Fréttablaðið - 24.08.2017, Blaðsíða 19

Fréttablaðið - 24.08.2017, Blaðsíða 19
Bill O’Reilley, þá frægasti sjón-varpsmaður Fox-stöðv arinnar, sagði í viðtali við Trump forseta í febrúar leið: „Pútín er morðingi.“ Forsetinn svaraði: „Það er fullt af morðingjum. Við erum með fullt af morðingjum. Heldurðu að landið okkar sé svona saklaust?“ Það er saga til næsta bæjar að forseti Banda- ríkjanna leggi land sitt að jöfnu við Rússland sem réttarríki. Morð á blaðamönnum eru sjaldgæf í Bandaríkjunum sem betur fer en algeng í Rússlandi. Á vefsetri samtaka blaðamanna í New York, Committee to Protect Journalists, kemur fram að frá 1992 hafa 38 blaðamenn verið myrtir í Rússlandi á móti fjórum í Bandaríkjunum eins og ég lýsti á þessum stað fyrir viku. Bandarískir blaðamenn þurfa samt að fara varlega. Blaðamaðurinn og rithöfundurinn Jane Mayer birti langa ritgerð í New Yorker og síðan bók, Dark Money, um bræður tvo, Charles og David Koch, sem hafa látið mjög að sér kveða í undirheimum bandarískra stjórnmála síðustu ár. Mayer varð þess áskynja nokkru síðar að bræðurnir höfðu ráðið einkaspæjara til að leita að óþægilegum upplýsingum um hana eða ljúga ella einhverju á hana. Þeir reyndu að bera á hana ritstuld, en atlagan geigaði. Kærleiksheimili í Kansas Bræðurnir eru fjórir. Faðir þeirra, Fred Koch, rak olíuvinnslu, starfaði um hríð í Þýzkalandi þar sem hann hjálpaði til við að smyrja stríðsvél nasista enda hallur undir Hitler og var orðinn ríkastur allra í Kansas þegar hann dó 1967. Hann hafði lesið efnaverkfræði í Tækniháskólanum í Massachus- etts (MIT). Það gerðu einnig yngstu synir hans þrír, Charles, David og William, en elzti bróðirinn Fredrick kaus heldur að lesa heimspeki o.fl. í Harvard. Yngri bræðurnir reyndu að fjárkúga hinn elzta með því að hóta því að segja föður þeirra að hann væri samkynhneigður og þeir brutust inn hjá honum í leit að sönnunargögnum. Atlagan geigaði, en faðirinn skrifaði hann samt út úr erfðaskránni og gerði heldur sérstaklega upp við hann þar eð hann taldi hann þjófóttan, en Fred rick sagðist sjálfur hvorki vera samkynhneigður né þjófur. Eftir lát föðurins hófust eitruð málaferli milli bræðranna þar sem Fredrick og William töldu Charles og David hafa svikið sig um stórfé þegar síðar nefndu keyptu fyrr nefndu út úr fjölskyldufyrirtækinu á hóflegu verði svo notað sé orðalag Ríkisendurskoð- unar um einkavæðingu bankanna hér heima. Bræðurnir töluðust ekki við eftir það nema Charles og David eru enn mestu mátar. Þeir fengu fleira en efnaverkfræði í vöggugjöf frá föður sínum, t.d. viðskiptavit og stjórnmálaskoðanir. (Móðir þeirra er sjaldan nefnd til sögunnar; þeir áttu móður.) Bræðurnir gáfu sig að öfga- samtökum yzt á hægri væng stjórn- málanna (skattlagning er þjófnaður, eftirlit er ofbeldi, umhverfisvernd er óþarfi, loftslag fer ekki hlýnandi o.s.frv.). David var m.a.s. varaforseta- frambjóðandi Frjálshyggjuflokksins 1980, en lítið fylgi flokksins sannfærði bræðurna um að vænlegra væri og hampaminna að kaupa stjórnmála- menn í kippum en reyna að sannfæra kjósendur. Þeir hafa æ síðan ausið ómældu fé í frambjóðendur Repú- blikanaflokksins o.fl. Tæring í boði Hæstaréttar Þegar Barack Obama var