Fréttablaðið - 19.08.2017, Blaðsíða 26
Þriðjudagur 18. júlí
Janúar
Febrúar
Mars
Maí
apríl
Atburðarásin
• lögreglan lýsir eftir rauðri Kia
rio-bifreið.
• sérhæfðir leitarhópar kallaðir út
til leitar.
• Um 120 björgunarsveitarmenn
leita í Heiðmörk á svokallaðri
flóttamannaleið.
• skór birnu finnst um nóttina við
höfnina í Hafnarfirði. síðar finnst
hinn skórinn.
Þriðjudagur 17. janúar
Miðvikudagur 18. janúar
Föstudagur 20. janúar
Sunnudagur 22. janúar
Laugardagur 14. janúar
Sunnudagur 15. janúar
Mánudagur 16. janúar
• birna brjánsdóttir fer út að
skemmta sér með vinkonum
sínum.
• birna sést í eftirlitsmyndavélum
ganga ein síns liðs austur austur-
stræti, bankastræti og laugaveg
þar sem hún hverfur sjónum um
kl. 05.25 við laugaveg 31.
lögreglan lýsir eftir birnu. Um
kvöldið er málið komið í algjöran
forgang hjá lögreglu.
svæðisstjórn björgunarsveita á
höfuðborgarsvæðinu er kölluð
út. Um miðnætti er óskað eftir
aðstoð sporhunds.
•
•
lögreglan fær úrskurð til að
skoða upplýsingar um farsíma
sem ferðast með sama hætti á
farsímasendum og sími birnu.
Kia rio-bifreið haldlögð í Hlíða-
smára í Kópavogi.
lögreglumenn fara með þyrlu
landhelgisgæslunnar og fara um
borð í danska herskipið HDMs Tri-
ton. skipið siglir til móts við polar
nanoq en ekki verður af því að
lögreglumennirnir fari um borð.
•
•
•
•
• Tveir menn handteknir af sér-
sveit ríkislögreglustjóra um
borð í polar nanoq u.þ.b. 90
mílur suðvestur af landinu. Hinir
handteknu eru yfirheyrðir við
komuna til landsins.
• björgunarsveitir kallaðar út til að
leita á hafnarsvæðinu í Hafnar-
firði og með vegarslóðum á
strandarheiði.
Mennirnir eru úrskurðaðir í
tveggja vikna gæsluvarðhald
grunaðir um manndráp.
Þyrla landhelgisgæslunnar, TF-
líF, leitar við Hafnarfjarðarhöfn
og á reykjanesi.
Fimmtudagur 19. janúar
• lögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu óskar eftir að ná tali af öku-
manni hvíts bíls, sem var ekið
vestur Óseyrarbraut í Hafnarfirði
laugardaginn 14. janúar kl. 12.24.
• TF-líF fer tvívegis til leitar. Þyrlan
leitar í nágrenni Hafnarfjarðar og
Kleifarvatns, á strandarheiði, á
reykjanesskaga og í nágrenni.
• Um klukkan eitt finnur áhöfn
TF-líF lík í fjörunni rétt vestur af
selvogsvita, sem er um 15 kíló-
metra vestur af Þorlákshöfn.
Mánudagur 23. janúar
• lögreglan staðfestir að líkið sem
fannst við selvogsvita sé af birnu.
Þá telur hún ljóst að um mann-
dráp sé að ræða.
Laugardagur 28. janúar
Þúsundir koma saman í miðbæ
reykjavíkur og ganga til minn-
ingar um birnu.
•
Þriðjudagur 28. febrúar
• Thomas hefur setið í gæslu-
varðhaldi í rúmar fimm vikur í
einangrun. Honum er nú sleppt
úr einangrun en er áfram í haldi.
Fimmtudagur 2. febrúar
• Öðrum skipverjanum er sleppt
úr haldi en Thomas Møller er
áfram í gæsluvarðhaldi.
Föstudagur 3. febrúar
• birna er jarðsungin frá
Hallgrímskirkju.
• Greint frá því að lögreglan
telji að dánarorsök birnu sé
drukknun.
Mánudagur 6. febrúar
Fimmtudagur 16. febrúar
• Thomas úrskurðaður í áfram-
haldandi gæsluvarðhald.
Fimmtudagur 2. mars
• Héraðsdómur úrskurðar Thomas í fjögurra vikna
gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna.
• lögreglan staðfestir að lífsýni úr Thomasi tengi
hann beint við birnu.
Fimmtudagur
16. mars
rannsókn lög-
reglu á málinu
er lokið. Það er
sent til héraðs-
saksóknara
daginn
eftir sem
hefur fjórar
vikur til að
gefa út ákæru í
málinu.
Fimmtudagur 30. mars
• Héraðssaksóknari ákærir Thomas Møller fyrir mann-
dráp. Þá er Thomas einnig ákærður fyrir stórfellt
fíkniefnalagabrot.
