Fréttablaðið - 24.08.2017, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 24.08.2017, Blaðsíða 2
Veður Hæg breytileg átt í dag og yfirleitt léttskýjað inn til landsins, en víða verður þokuloft við ströndina sem gæti látið sjá sig inn á land. sjá síðu 32 Endurvekja kaupmanninn á horninu „Ég get ekki keppt við stóru verslanirnar en þær geta heldur ekki keppt við okkur og þjónustustigið sem við bjóðum upp á,“ segir Davíð Þór Rúnars- son. Hann og kærasta hans, Andrea Bergsdóttir, opnuðu í liðinni viku hverfisverslunina Hverfisverslun í Grafarvogi. Davíð hefur gengið með hug- myndina í maganum í þrjú ár. Markmiðið er að fá aftur stemninguna sem einkenndi verslanir á árum áður. – Sjá síðu 48. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK KRINGLUNNI 2. HÆÐ - HAGKAUPSHÚSINU, SKEIFUNNI SPÖNGINNI, GRAFARVOGI MARGSKIPT GLER 39.900 kr. Fullt verð: 75.900 kr Evolis frönsku verðlaunaglerin frá BBGR eru með tvöfalda yfirborðsslípun sem færir þau í nýja vídd. 48% AFSLÁTTUR! Landbúnaður Guðrún Hrafnsdóttir, hrossabóndi á Skeggsstöðum, fær ekki að nefna hryssuna sína Mósuna. Samkvæmt nýlegum lögum Alþjóðasamtaka um íslenska hestinn, FEIF, mega hross ekki heita hvað sem er. Tveggja manna nefnd leggur blessun sína yfir hvað hreinræktuð hross fá að heita og eru skráð í gagnabankann WorldFeng. Nafninu Mósan var hafnað því að nöfn með greini brjóti í bága við íslenska nafnahefð og því að sérnöfn eru nokkurs konar jafngildi orða með greini. Nafnið Hrymjandi var samþykkt sem og Ævör á sama fundi. Eftir stendur þriggja vetra Mósan, sem fær ekki að heita sínu nafni og er Guðrún ósátt við að nefndin hafi unnið eftir nýju reglunum, þó þau hafi ekki verið samþykkt fyrr en í ár. Atvinnuvegaráðuneytið hefur skoðað málið og Fréttablaðið hefur heimildir fyrir því að verið sé að skoða á hvaða lagagrunni þessi hópur telji sér heimilt að neita fólki um að nefna hrossin sín hvaða nafni sem er. Guðrún segir að Mósan sé dásamleg meri þó það sé ekki komin reynsla á hana enda aðeins þriggja vetra. Hún segir nafnið koma til eftir samtal við hana úti í haga. „Ég var að tala við hana, hvað segir Mósan mín og það festist bara. Það er oft skýrt með greini. Álfurinn, Prinsinn og fleira. Það eru hross, en þetta er hryssa, kannski er einhver mismunun,“ spyr hún. „Ég veit að það er til merin Fléttan til dæmis. Það er eitthvað misjafnt í þessu,“ segir Guðrún sem hefur sent innanríkisráðuneytinu fyrirspurn vegna málsins. Þar hefur hún verið í fimm mánuði. benediktboas@365.is Nefnd um hestanöfn neitar nafni Mósunnar Bóndi á Skeggsstöðum fær ekki að nefna þriggja vetra merina sína Mósuna en frá febrúar hefur hestanafnanefnd úrslitavald um hvað hross megi heita. Atvinnuvegaráðuneytið skoðar nú á hvaða lagagrunni nefndin starfar. Mósan frá Skeggsstöðum er fædd 2014, og er því þriggja vetra, undan Össu frá Stafafelli og Trymbli frá Stóra-Ási. Hér er Mósan ásamt systurdóttur Guð- rúnar, Guðrúnu Þóru Björgvinsdóttur. MyNd/KOLBRúN HRAFNSdóTTIR Nafnagiftir íslenskra hrossa í WorldFeng Eftirtaldar reglur gilda um nöfn á hrossum sem skráð eru í WorldFeng: l Nafnið þarf að vera í samræmi við íslenskar reglur og hefðir um nafn- giftir. l Nafnið þarf að geta tekið íslenskri eignarfallsendingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. l Nafnið má ekki brjóta í bága við íslenskt málkerfi. l Nöfn þurfa að vera í karlkyni fyrir stóðhesta/geldinga og í kvenkyni fyrir hryssur, hvorugkyns orð eru ekki leyfileg sem nöfn. l Nöfn sem innihalda skammstafanir eru ekki leyfileg. l Nöfn sem eru ruddaleg eða hafa klúra meiningu, nöfn sem þykja ekki smekkleg eða eru dónaleg gagnvart trúar- eða þjóðfélagslegum hópum eru ekki leyfð. Viðskipti Glæpasagnahöfundurinn Arnaldur Indriðason hagnaðist um 35,5 milljónir króna á síðasta ári samkvæmt nýbirtum ársreikningi eignarhaldsfélags hans, Gilhaga ehf. Félagið notar hann utan um skrif og útgáfu bóka sinna og gerir velgengni hans á ritvellinum síðasta rúma ára- tuginn það að verkum að félagið er afar sterkt fjárhagslega. Hagnaður Gilhaga dróst þó veru- lega saman milli ára, eða um ríflega 66%, samkvæmt ársreikningi enda nam hann 106,7 milljónum króna árið 2015. Einn starfsmaður starfaði hjá félaginu í fyrra, en Arnaldur og eiginkona hans eru skráðir fram- kvæmdastjórar þess og Arnaldur skráður fyrir öllu hlutafé. Fram kemur í ársreikningi Gil- haga að Arnaldur hafi greitt sér rúmlega 31 milljón króna í arð út úr félaginu. Samanlagður hagnaður Gilhaga frá árinu 2003 nemur 1.087 millj- ónum króna en samkvæmt árs- reikningi nemur óráðstafað eigið fé félagsins rétt tæplega 740 millj- ónum króna. Ljóst má því vera að krimmakóngurinn er í fjárhags- legum sérflokki meðal íslenskra rit- höfunda. – smj Arnaldur situr á 740 milljónum Arnaldur Indriða- son 1.087 milljónir er samanlagður hagnaður eignar- haldsfélags Arnalds Indriðasonar síðan 2003. sLYs Alvarlegt hjólreiðaslys varð á gatnamótum Miklubrautar og Háaleitisbrautar eftir að strætis- vagni var ekið á konu á reiðhjóli rétt eftir átta í gærkvöldi. Lögregla og slökkvilið höfðu töluverðan við- búnað á slysstað. Strætisvagninum var ekið í austurátt en slysið átti sér stað við aðreinina að Háaleitisbraut. Samkvæmt upplýsingum frá sjónarvottum lenti konan undir strætisvagninum við áreksturinn en reiðhjólið kastaðist í burtu. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu var um alvarlegt slys að ræða og konan flutt á sjúkrahús til aðhlynningar.  Ekki var vitað nánar um líðan konunnar þegar Fréttablaðið fór í prentun seint í gærkvöldi. – tpt Kona lenti í alvarlegu hjólreiðaslysi 2 4 . á g ú s t 2 0 1 7 F i M M t u d a g u r2 F r é t t i r ∙ F r é t t a b L a ð i ð 2 4 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :4 2 F B 0 7 2 s _ P 0 7 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 2 K _ N Ý. p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 8 F -B 2 9 4 1 D 8 F -B 1 5 8 1 D 8 F -B 0 1 C 1 D 8 F -A E E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 7 2 s _ 2 3 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.