kjörinn forseti Bandaríkjanna 2008 settu Koch-bræður kosningavél sína á fulla ferð ásamt fáeinum öðrum auðmönnum sem margir höfðu komizt í kast við lögin, einkum umhverfisverndarlög. Þannig varð teboðshreyfingin til, hreyfing sem hristi rækilega upp í Repúblikanaflokknum með því að ýta til hliðar hófsömum flokksmönnum til að rýma fyrir frumskógaíhaldi. Baráttan skilaði sigri repúblikana í kosningunni til fulltrúadeildar þingsins 2010 og til beggja þingdeilda 2014 og hafa þeir haft meiri hluta í báðum deildum frá 2014. Koch- bræður studdu þó ekki Donald Trump í forsetakjörinu 2016. Straumhvörfin 2010 eiga sér þá einföldu skýringu að það ár létti Hæstiréttur Bandaríkjanna öllum hömlum af fjárframlögum til stjórnmálastarfsemi á þeirri forsendu að fyrri hömlur feli í sér málfrelsisskerðingu. Þessi dómur gerði fámennum hópi auðmanna kleift að taka sér boðvald yfir auknum fjölda þingmanna. Þess vegna munaði ekki nema hársbreidd að þingið ákvæði um daginn að svipta 24 milljónir Bandaríkjamanna nýfengnum heilbrigðistryggingum til að fjármagna skattalækkun handa auðmönnum. Þetta skýrir að hluta hvers vegna Bandaríkin teljast ekki lengur vera óskorað lýðræðisríki á viðtekna kvarða stjórnmálafræðinga. Æ fleiri fræðimenn lýsa Bandaríkjunum sem fáræðisríki (e. oligarchy) frekar en lýðræðisríki. Fæstir telja þó rétt að kalla Bandaríkin þjófræðisríki (e. kleptocracy) líkt og t.d. Rússland og ýmis önnur lönd þar sem harðdrægir hagsmunaseggir hafa sölsað undir sig náttúruauðlindir eða önnur hlunnindi á kostnað almennings. Fyrrverandi siðameistari Hvíta hússins hefur þó nýlega varað við hættunni á að sú nafngift kunni að festast við Bandaríkin. Heilbrigð fjármögnun stjórn- málastarfsemi þarf að lúta skýrum takmörkunum og ströngu eftirliti. Hömlulaus fjárframlög til stjórnmála- manna og flokka grafa undan lýðræði og ógna velferð almennings eins og reynsla Bandaríkjanna vitnar um. Nærandi eða tærandi? Þorvaldur Gylfason Í dag Straumhvörfin 2010 eiga sér þá einföldu skýringu að það ár létti Hæstiréttur Bandaríkjanna öllum hömlum af fjárfram- lögum til stjórnmálastarfsemi á þeirri forsendu að fyrri hömlur feli í sér málfrelsisskerðingu. Þessi dómur gerði fámennum hópi auðmanna kleift að taka sér boðvald yfir auknum fjölda þingmanna. HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæwww.volkswagen.is Við látum framtíðina rætast. Passat GTE Variant. Dráttarbeisli fylgir í júlí og ágúst. Nú fylgja dráttarbeisli með öllum Volkswagen Passat GTE Variant í júlí og ágúst. Hann er jafnvígur á rafmagn og bensín. Þú kemst flestra þinna ferða á raforkunni einni saman, en í langferðum tekur sparneytin bensínvélin við. Láttu það eftir þér að krækja í nýjan Passat GTE Variant. Passat GTE Variant togar í mann. Verð frá 4.930.000 kr. S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 19F i M M T u d a g u R 2 4 . á g ú S T 2 0 1 7 2 4 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :4 2 F B 0 7 2 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 8 F -B 7 8 4 1 D 8 F -B 6 4 8 1 D 8 F -B 5 0 C 1 D 8 F -B 3 D 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 7 2 s _ 2 3 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.