• Thomas er úrskurðaður í áframhaldandi fjögurra vikna
gæsluvarðhald á grundvelli almannahagsmuna.
•
Þriðjudagur
25. apríl
•
Mánudagur 10. apríl
• Ákæran er þingfest í Héraðsdómi reykjaness. Thomas
neitar sök varðandi báða ákæruliðina en hann hafði
áður játað fíkniefnalagabrotið við yfirheyrslu hjá lög-
reglu.
Héraðsdómur
úrskurðar að
Thomas skuli
áfram sitja í
gæsluvarð-
haldi næstu
fjórar vikurnar.
Þriðjudagur 9. maí
• Verjandi Thomasar fer fram á mat
bæklunarlæknis og réttarmeina-
fræðings við fyrirtöku í málinu í
héraðsdómi. síðar í mánuðinum eru
þeir dómkvaddir ragnar Jónsson
bæklunarlæknir og Urs Oliver Wies-
brock, þýskur réttarmeinafræðingur.
Þriðjudagur 23. maí
Thomas er úrskurðaður í
áframhaldandi varðhald í
fjórar vikur.
•
• sjö skipverjar af polar nanoq gefa skýrslu vegna málsins í Héraðsdómi reykja-
ness.
• ekki er hægt að taka skýrslu af Thomasi þar sem matsgerð þýska réttarmeina-
fræðingsins liggur ekki fyrir.
• skipverjarnir sem koma fyrir dóm bera Thomas vel söguna en segja frá því að
hann hafi orðið órólegur og þurft róandi lyf eftir að hafa fengið sms-skilaboð frá
íslenskum blaðamanni sem spurði hann út í rauða Kia rio-bifreið.
Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn Thomas Frederik Møller Olsen hefst í Héraðsdómi Reykja-ness klukkan 9.15 á
mánudag. Thomas er ákærður fyrir
að hafa ráðið Birnu Brjánsdóttur
bana þann 14. janúar síðastliðinn
en Birna hvarf aðfaranótt þess dags
og fannst lík hennar í fjörunni við
Selvogsvita átta dögum síðar, þann
22. janúar.
Thomas hefur setið í gæsluvarð-
haldi síðan 19. janúar en sérsveit
Ríkislögreglustjóra handtók hann
um borð í grænlenska togaranum
Polar Nanoq þann 18. janúar.
Thomas, sem er grænlenskur, var
skipverji á togaranum sem hafði
legið í höfn í Hafnarfirði nóttina
sem Birna hvarf.
Annar skipverji var handtekinn
um borð á sama tíma og Thomas og
einnig úrskurðaður í gæsluvarðhald
en honum var sleppt að tveimur
vikum liðnum. Þriðji maðurinn
var svo einnig handtekinn síðar
sama dag um borð í Polar Nanoq
en sleppt að lokinni yfirheyrslu.
Leitin að Birnu stóð yfir í viku og
má segja að hún hafi heltekið þjóð-
ina sem var sem lömuð yfir örlög-
um þessarar ungu stúlku en Birna
var aðeins tvítug þegar hún lést.
Laugardaginn áður en hún fannst
fór fram umfangsmesta leit sem
björgunarsveitirnar hafa farið í en
hátt í 500 björgunarsveitarmenn af
öllu landinu tóku þátt í aðgerðum.
Þá tók almenningur virkan þátt
í leitinni og var það til dæmis
almennur borgari sem fann skó
Birnu við höfnina í Hafnarfirði
tveimur dögum eftir að hún hvarf.
Reyndist sá fundur afar mikilvægur
fyrir rannsókn málsins.
Thomas var með rauðan Kia Rio-
bíl á leigu þegar Birna hvarf og var á
ferð í miðbænum með öðrum skip-
verja aðfaranótt 14. janúar. Viður-
kenndi Thomas í fyrstu yfirheyrslu
hjá lögreglu að hafa tekið Birnu upp
í bílinn í miðbænum þá um nóttina
en bar að önnur stúlka hefði einnig
komið upp í bílinn.
Sá framburður var ekki í sam-
ræmi við framburð hins skipverj-
ans hjá lögreglu sem kvaðst aðeins
muna eftir einni stúlku í bílnum.
Lögreglan lýsti eftir Kia Rio-bif-
reiðinni mánudaginn 16. janúar
og fannst hún daginn eftir í Kópa-
vogi. Hald var lagt á bílinn og hann
rannsakaður ítarlega í kjölfarið en
í honum fannst mikið af blóði sem
reyndist vera úr Birnu.
Meðal annarra gagna málsins er
ökuskírteini Birnu sem fannst um
borð í Polar Nanoq með fingrafari
Thomas. Þá fannst blóð úr Birnu
á úlpu hans auk þess sem þekju-
frumur Thomas og Birnu fundust á
reimum úr skóm hennar en þekju-
frumur finnast meðal annars á
fingrum fólks.
