Fréttablaðið - 19.08.2017, Síða 96
og hljómsveitarstjóri frá Juilliard í
New York og hefur getið sér gott
orð fyrir störf sín vítt og breitt um
tónlistarheiminn. „Ég er alveg í
skýjunum að vera komin aftur til
Íslands. Ekki aðeins vegna þess að
þetta sé frábær hljómsveit heldur á
ég líka skyldmenni hérna.
Föðuramma mín, Thelma Gutt
ormsdóttir, er 98 ára og spilar enn á
píanó í eina klukkustund á hverjum
einasta degi. Hún er stórkostleg og
fyrir ekki svo löngu var hún meira
að segja fjallkonan á Íslendinga
hátíðinni heima. En allt þetta föður
fólk mitt er meira og minna tón
listarfólk þannig að ég er alin upp
við mikla tónlist og byrjaði snemma
að spila. Amma kenndi mér á píanó,
pabbi kenndi mér á fiðlu og ég spil
aði í æskuhljómsveitinni hans þar
sem hann var stjórnandi en svo
spilaði ég líka á flautu og fór inn í
Juilliard sem flautuleikari. Þannig
að æskan var öll full af tónlist en
það var aldrei nein pressa af hálfu
fjölskyldunnar. Engin krafa um að
ég ætti að hafa þetta að atvinnu eða
slíkt og ég held að það hafi hjálpað
mér mikið. Tónlist var líf mitt og
yndi og hefur verið það allar götur
síðan.“
KeriLynn segir að strax sem
lítil stúlka hafi hún verið heilluð
af tónlistinni, svo mjög að það gat
átt það til að vera til vandræða. „Ég
var stundum að gera foreldra mína
alveg brjálaða vegna þess að ég var
stöðugt að skipta um hljóðfæri, mér
fannst þau öll svo frábær, en svo
fann ég loksins lausnina með því að
gerast stjórnandi þar sem má segja
að ég fái að stjórna þeim öllum,“
segir KeriLynn og hlær prakkara
lega.
Á ferli sínum tekst KeriLynn á við
að stjórna bæði sinfóníutónleikum
sem og óperum en hún segir að í
æsku hafi sinfónían átt hug hennar
allan. „Ég hataði óperur vegna þess
að systir mín var óperusöngkona en
ég í sinfóníunni,“ segir hún og hlær
við tilhugsunina. „Ég var svo snobb
uð að það varð að vera Bruckner,
Mahler eða Sjostakovítsj, risarnir
sjálfir, en svo þegar ég fór í Juilliard
þá fór ég að stunda Metropolitan
óperuna. Stóð þarna aftast á nem
endasvæðinu og varð ástfangin af
óperunni. Eftir að ég lauk námi þá
starfaði ég við sinfóníuna í Dallas
og kom líka hingað meðal annars en
eftir fjögur ár þá var mér boðið að
stjórna minni fyrstu óperu, Lucia di
Lammermoor, í Veróna. En ég sagði
þeim ekkert að þetta væri mín fyrsta
ópera og það gekk bara ljómandi
vel,“ hvíslar KeriLynn og það leynir
sér ekki að það vantar ekkert upp á
húmorinn á þeim bænum. „Málið
er að innan óperuheimsins er tón
list sem er ekki í boði í hinum sin
fóníska heimi eins og til að mynda
Wagner og Verdi. „Þess vegna finnst
mér yndislegt að fá tækifæri til þess
að sinna bæði sinfónískri tónlist og
óperunni.“
Starf hljómsveitarstjóra sem
starfa á alþjóðlegum vettvangi felur
oftar en ekki í sér endalaus ferðalög
en KeriLynn segir að það angri
hana ekki. „Nei, svona er þetta bara.
Tónlistin er líf mitt, þetta er það sem
ég geri og ég elska það. Ef ég stoppa
heima í New York í tvær vikur og
hef ekkert að gera þá bilast ég af
því að ég verð að vinna. Auðvitað er
allt þetta flug þreytandi en ég flýg í
vinnuna á meðan flestir aðrir fara í
bíl en þannig er það bara. Í rauninni
er tónlistin mitt heimili. Auðvitað
sakna ég fjölskyldunnar en þetta
samband mitt við tónlistina er svo
sterkt og sem betur fer þá fer ég
bráðum til Kanada til þess að vinna.
