Fréttablaðið - 19.08.2017, Page 22

Fréttablaðið - 19.08.2017, Page 22
Gefast ekki upp þótt á móti blási Agnes Ferro greindist með brjóstakrabbamein þann 21. nóvember í fyrra. Agnes hleypur 10 kílómetra í Reykjavíkur- maraþoninu, í miðri geislameðferð, til styrktar Ljósinu, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir einstakl- inga sem greinast með krabbamein og aðstandendur þeirra. „Ég hef nýtt mér þjónustuna í Ljósinu alveg rosalega mikið í mínum veikindum og langaði að gefa til baka. Ég mætti þar fyrst viku eftir að ég var búin í fyrstu lyfja- gjöfinni á kynningarfund. Sama dag fékk ég tíma hjá iðjuþjálfa og sjúkraþjálfara. Eftir kynningarfund- inn hittist hópur sem kallar sig Gull- fiskana, en það er hópur ungs fólks í Ljósinu sem er með krabbamein. Ég fann strax hvað það hjálpaði mér rosalega mikið að hitta aðrar ungar konur í svipaðri stöðu og ég. Við deildum áhyggjum um lífið, fjölskylduna, börn, framtíðina og framann,“ útskýrir Agnes, sem á sjálf ungan son. „Ég var til dæmis ekki enn búin að missa hárið en ég kveið því rosalega. Það hljómar kannski skringilega að kvíða einhverju jafn léttvægu og að missa hárið þegar maður er að horf- ast í augu við miklu alvarlegri hluti, en ég man svo vel hvað það hjálpaði mér mikið að sjá þar nokkrar sem voru komnar með hárið aftur. Ein var meira að segja á leiðinni í fyrstu klippinguna sína og var svo spennt fyrir því. En þetta gaf mér svo rosa- lega mikið, að sjá að þetta verkefni, sem virtist vera svo ofboðslega langt og þungt, tæki einhvern tíma enda.“ Brjóstakrabbamein Agnesar hafði einnig dreift sér í eitla. Meinið heitir Invasive ductal carcinoma og er algengasta brjóstakrabbameinið. „Þar sem krabbameinið var stórt þá byrjaði ég á því að fara í lyfjagjöf, 6 skipti á þriggja vikna fresti. Eftir það fór ég í aðgerð og núna er ég í miðri geislameðferð til þess að fyrirbyggja að meinið láti aftur á sér kræla. Svo er ég í eftirmeðferð þar sem ég tek 1 töflu á dag. Ég þarf að gera það í nokkur ár í viðbót.“ Agnes segir að á heildina litið hafi krabbameins- meðferð hennar gengið mjög vel. „En auðvit- að hafa komið dagar þar sem mér hefur liðið illa. Í Ljósinu til dæmis hef ég hlegið og grátið. Þetta hús er fullt af góðu fólki sem tekur á móti manni alveg sama hvernig dags- formið er. Því var ákvörðunin auð- veld, að drífa sig af stað í miðri geisla- meðferð og safna fyrir Ljósið sem hefur hjálpað mér og öðrum svo mikið, okkur sjúklingunum algjörlega að kostnaðarlausu.“ Agnes lýsir því hversu mikil- vægt það er að taka svona veikindi ekki einn, á hnefanum. „Ég myndi ráðleggja öllum þeim sem eru að ganga í gegnum það sama og ég að leita sér strax hjálpar, eins og hjá Ljósinu. Ekki hlusta á allar hræði- legu sögurnar sem fólki finnst það þurfa að segja manni, hlusta frekar á sögurnar þar sem fólk hefur sigrast á krabbameini og lifir góðu heilbrigðu lífi í mörg, mörg ár. Vera duglegur að hlusta á sjálfan sig því það þekkir enginn líkama sinn jafn vel og maður sjálfur. Svo er algjört lykilatriði að vera innan um fólk sem lætur þér líða vel; stundum vill maður vera umvafinn fjölskyld- unni, stundum fólki í sömu stöðu og maður sjálfur – og stundum vill maður bara gleyma sér með vin- konum.“ Hún segir ekki síður mikilvægt að hafa eitthvað lítið til að hlakka til í hverri viku eða hverjum mán- uði í gegnum meðferðina. „Það þarf ekki að vera stórt, en eitthvað sem lætur þér líða vel svo tíminn líði. Það hefur hjálpað mér að líða ekki eins og ég sé föst í eigin lífi og allir í kringum mig að lifa lífinu og huga að framtíðinni. Það hefur líka skilið eftir góðar minningar um þennan erfiða tíma sem er mjög dýrmætt.“ Hleypur tíu kílómetra í miðri geislameðferð Agnes Ferro segir mikilvægt að glíma ekki einn við alvarleg veikindi, á hnefanum. Hún hvetur fólk til að leita sér hjálpar, t.d. hjá Ljósinu. Agnes, Leifur og Gyða hlaupa öll í Reykjavíkurmaraþoninu í dag. Leifur fer með eiginkonu sína út í endurhæfingu í Bandaríkjunum í næstu viku fyrir áheitin sem hann safnar. FRéttABLAðið/EyþóR Tæplega fimmtán þúsund manns hafa skráð sig í Reykja- víkurmaraþonið þetta árið og hlaupa til styrktar góðum málum. Agnes Ferro, Leifur Grétarsson og Gyða Kristjánsdóttir eru meðal þeirra, en þau hlaupa öll til styrktar málefni sem snertir þau persónu- lega, þó ólík séu. Ég fann hvað það hjálpaði mÉr rosalega mikið að hitta aðrar ungar konur í svipaðri stöðu og Ég. við deildum áhyggjum um lífið, fjölskyld- una, börn, framtíð- ina og framann. 1 9 . á g ú s t 2 0 1 7 L A U g A R D A g U R22 H e L g i n ∙ F R É t t A B L A ð i ð 1 9 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :2 6 F B 1 1 2 s _ P 0 9 1 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 6 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 8 4 -0 8 A 0 1 D 8 4 -0 7 6 4 1 D 8 4 -0 6 2 8 1 D 8 4 -0 4 E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 1 1 2 s _ 1 8 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.