Lögreglu grunaði fljótlega að
Birnu hefði verið ráðinn bani þar
sem Thomas og hinn skipverjinn
sem einnig var úrskurðaður í gæslu-
varðhald í upphafi voru settir í
varðhald grunaðir um manndráp.
Thomas er hins vegar einn ákærður,
eins og áður segir, en í ákæru segir
að hann hafi veist með ofbeldi að
Birnu í Kia Rio-bílnum.
Er hann ákærður fyrir að hafa
slegið hana ítrekað í andlit og
höfuð, tekið hana kverkataki og
hert kröftuglega að hálsi hennar.
Við þetta fékk Birna meðal annars
marga höggáverka í andlit auk þess
sem hún nefbrotnaði. Í kjölfarið á
Thomas síðan að hafa varpað Birnu
í sjó eða vatn með þeim afleiðing-
um að hún drukknaði.
Thomas er einnig ákærður fyrir
stórfellt fíkniefnalagabrot en hann
á að hafa haft í vörslu sinni 23.424
grömm af kannabisefnum í káetu
sem hann hafði til umráða í Polar
Nanoq. Efnin hugðist hann flytja til
Grænlands í ágóðaskyni, að því er
segir í ákæru.
Málið var þingfest þann 10. apríl
síðastliðinn. Thomas lýsti þá yfir
sakleysi sínu varðandi báða ákæru-
liðina. Thomas átti upphaflega að
gefa skýrslu í júlí þegar aðalmeð-
ferðin átti að hefjast en þar sem
matsgerð þýsks réttarmeinafræð-
ings lá ekki fyrir kom hann ekki
fyrir dóminn.
Hins vegar voru teknar skýrslur
af sjö skipverjum Polar Nanoq þann
18. júlí þegar fyrirtaka fór fram í
málinu. Þá greindu þeir frá því að
skilaboð sem Thomas fékk send
hefðu orðið til þess að þá fór að
gruna hann um eitthvað misjafnt.
Lýstu skipverjarnir því meðal
annars hvernig Thomas hafi orðið
grár og fölur í framan og tauga-
óstyrkur eftir að hann fékk skila-
boðin. Um tvenn skilaboð var að
ræða, annars vegar frá íslenskum
blaðamanni sem spurði hann út í
rauðan Kia Rio-bíl og hins vegar frá
kærustunni hans sem sagði hann
mögulega liggja undir grun í mál-
inu.
Skipverjarnir báru Thomas vel
söguna og lýstu honum sem vin-
gjarnlegum og vinsælum manni
sem væri mjög samviskusamur í
vinnunni. Þeir sögðu ekkert óeðli-
legt hafa verið í fari hans þann 14.
janúar, daginn sem Birna hvarf, né
dagana á eftir eða allt þar til hann
fékk skilaboðin frá íslenska blaða-
manninum og kærustunni.
Thomas hafi orðið mjög tauga-
óstyrkur við skilaboðin og til að
mynda ekki viljað borða neitt. Skip-
stjórinn og stýrimaðurinn ákváðu
að gefa honum róandi lyf vegna
þess hversu taugaóstyrkur hann var.
Kokkurinn á Polar Nanoq var
síðan að tala við Thomas þegar
þeir heyrðu í þyrlu Landhelgisgæsl-
unnar. Um borð voru sex vopnaðir
sérsveitarmenn sem fengu það hlut-
verk að handtaka Thomas og annan
skipverja.
„Þegar lögreglan var að koma þá
sagði Thomas við mig: „Heldurðu
að þeir séu komnir að sækja mig?““
sagði kokkurinn fyrir dómi í júlí.
Eins og áður segir hefst aðalmeð-
ferðin á mánudag. Gert er ráð fyrir
því að hún taki þrjá daga og verður
henni fram haldið þriðjudaginn 22.
ágúst og svo föstudaginn 1. septem-
ber. Auk þeirra sjö skipverja sem
þegar hafa borið vitni í málinu
munu 38 manns gefa skýrslu fyrir
dómi auk Thomas sjálfs.
Greypt í minni
þjóðarinnar
Aðalmeðferð í máli Thomas Frederik Møller Olsen sem ákærður
er fyrir að hafa orðið Birnu Brjánsdóttur að bana hefst á mánudag.
frettablaðið/ernir
Sunna Kristín
Hilmarsdóttir
sunnakristin@365.is
Laugardagur 21. janúar
• ein umfangsmesta leit
síðari ára fer fram.
Júlí
1 9 . á g ú s t 2 0 1 7 L A U g A R D A g U R26 H e L g i n ∙ F R É t t A B L A ð i ð
1
9
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
8
4
-1
7
7
0
1
D
8
4
-1
6
3
4
1
D
8
4
-1
4
F
8
1
D
8
4
-1
3
B
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
1
1
2
s
_
1
8
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K