Fréttablaðið - 19.08.2017, Síða 76
Það sem ég elska
mest við borgina er
hversu fjölmenningarleg
hún er og hvað maður
getur lært mikið um
heiminn hér.
Sólveig
Gísladóttir
solveig@365.is
Hvar í borginni býrðu? Ég bý alveg í miðbænum, „101 Brussel“. Það sem einkennir
hverfið helst eru líklega allir túrist-
arnir þar sem ég er í tíu mínútna
göngufæri frá helstu túristastöð-
unum. En kostirnir eru auðvitað
líka margir, til dæmis er fjöldinn
allur af frábærum veitingastöðum
í kringum mig og hverfinu er virki-
lega vel haldið við.
Er dýrt að lifa? Það þykir mér
ekki – en ég flutti reyndar hingað
frá Genf í Sviss sem er ein dýrasta
borg í heimi, svo ég er kannski með
óraunhæf viðmið.
Uppáhaldskaffihúsið? Ekkert sér-
stakt, en ég elska að fara annað hvort
á Parvis St. Gilles eða Place Jourdan
og sitja á einhverjum af stöðunum
þar ef mig langar í kaffi og kósí.
Besti veitingastaðurinn? Minn
uppáhalds kallast Chez Leon og
selur frábært kræklinga-gratín, en
kræklingur eru svakalega vinsæll
hér.
Ómissandi áfangastaðir fyrir
ferðalanga? Barinn Delirium Café.
Stærsti bar sem ég hef komið á,
og spannar í raun heila litla götu.
Hann lítur út eins og nokkrir barir
fastir saman. Þar er hægt að fá yfir
þrjú þúsund gerðir af bjór, og oft
furðulegar bragðtegundir; svo sem
súkkulaðibjór, ostakökubjór og
kræklingabjór. Ég mæli þó með að
fólk passi sig því belgískur bjór er
með töluvert hærri áfengisprósentu
en bjórinn heima.
Ferðalangar ættu líka að hafa
augun hjá sér og taka eftir vegg-
myndunum sem má finna á húsum
um alla borgina og eru til heiðurs
teiknimyndum sem hafa komið
héðan. Þeirra á meðal eru nokkrir
Íslandsvinir, svo sem Strumparnir,
Ástríkur og Steinríkur, Svalur og
Valur, og minn uppáhalds, Tinni.
Leynistaður sem fáir vita um?
Jenneken Pis styttan, sem er
kvenkyns útgáfan af hinni sívin-
sælu Mannekin Pis styttu. Hún er
vel falin, og fólk virðist almennt
ekki vita af tilvist hennar. Hún
stendur einmitt í götunni þar sem
Delirium barinn er, svo fólk á það
til að gleyma því að hafa séð hana …
því eins og ég sagði er bjórinn hér
sterkur og fólk á það til að drekka
aðeins fleiri en það ætti að gera.
Hvernig eru heimamenn? Það
vita fáir, enda er erfitt að finna þá
í Brussel, sem er yfirfull af fólki frá
hinum ýmsu stöðum í Evrópu sem
koma hingað vegna vinnu. Þar af
leiðandi er samfélagið virkilega
Erfitt að finna heimamenn
Borgin mín – Brussel Tinna Rós Steinsdóttir hefur búið í Brussel í tæpt ár en þar starfar hún hjá
samtökunum Eurochild sem eru evrópsk regnhlífarsamtök um réttindi barna.
Tinna Rós hefur búið í Brussel í ár og
líkar dvölin vel.
Grand Place torgið er vinsæll áfangastaður ferðamanna. Þar eru iðulega haldnar ýmsar uppákomur. NoRdicPhoTos/GETTy
Finna má fjölmargar teiknimyndafígúrur á húsveggjum um alla borg. hér má
til dæmis sjá Lukku Láka og hina illræmdu dalton bræður. NoRdicPhoTos /GETTy
Brussels, Vlaams Brabant, Belgium, Europe
Mannekin Pis styttan, af dreng að pissa, er meðal þekktra kennileita í Brussel. Tinnu Rós finnst þó enn meira koma til
styttunnar Jenneken Pis af stúlku að pissa en færri vita af henni.
fjölþjóðlegt. Þeir örfáu heimamenn
sem ég hef hitt eiga það þó sameig-
inlegt að vera vinalegir og hressir,
en frekar jarðbundnir.
Helstu kostir og gallar borgar-
innar? Það sem ég á erfiðast með
að komast yfir hér er sorpaðstaðan.
Heimilissorp er sótt tvisvar sinnum
í viku, en ruslatunnur tíðkast ekki.
Maður þarf því að fara með ruslið
niður kvöldið áður en það er sótt.
Þangað til þarf maður bara að
geyma það inni. Svo angar hverfið
auðvitað af sorpi á sorpdegi, og
ekki skánar það þegar einhver dýr
komast í pokana og rífa þá opna.
Það sem ég elska mest við borgina
er hversu fjölmenningarleg hún er
og hvað maður getur lært mikið um
heiminn hér. Það er svo auðvitað
enn betra hvað er auðvelt að fara og
kynna sér heiminn héðan líka þar
sem borgin er afskaplega vel tengd
bæði með flugi og lestum.
365.IS1817MARGFALT SKEMMTILEGRI
MÁNUDAGA
8 KyNNiNGARBLAÐ FÓLK 1 9 . áG ú s T 2 0 1 7 L AU G A R DAG U R
1
9
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
7
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
8
4
-4
8
D
0
1
D
8
4
-4
7
9
4
1
D
8
4
-4
6
5
8
1
D
8
4
-4
5
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
1
2
s
_
1
8
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K