Kanadamenn eru líka svo yndislegt
fólk að fyrir manneskju sem hefur
búið í New York í öll þessi ár þá er
dásamlegt að koma til Kanada. Þar
ekki þessi þráhyggja yfir því hvernig
fólk lítur út og annað slíkt heldur er
allt afslappaðra, hlýlegra og vina
legra. Það er miklu meira eins og að
koma til Íslands þó að borgirnar séu
stórar.“
Heldurðu að þessi bakgrunnur
hafi áhrif á það hvernig þú nálgast
tónlist? „Já, ég held það. Ég nálgast
verkefnin út frá þolinmæði og
sameiginlegum skilningi þó svo að
ég viti alveg hver endastöðin eigi
að vera. Þannig að þetta er meira
spurning um aðferð en eitthvað
annað og sem dæmi þá hefði ég
endað sem allt önnur manneskja
ef ég hefði fæðst og alist upp í Rúss
landi.“
KeriLynn hefur einmitt starfað
mikið í Rússlandi, í Pétursborg og
víðar, og hún segir að þar sé allt
öðruvísi en í vestrinu. „Umhverfið,
vinnan, félagslífið, hreinlega allt
er öðruvísi en ég elska það og ég
elska rússneska tónlist. Ætli það
sé ekki úkraínska blóðið í mér sem
gerir það að verkum en eins og svo
margir sem koma frá Winnipeg þá
er ég bæði íslensk og úkraínsk. Ég
held að þetta sé líka ástæða þess
að ég elska tónlistina sem við erum
að fara að flytja á tónleikunum hér,
Tsjajkovskí og Prokofjev, það er
dásamleg tónlist. Þetta á eftir að
verða svo gaman að ég er alveg að
springa úr tilhlökkun og hvílíkur
heiður að fá að stjórna Sinfóníu
hljómsveit Íslands á sjálfa Menn
ingarnótt borgarinnar. Ég get ekki
beðið.“
Ég fann lausnina með því að gerast stjórnandi
Hljómsveitarstjórinn Keri-Lynn Wilson er fædd og uppalin í Kanada, af íslenskum og úkraínskum ættum.
Í kvöld sameinar hún þá arfleifð þegar hún stjórnar Sinfóníuhljómsveit Íslands á Menningarnótt.
Keri-Lynn Wilson hljómsveitarstjóri segist hlakka mikið til tónleika kvöldsins á Menningarnótt. FréttabLaðið/Eyþór
Þegar ég var að byrja minn feril sem stjórnandi fyrir um tuttugu árum þá var Ísland einn af mínum fyrstu áfangastöðum. Ég á frænda
sem er sellóleikari heima í Kanada,
þar sem ég er fædd og uppalin, sem
þekkti konsertmeistara Sinfóníunn
ar á þeim tíma og hún átti heiðurinn
af því að ég kom hingað fyrst. En
þetta var fyrir löngu,“ segir Keri
Lynn Wilson sem í kvöld stjórnar
Sinfóníuhljómsveit Íslands á seinni
Menningarnæturtónleikum hljóm
sveitarinnar.
KeriLynn Wilson er af íslenskum
og úkraínskum ættum í Winnipeg í
Kanada, menntuð sem flautuleikari
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
UMHverfið, vinnan,
féLagSLÍfið, Hrein-
Lega aLLt er öðrUvÍSi en ég
eLSKa það og ég eLSKa
rúSSneSKa tónLiSt. ÆtLi það
Sé eKKi úKraÍnSKa bLóðið Í
Mér SeM gerir það að verK-
UM en einS og Svo Margir SeM
KoMa frá Winnipeg þá er ég
bÆði ÍSLenSK og úKraÍnSK.
Staða organista við
Norðfjarðarprestakall
er laus til umsóknar nú þegar.
Um er að ræða 50% starf sem organisti og stjórnandi kórs
Norðfjarðarkirkju og mjóafjarðarkirkju í Brekkusókn.
Mikilvægt er að viðkomandi hafi menntun í kirkjutónlist og starfsreynslu.
Organistastarf 50% og kórstjórn Kórs Norðfjarðarkirkju,
auk Mjóafjarðarkirkju í Brekkusókn.
UMSÓKNARFRESTUR ER TIL MÁNUDAGSINS 4. SEPTEMBER.
