ lítri rauðrófusafi
1 lítri edik
500 g sykur
1 msk. heil hvít piparkorn
1 msk. sinnepsfræ
rabarbara- og engiferSnafS
1 flaska vodka
5 til 6 rabarbarastilkar skornir í þunnar sneiðar
2 msk. þunnt skorið engifer
2 msk. hunang
Blandið niðurskornum rabarbara, engifer og
hunangi vel saman og setjið í krukku eða flösku,
hellið vodkanu yfir og setjið lok eða tappa á og látið
standa í 5 daga.
Það er svo mikil gleði
fyrir augað í safninu
sjálfu og Þess vegna
verður kaffiHúsið líka
að vera fallegt.
1 9 . á g ú s t 2 0 1 7 L A U g A R D A g U R20 H e L g i n ∙ F R É t t A B L A ð i ð
helgin
1
9
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
9
K
_
N
Ý.
p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
8
3
-F
4
E
0
1
D
8
3
-F
3
A
4
1
D
8
3
-F
2
6
8
1
D
8
3
-F
1
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
1
1
2
s
_
1
8
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K