Fréttablaðið - 19.08.2017, Page 32
var að minnsta kosti ekki sannfærð
um að ég hefði eitthvað fram að færa
sem myndlistarmaður. En síðan var
það líka þannig að þegar ég fór að
vinna í myndlist þá komu upp erf
iðir hlutir.“ Var það úr æsku þinni?
„Ég ímynda mér það,“ segir Hanna
og staldrar við. „En svo má líka segja
að þó að myndlist hafi legið vel fyrir
mér þá var það ekki endilega sá mið
ill sem hentaði mér best. Ég er mjög
sátt við hvernig hlutirnir þróuðust
en ég veit ekkert hvernig þeir halda
áfram að þróast, það er annað mál.
En það sem ég hef unnið við hefur
mér þótt mjög gefandi og skapandi.“
Sátt við mistökin
Árið 2012 tók Hanna við Lista hátíð
í Reykjavík sem listrænn stjórn
andi og var í því starfi næstu fjögur
ár. En þetta var nú kannski ekki
besti tíminn í íslensku efnahagslífi?
„Nei, það er óhætt að segja það,“
segir Hanna. „Þetta er gríðarlega
skemmtilegt og krefjandi starf og
það er mjög gaman að takast á við
áskorun af þessu tagi. Því fylgir að
sjálfsögðu mikið vinnuálag og það
eykst í beinu hlutfalli við niðurskurð
sem var mjög verulegur á Listahátíð
allt frá hruni. Á endanum kemur
það niður á mannauðnum. Þegar
ég tók við starfinu byrjaði ég á að
eiga fundi með öllum helstu sam
starfsstofnunum Listahátíðar og
fann víða fyrir áhuga á að hátíðin
yrði að tvíæringi á ný. Sá áhugi var
til staðar á hinu pólitíska sviði líka,
ekki til þess að skera enn frekar
niður til hátíðarinnar, heldur þvert
á móti til að efla hana og byggja
upp á ný. Listahátíð er viðamikil
og fjölbreytt þverfagleg hátíð, með
merka sögu, og á veigamikinn stað
í íslensku menningarlífi og sam
félagi sem mikilvægt er að standa
vörð um. Hún starfar líka með lista
mönnum og menningarstofnunum
sem skipuleggja starf sitt langt fram
í tímann og hátíðin þarf að geta gert
það líka. Þess vegna var það hags
munamál að hún yrði að tvíæringi
á ný og mig langaði mikið til að stýra
slíkri hátíð. Það á vel við mig að hafa
góðan tíma til að ná saman ólíkum
þráðum og hugsunum, leyfa þeim
að gerjast hægt, en svo er ég ham
hleypa til verka þegar kemur að
framkvæmd þeirra.“
Hanna segir að það hafi gerst
skyndilega að hún hafi ákveðið að
sækjast ekki eftir að stýra Lista hátíð
áfram. „Tveimur mánuðum áður
en síðasta hátíðin mín hófst lést
mamma eftir mjög alvarleg og erfið
veikindi.“ Nú þagnar Hanna og það
er eilítið eins og hún sé aftur komin
til þessa erfiða tíma. Hún játar því
að þessi mikla saga á milli þeirra
mæðgna hafi aukið enn á áfallið.
Hún segist þó í raun ekki hafa hug
mynd um hvernig hún hafi tekist á
við þetta á þessum tíma. „Ég upplifði
djúpa sorg. Við venjulegar aðstæður
hefði ég tekið mér frí frá störfum en
það er ekki hægt svona skömmu
fyrir hátíð. Þegar ég lít til baka skil
ég varla hvernig þetta hafðist.“ Nú er
eins og Hönnu vefjist aðeins tunga
um tönn og svo bætir hún við: „Þetta
var mjög flókin sorg. En það var í
kringum mig á Listahátíð afskaplega
gott fólk og stuðningsnet fjölskyldu
og vina kikkar inn þegar eitthvað
svona gerist. Ég fékk ómetanlegan
stuðning frá mörgum, sérstaklega
frá einum manni sem er mér mjög
nákominn.“
Svo líður þessu tími, Listahátíð
hefst og henni lýkur og hvað þá?
„Starf listræns stjórnanda er aug
lýst á fjögurra ára fresti og það var
gert viku eftir að hátíðinni lauk. Ég
hafði í raun ekki gert upp við mig
hvað ég vildi gera, hafði efasemdir
um að Listahátíð væri áfram réttur
vettvangur fyrir mig eftir þetta
erfiða tímabil. Svo vaknaði ég einn
morguninn og vissi að ég þurfti að
fara í annað samhengi og ákvað að
sækjast ekki eftir endurráðningu.