Þeir sem áhuga hafa á starfinu hafi samband við
Guðjón B. Magnússon formann Norðfjarðarsóknar s. 8959976,
NETFANG: gudjon@svn.is eða
Sigurð Rúnar Ragnarsson sóknarprest. Sími 8969878 / 4771766 / 4771127
NETFANG: sigurdur.runar.ragnarsson@kirkjan.is
ÁTTU RÖDD AÐ LJÁ OKKUR?
Karlakór Reykjavíkur ætlar að bæta við sig söngmönnum nú í haust og þá fara
fram raddpróf fyrir þá sem hafa áhuga á að slást í hópinn. Við prófum raddsvið
og tónheyrn og finnst það kostur ef þú býrð yfir kunnáttu í tónlist og nótnalestri,
það er þó alls ekki skilyrði.
Ef þú hefur áhuga á að koma í raddpróf skaltu hafa samband með því að senda
okkur línu á netfangið kor@kkor.is fyrir 10. september næstkomandi og við
höfum samband við þig um hæl. Frekari upplýsingar má fá í síma 856-7229.
VETRARSTARFIÐ
Starfsár Karlakórs Reykjavíkur einkennast af tveimur hápunktum. Annars vegar
eru það aðventutónleikar í Hallgrímskirkju um miðjan desember, sem alltaf
eru vel sóttir enda fastur liður í jólaundirbúningi fjölmargra landsmanna. Eftir
áramót hefst undirbúningur fyrir vortónleika í Langholtskirkju sem fara fram í
lok apríl. Á þeim tónleikum er uppskera vetrarstarfsins lögð fram og að þeim
loknum gleðjast kórmenn og makar þeirra yfir liðnum vetri og fagna vorkomu.
Til viðbótar við þessa föstu liði er starfið kryddað með með alls kyns viðburðum
á vegum ýmissa aðila.
Karlakór Reykjavíkur var stofnaður 1926 og hefur starfað samfleytt síðan. Kórinn
býður upp á krefjandi og skemmtileg viðfangsefni í tónlist og skemmtilegt
félagsstarf í góðum félagsskap. Söngferðir til útlanda eru farnar reglulega auk
þess sem byggðir landsins eru heimsóttar til tónleikahalds. Kórinn æfir tvisvar í
viku, tvo tíma í senn, og fara æfingar fram í safnaðarheimili Háteigskirkju.
EF ÁTTU DRAUM?
Karlakór Reykjavíkur bætir við sig söngmönnum í haust og þá verða
raddpróf fyrir þá sem hafa áhuga á að slást í hópinn. Við prófum raddsvið
og tónheyrn og finnst kostur ef þú býrð yfir kunnáttu í tónlist og nótnalestri,
það er þó alls ekki skilyrði.
Ef þú hefur áhuga á að koma í raddpróf skaltu hafa samband með því að
senda okkur línu á netfangið kor@kkor.is fyrir ágústlok næstkomandi og við
höfum samband við þig um hæl. Frekari upplýsingar má fá í síma 856-7229.
STARFIÐ
Starfsár Karlakórs Reykjavíkur einkennast af tveimur hápunktum. Annars
vegar eru það aðventutónleikar í Hallgrímskirkju í byrjun desember, sem
alltaf eru vel sóttir enda fastur liður í jólaundirbúningi fjölmargra lands-
manna. Eftir áramót hefst undirbúningur fyrir vortónleika í Langholtskirkju.
Á þeim tónleikum er uppskera vetrarstarfsins lögð fram og að þeim loknum
gleðjast kórmenn og makar þeirra yfir liðnum vetri og fagna vorkomu.
Til viðbótar við þessa föstu liði er starfið kryddað með með alls kyns
viðburðum á vegum ými sa aðila.
Karlakór Reykjavíkur var tofnaður 1926 og hefur starfað samfleytt síðan. Kórinn
býður upp á krefjandi og kemmtileg viðfangsef i í tónlist og skemmtilegt
félagsstarf í góðum félagsskap. Söngferðir til útl nda eru farnar re lulega auk
þess sem byggðir landsins eru heimsóttar til tónleikahalds. Kórinn æfir tvisvar í
viku, tvo tíma í senn, og fara æfingar fram í safnaðarheimili Háteigskirkju.
1 9 . á g ú s t 2 0 1 7 L A U g A R D A g U R48 m e n n i n g ∙ F R É t t A B L A ð i ð
menning
1
9
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
6
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
8
3
-D
C
3
0
1
D
8
3
-D
A
F
4
1
D
8
3
-D
9
B
8
1
D
8
3
-D
8
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
1
1
2
s
_
1
8
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K