Fréttablaðið - 19.08.2017, Side 86
Bændahátíðin Sveitasæla verður haldin í Skagafirði um helgina líkt og undanfarinn áratug. Hátíða-
höldin eru í höndum skagfirskra bænda
og Reiðhallarinnar Svaðastaða við
Sauðárkrók og munu þeir einnig blása
til landbúnaðarsýningar.
Tímasetning hátíðarinnar er að sögn
aðstandenda hennar sérstaklega valin
með það fyrir augum að sem flestir
bændur geti slitið sig lausa frá störfum
sínum í stutta stund og haft gagn og
gaman saman í Skagafirði. Á sýning-
unni koma saman vélasalar, landbún-
aðarfyrirtæki, handverksfólk og bænd-
ur sem sýna sig og sjá aðra. Að henni
lokinni tekur við skemmtidagskrá sem
inniheldur meðal annars hrútaþukl og
bænda-fitness.
„Hrútaþuklið á sér langa sögu og er
fyrir mörgum ómissandi þáttur í hátíða-
höldum sem þessum. Þátttakan er alltaf
mjög góð,“ segir Steinunn Gunnsteins-
dóttir, framkvæmdastjóri sýningarinnar.
„Við fáum landbúnaðarráðunauta
sem fara á milli og meta fé. Bændur
koma svo með sína hrúta og gestir og
gangandi koma og þukla á þeim, finna
lærin og hryggjarstykkið. Hver skrifar
svo niður sinn dóm og sá sem kemst
næst dómnum sem dómnefnd komst
að stendur uppi sem sigurvegari.“
Steinunn segir að bænda-fitness sé
ekki síður vinsæll liður í hátíðahöld-
unum.
„Við veljum bændur úr hópnum og
látum þá keppa í sérstakri þrautabraut.
Þeir sem eru valdir úr komast ekki upp
með að sleppa, enda reynir það enginn.
Þetta er mjög skemmtilegt og fólk bíður
spennt eftir þessu og það er óhætt að
segja að þar myndist rífandi stemning,“
segir framkvæmdastjórinn um hátíðina
sem sett verður í dag klukkan 13.00.
haraldur@frettabladid.is
Þrautabraut fyrir bændur
og hrútaþukl í Skagafirði
Margir bændur í Skagafirði munu slíta sig lausa frá störfum sínum um helgina þegar
bændahátíðin Sveitasæla verður haldin. Þangað mæta vélasalar, handverksfólk og fleiri
og þar á hrútaþuklið sér langa sögu. Bænda-fitness ekki síður vinsæll liður.
Sýningin er haldin í Reiðhöllinni Svaðastöðum í Skagafirði. Mynd/Steinunn GunnSteinSdóttiR
Hrútaþuklið á sér langa
sögu og er fyrir mörg-
um ómissandi þáttur í hátíða-
höldum sem þessum.
Steinunn Gunnsteins-
dóttir, framkvæmda-
stjóri Sveitasælunnar
Kristinn H. Gunnarsson, fyrrverandi
alþingismaður fyrir Vestfjarðakjör-
dæmi og Norðvesturkjördæmi,
fæddist 19. ágúst 1952. Hann er
því 65 ára gamall í dag. Kristinn hóf
stjórnmálaferil sinn í Alþýðubanda-
laginu. Hann var bæjarstjóri fyrir
flokkinn í bæjarstjórn Bolungarvíkur
á árunum 1982 til ársins 1998. Hann
var kjörinn þingmaður Vestfjarða-
kjördæmis fyrir Alþýðubandalagið árið 1991. Árið 1998 sagði
hann skilið við Alþýðubandalagið, gekk í Framsóknarflokkinn
og náði kjöri í kosningum 1999. Síðar gekk hann til liðs við
Frjálslynda flokkinn. Kristinn hætti á þingi árið 2009.
Þ eTTA G e R ð i ST 1 9 . ÁG ú ST 1 9 5 2
Kristinn H. Gunnarsson fæddist
Innilegar þakkir fyrir hlýjar kveðjur
og ómetanlegan vinarhug vegna
andláts elskulegrar móður okkar,
Guðlaugar Karlsdóttur
kaupmanns,
Merkurgötu 3, Hafnarfirði.
Þórður Sæmundsson Drífa Sigurbjarnardóttir
Guðrún Sæmundsdóttir
Sjöfn Sæmundsdóttir
Hjartans þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför okkar ástkæra
Kristjáns Björns
Tryggvasonar
(Kidda)
Sérstakar þakkir færum við Jakobi
Jóhannssyni lækni, séra Vigfúsi Bjarna Albertssyni,
hjúkrunarþjónustu Karitas og starfsfólki líknardeildar
Kópavogs fyrir einstaka alúð, stuðning og umhyggju.
Kristín Þórsdóttir
Ísak Þór Kristjánsson
Agla Björk Kristjánsdóttir
Bóas Örn Kristjánsson
Helga Kristjánsdóttir Tryggvi Örn Björnsson
Anna Kristín Tryggvadóttir
Lóa Birna Tryggvadóttir
Bjarney Sigurðardóttir Þór Sverrisson
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda
samúð og hlýhug við andlát og útför
elskulegs eiginmanns, föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
Einars Magnúsar
Erlendssonar
Kleifahrauni 3b, áður til heimilis
á Illugagötu 12, Vestmannaeyjum.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Heilbrigðisstofnunar
Suðurlands, Vestmannaeyjum, fyrir einstaka umönnun
og hlýju.
Ása Ingibergsdóttir
Ingibergur Einarsson Sigríður K. Finnbogadóttir
Sigríður Einarsdóttir Baldvin Örn Arnarsson
Ágúst Einarsson Iðunn D. Jóhannesdóttir
Helgi Einarsson Agnes B. Benediksdóttir
Hrefna Einarsdóttir Pétur Jónsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samúð, vináttu og hlýju,
vegna andláts og útfarar ástkærrar
eiginkonu minnar,
móður, ömmu og langömmu,
Lilju Gunnarsdóttur
Birkihvammi 21, Kópavogi.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Sunnuhlíðar í Kópavogi
fyrir einstaka umönnun og hlýtt viðmót.
Sigurjón Antonsson
Anton Smári Sigurjónsson
Andri Snær Sigurjónsson
Stefán Friðleifsson
Hildur Friðleifsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn.
Útfarar- og lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Útfararstofa kirkjugarðanna
Emilía Jónsdóttir,
félagsráðgjafi
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Við önnumst alla þætti undir-
búnings og framkvæmd útfarar
ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og
umhyggju að leiðarljósi
og af faglegum metnaði.
1 9 . á g ú s t 2 0 1 7 L A U g A R D A g U R38 t í m A m ó t ∙ F R É t t A B L A ð i ð
tímamót
1
9
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
8
4
-0
8
A
0
1
D
8
4
-0
7
6
4
1
D
8
4
-0
6
2
8
1
D
8
4
-0
4
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
1
2
s
_
1
8
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K