Ég er manneskja sem þarf á mikilli
hreyfingu að halda, bæði í eigin
legri og óeiginlegri merkingu, og ég
á ekki gott með að sjá mig á sama
stað í heilan áratug. Það var rétt
ákvörðun.“ Hefurðu ekkert séð eftir
því? „Það er erfitt að hætta í svona
starfi og það kom tímabil þar sem ég
fann fyrir því. Ég hafði verið vakin
og sofin yfir Listahátíð í fjögur ár.
Þegar ég var búin að taka þessa
ákvörðun vissi ég að það skipti máli
að ég færi ekki út með einhverjar
flóknar tilfinningar og eftirsjá. Það
hefði verið rangt gagnvart sjálfri mér
og þeim sem tók við starfinu að geta
ekki rofið þessi tengsl við hátíðina
og gengið frá henni, sátt.
Mér þykir mjög vænt um það sem
ég gerði þar og ég á góðar minningar
úr starfinu, bæði um samstarfsfólk
og verkefni og þá mörgu listamenn
sem við unnum með. Ég hef breitt
áhugasvið í listum og það skiptir
mig miklu máli að hafa höfðað til
breiðs hóps almennings og jafn
framt starfað með breiðum hópi
listamanna. Það er það sem Lista
hátíð gerir, hún þjónar almenningi
og hún þjónar listinni. Það er margt
sem ég er ánægð með og þakklát
fyrir. Ég gerði líka fullt af mistökum
og mér þykir líka vænt um þau.
Maður lærir svo mikið af þeim.“
List og ferðamenn
Hanna hefur verið að vinna að
ýmsum verkefnum undanfarið en
hún er líka að hugsa um hvað það er
sem hún vill gera ef hún ætlar að búa
áfram á Íslandi. Hún segir að það
skipti hana miklu máli að snúa sér
í auknum mæli að myndlist aftur.
„Mér fannst mjög mikilvægt á Lista
hátíð að gæta þess að jafnvægi væri
á milli listgreina þar sem hátíðin er
þverfagleg, en ég var líka farin að
sakna myndlistarinnar.“ Og skilyrði
listarinnar, starfsskilyrði stofnana
og listamanna á Íslandi, eru Hönnu
hugleikið viðfangsefni. „Hér eru ein
staka stofnanir fjármagnaðar sæmi
lega en aðrar þannig að þær eiga
jafnvel erfitt með að sinna hlutverki
sínu. Tökum myndlistina sem dæmi:
Það er ekkert ódýrara að setja upp
myndlistarsýningu en leiklistar
sýningu. Munurinn á fjármögnun
leikhúsa og safna liggur helst í því
að þeir sem vinna í leikhúsi fá allir
greitt fyrir sína vinnu, hvernig svo
sem þau laun eru. Hið sama á ekki
að öllu leyti við um myndlistina en
ég tek fram að það á ekki bara við
um Ísland.
Ég hef áhuga á því að beita mér
fyrir breyttri afstöðu til þessara
mála og reyndar hefur verið unnið
ötullega að því á síðustu misserum
að bæta starfsskilyrði á vettvangi
myndlistar. Ég hef líka áhuga á því
að stuðla að enn auknum alþjóð
legum tengslum á þessu sviði. Tengsl
eru áhugaverður hlutur því tengsla
net hefur ekkert að segja ef þú getur
ekki nýtt það. Það þarf ákveðnar
aðstæður til að það sé hægt og þær
snúast mikið um fjármagn. Síðan
er ég líka með minn bakgrunn sem
leiðsögumaður eftir að hafa starfað
við það í 25 ár á sumrin með ein
hverjum hléum og ég er mjög hugsi
yfir þróuninni í heiminum í ferða
málum. En svo að ég haldi mig við
Ísland, þá hefur verið unnið mark
visst að því á síðustu árum að gera
Reykjavík að áfangastað menn
ingarferðamanna og sumt hefur
tekist mjög vel og annað ekki, eins
og gengur og gerist.“
Hanna leggur áherslu á að margt
verði að koma til ef á að virkja þessa
auðlind til fulls. „Liststofnanir verða
að hafa fjármagnið, tengslanetið og
þekkinguna – mannauðinn – til þess
að skapa þær aðstæður sem til þarf,
verkefni og viðburði sem laða hing
að ferðamenn sem ferðast gagngert
í þeim tilgangi að njóta menningar
og lista. Þannig ferðast menningar
ferðamenn. Ég þekki það því að ég
er menningarferðamaður. Svo þarf
að miðla því starfi alþjóðlega, til
réttra markhópa hverju sinni. Það
er gríðarlega stórt verkefni og það er
er ekki bara menningarmál heldur
snertir það mörg önnur svið þjóð
lífsins.“
Aukin fjárframlög
Hanna er á því að það sé mun meira
verið að gera í þessum málum en
blasi við sjónum því að breytingar
hér hafi verið hraðar og það taki
alltaf tíma áður en árangur stefnu
mótunarvinnu lítur dagsins ljós. En
hvernig sérð þú fyrir þér að koma
að þessi verkefni? Ertu þarna ekki
komin með annan fótinn inn í póli
tík? Hanna hikar með svarið en svo
er það afdráttarlaust: „Jú. Það hefur
alltaf blundað í mér líka og ég hef
oft velt því fyrir mér. Sé enga ástæðu
til þess að útiloka það. En þar sem
það eru sveitarstjórnarkosningar í
vor er kannski rétt að taka fram að
ég myndi fara í landspólitík,“ segir
Hanna og hlær.
