Fréttablaðið - 24.08.2017, Blaðsíða 38
Elín er komin rúmar 35 vikur á leið og Jakobína 29 vikur. MYNDIR/ANTON
Ég æfði CrossFit fram á síðasta dag alla síðustu meðgöngu og fannst það bara gera mér gott.
Það gaf góða raun og hafði engin
óæskileg áhrif á meðgönguna,“
segir Elín sem gekk 16 daga fram
yfir og var sett af stað. „Ég hélt því
mínu striki þegar ég varð ólétt á
ný en verð þó að viðurkenna að ég
finn aðeins meira fyrir þessu núna.
Ég hef því lagað æfingarnar að því
sem mér líður vel með að gera.“
Elín lyftir þungu, gerir upp
hífingar og svokölluð burpee‘s
svo dæmi séu nefnd, en skalar
æfingarnar niður eins og hentar.
„Ef ég finn samdrætti hægi ég á
mér og styð mig við kassa, lóð og
bolta til að varna því að ég þurfi að
beygja mig um of eða að bumban
rekist í gólf. Ég geri lítið sem ekkert
af kviðæfingum ef frá er talinn
hliðarkviður og er hætt að hlaupa.
Ég hjóla þeim mun meira og fer
í róðrarvélina,“ segir Elín sem er
komin rúmar 35 vikur á leið í dag.
Það sama á við um Jakobínu systur
hennar sem er komin 29 vikur á
leið.
Elín mælir ekki endilega með
jafn kröftugum æfingum fyrir allar
óléttar konur en segir þó enga
ástæðu til að reyna ekki að halda
sér í formi þótt barn sé undir belti.
„Þetta fer allt svolítið eftir því hvað
hver og ein kona hefur verið að
gera áður. Við erum eins ólíkar
og við erum margar og það sem
einni finnst allt í lagi finnst ann
arri óþægilegt. Þær sem hafa lítið
hreyft sig ættu líkast til ekki að
byrja á þessu en þær sem eru virkar
geta vel reynt að halda sér við.“
Elín segir hreyfingu á meðgöngu
ekki snúast um að bæta sig heldur
að líða vel og halda sér í formi.
„Mér líður persónulega ótrúlega
vel eftir að hafa hreyft mig og
svitnað aðeins. Ég fyllist orku og
endorfíni og held að í mínu tilfelli
geri það barninu gott auk þess sem
ég verð að öllum líkindum fljótari
að ná mér.“ Elín segir æfingar
Æfa af krafti á meðgöngu
Tvíburasysturnar Elín og Jakobína Jónsdætur eru afar samstíga. Þær eiga báðar þriggja ára drengi
og eiga báðar von á sínu öðru barni. Að þessu sinni eru rúmar sex vikur á milli og aftur er von á
drengjum. Þær systur reka CrossFit-stöðina Grandi101 ásamt eiginmönnum sínum, þeim Núma
Snæ Katrínarsyni og Grétari Ali Khan, og víla ekki fyrir sér að halda áfram að æfa á meðgöngu.
þeirra systra á meðgöngu ekki fara
fram hjá iðkendum Granda101 og
vonar að það veiti þeim konum
hvatningu sem treysta sér til að
æfa á meðgöngu.
Elín og Jakobína æfðu sund á
árum áður og eiginmaður Elínar,
Númi Snær, var landsliðsmaður
í sundi. „Síðan höfum við alltaf
hreyft okkur en það var ekki fyrr
en sumarið 2010 sem við Númi
byrjuðum í CrossFit. Við vorum þá
nýflutt til Stokkhólms og byrj
uðum í CrossFit Nordic.“
Elín lagði stund á alþjóða
samskipti og starfaði í íslenska
sendiráðinu í Stokkhólmi. Númi
náði strax góðum tökum á CrossFit
og keppti í sinni fyrstu einstakl
ingskeppni 2012 á meðan Elín tók
þátt í hópakeppnum. Þau hjónin
gerðust síðar hluthafar í CrossFit
Nordic og eru það enn. „Það er
mikill félagsskapur í kringum
CrossFit og þetta varð eins og fjöl
skylda okkar á meðan við vorum
úti,“ upplýsir Elín.
Í byrjun árs ákváðu þau Númi
að flytja aftur heim og stofna
CrossFitstöð úti á Granda.
„Jakobína systir hafði verið að
þjálfa CrossFit hér heima og við
ákváðum að leiða saman hesta
okkar. Við erum báðar aldar upp á
Seltjarnarnesi og búum þar í dag.
Okkur fannst vanta CrossFitstöð
í vesturborgina og fengum hús
næði að Fiskislóð 4951. Stöðin
var opnuð í lok febrúar og
eru iðkendur þegar orðnir
300 talsins. „Við fyllum hvert
námskeiðið á fætur öðru og
gætum ekki verið ánægðari
með viðtökurnar, þær eru
framar björtustu vonum,“
segir Elín.
Hún segir árið hafa verið
verulega viðburðaríkt hjá þeim
systrum; flutningar, stofnun fyrir
tækis og frekari barneignir. Þegar
hún er spurð hvort þær hafi planað
að verða samferða hlær hún við:
„Ja þetta var nú næstum einum
of mikið af því góða.“ Fimm
mánuðir eru á milli eldri sona
þeirra systra en nú eru það
sem fyrr segir aðeins rúmar
sex vikur. „Við höfum stundum
reynt að fara ólíkar leiðir í
lífinu en einhvern veginn
virðumst við alltaf enda í
takt.“
Að sögn Elínar snýst
hreyfing á meðgöngu
ekki um að bæta sig
heldur að líða vel og
halda sér í formi.
Elín mælir ekki endilega
með jafn kröftugum
æfingum fyrir allar
óléttar konur en segir
þó enga ástæðu til að
reyna ekki að halda sér í
formi þótt barn sé undir
belti. „Þetta fer allt svo-
lítið eftir því hvað hver
og ein kona hefur verið
að gera áður.“
Vera
Einarsdóttir
vera@365.is
„Mér líður persónulega ótrúlega vel eftir að hafa hreyft mig og svitnað aðeins.
Ég fyllist orku og endorfíni og held að í mínu tilfelli geri það barninu gott auk
þess sem ég verð að öllum líkindum fljótari að ná mér,“ segir Elín.
Elín lyftir þungu og gerir upp-
hífingar en skalar æfingarnar
niður.
8 KYNNINGARBLAÐ 2 4 . áG ú s T 2 0 1 7 F I M MT U DAG U RhEILsuRÆKT
2
4
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:4
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
8
F
-D
0
3
4
1
D
8
F
-C
E
F
8
1
D
8
F
-C
D
B
C
1
D
8
F
-C
C
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
7
2
s
_
2
3
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K