En þegar þú talar um ferða
málin og menninguna þá er ekki
annað að heyra en að þú lítir svo á
að menning og listir hafi setið eftir
og að staða menningarstofnana sé
alvarleg. „Listir eru mitt starfssvið og
ástríða og það er eðlilegt að maður
berjist fyrir sínum málaflokki. Eftir
hrun var íslenskt samfélag á barmi
gjaldþrots og þá eru listir ekki það
fyrsta sem fólk hugsar um. Það er
óhjákvæmilegt við slíkar aðstæður
að velferðarmál hafi forgang en
núna eru efnahagsaðstæður gjör
breyttar og það hlýtur að gefa til
efni til að huga að því hvernig þær
aðstæður verða nýttar. Samfélagið
er að breytast mjög hratt enda koma
hingað á ársgrundvelli fimm sinnum
fleiri en búa í landinu. Stór hluti
þess fólks vill fá innsýn í menningu,
og þá á ég við samtímamenningu
og listir, í landinu til þess að dýpka
þekkingu sína og skilning á þessu
samfélagi. Ég áttaði mig á þessu sem
leiðsögumaður á hálendinu fyrir
langalöngu. Á hverjum degi fylgist
ég með miklum fjölda fólks hér í
miðbænum og ég veit hvað það er
mikið að gerast í íslensku menning
arlífi. Það þarf átak til þess að tengja
þetta tvennt saman með markviss
ari hætti. Ég segi þetta vitandi að
það er unnið að því á öllum sviðum.
En við verðum líka að átta okkur á
að við getum ekki náð til þessa fólks
og laðað hingað menningarferða
menn í þeim gagngera tilgangi að
sækja menningarviðburði, án þess
að auka fjárframlög til menningar.“
Hanna segir að í dag sé hún að
vinna að verkefnum sem vonandi
eigi eftir að stuðla að framförum í
þessum efnum. „Mér finnst þetta
mjög áhugavert og ég hef áhuga á
því í framtíðinni að starfa á þessum
nótum, koma að stefnumótun og
að því að skapa nýjar aðstæður eða
skilyrði, frekar en að fara inn í vist
kerfi menningarinnar sem er til
staðar og vinna innan þess.“
Hanna og kötturinn Jara heima í Grjótaþorpinu þar sem ferðamennirnir streyma hjá á hverjum degi. FréttAbLAðið/Ernir
Það á vel við mig að
hafa góðan tíma til að
ná saman ólíkum Þráð-
um og hugsunum, leyfa
Þeim að gerjast hægt,
en svo er ég hamhleypa
til verka Þegar kemur
að framkvæmd Þeirra.
liststofnanir verða
að hafa fjármagnið,
tengslanetið og Þekk-
inguna – mannauðinn
– til Þess að skapa Þær
aðstæður sem til Þarf,
verkefni og viðburði
sem laða hingað ferða-
menn sem ferðast gagn-
gert í Þeim tilgangi að
njóta menningar og
lista.
1 9 . á g ú s t 2 0 1 7 L A U g A R D A g U R32 H e L g i n ∙ F R É t t A B L A ð i ð
1
9
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
8
3
-D
C
3
0
1
D
8
3
-D
A
F
4
1
D
8
3
-D
9
B
8
1
D
8
3
-D
8
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
1
2
s
_
1
8
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K