Fréttablaðið - 24.08.2017, Blaðsíða 19
Bill O’Reilley, þá frægasti sjón-varpsmaður Fox-stöðv arinnar, sagði í viðtali við Trump forseta
í febrúar leið: „Pútín er morðingi.“
Forsetinn svaraði: „Það er fullt af
morðingjum. Við erum með fullt af
morðingjum. Heldurðu að landið
okkar sé svona saklaust?“ Það er saga
til næsta bæjar að forseti Banda-
ríkjanna leggi land sitt að jöfnu við
Rússland sem réttarríki.
Morð á blaðamönnum eru sjaldgæf
í Bandaríkjunum sem betur fer en
algeng í Rússlandi. Á vefsetri samtaka
blaðamanna í New York, Committee
to Protect Journalists, kemur fram
að frá 1992 hafa 38 blaðamenn verið
myrtir í Rússlandi á móti fjórum í
Bandaríkjunum eins og ég lýsti á
þessum stað fyrir viku. Bandarískir
blaðamenn þurfa samt að fara varlega.
Blaðamaðurinn og rithöfundurinn
Jane Mayer birti langa ritgerð í New
Yorker og síðan bók, Dark Money, um
bræður tvo, Charles og David Koch,
sem hafa látið mjög að sér kveða í
undirheimum bandarískra stjórnmála
síðustu ár. Mayer varð þess áskynja
nokkru síðar að bræðurnir höfðu
ráðið einkaspæjara til að leita að
óþægilegum upplýsingum um hana
eða ljúga ella einhverju á hana. Þeir
reyndu að bera á hana ritstuld, en
atlagan geigaði.
Kærleiksheimili í Kansas
Bræðurnir eru fjórir. Faðir þeirra, Fred
Koch, rak olíuvinnslu, starfaði um hríð
í Þýzkalandi þar sem hann hjálpaði
til við að smyrja stríðsvél nasista enda
hallur undir Hitler og var orðinn
ríkastur allra í Kansas þegar hann dó
1967. Hann hafði lesið efnaverkfræði
í Tækniháskólanum í Massachus-
etts (MIT). Það gerðu einnig yngstu
synir hans þrír, Charles, David og
William, en elzti bróðirinn Fredrick
kaus heldur að lesa heimspeki o.fl. í
Harvard. Yngri bræðurnir reyndu að
fjárkúga hinn elzta með því að hóta
því að segja föður þeirra að hann væri
samkynhneigður og þeir brutust inn
hjá honum í leit að sönnunargögnum.
Atlagan geigaði, en faðirinn skrifaði
hann samt út úr erfðaskránni og gerði
heldur sérstaklega upp við hann þar
eð hann taldi hann þjófóttan, en
Fred rick sagðist sjálfur hvorki vera
samkynhneigður né þjófur.
Eftir lát föðurins hófust eitruð
málaferli milli bræðranna þar sem
Fredrick og William töldu Charles og
David hafa svikið sig um stórfé þegar
síðar nefndu keyptu fyrr nefndu út úr
fjölskyldufyrirtækinu á hóflegu verði
svo notað sé orðalag Ríkisendurskoð-
unar um einkavæðingu bankanna
hér heima. Bræðurnir töluðust ekki
við eftir það nema Charles og David
eru enn mestu mátar. Þeir fengu
fleira en efnaverkfræði í vöggugjöf
frá föður sínum, t.d. viðskiptavit og
stjórnmálaskoðanir. (Móðir þeirra er
sjaldan nefnd til sögunnar; þeir áttu
móður.) Bræðurnir gáfu sig að öfga-
samtökum yzt á hægri væng stjórn-
málanna (skattlagning er þjófnaður,
eftirlit er ofbeldi, umhverfisvernd
er óþarfi, loftslag fer ekki hlýnandi
o.s.frv.). David var m.a.s. varaforseta-
frambjóðandi Frjálshyggjuflokksins
1980, en lítið fylgi flokksins sannfærði
bræðurna um að vænlegra væri og
hampaminna að kaupa stjórnmála-
menn í kippum en reyna að sannfæra
kjósendur. Þeir hafa æ síðan ausið
ómældu fé í frambjóðendur Repú-
blikanaflokksins o.fl.
Tæring í boði Hæstaréttar
Þegar Barack Obama var kjörinn
forseti Bandaríkjanna 2008
settu Koch-bræður kosningavél
sína á fulla ferð ásamt fáeinum
öðrum auðmönnum sem margir
höfðu komizt í kast við lögin,
einkum umhverfisverndarlög.
Þannig varð teboðshreyfingin til,
hreyfing sem hristi rækilega upp í
Repúblikanaflokknum með því að ýta
til hliðar hófsömum flokksmönnum
til að rýma fyrir frumskógaíhaldi.
Baráttan skilaði sigri repúblikana
í kosningunni til fulltrúadeildar
þingsins 2010 og til beggja þingdeilda
2014 og hafa þeir haft meiri hluta
í báðum deildum frá 2014. Koch-
bræður studdu þó ekki Donald Trump
í forsetakjörinu 2016.
Straumhvörfin 2010 eiga sér
þá einföldu skýringu að það ár
létti Hæstiréttur Bandaríkjanna
öllum hömlum af fjárframlögum
til stjórnmálastarfsemi á þeirri
forsendu að fyrri hömlur feli í sér
málfrelsisskerðingu. Þessi dómur
gerði fámennum hópi auðmanna
kleift að taka sér boðvald yfir auknum
fjölda þingmanna. Þess vegna
munaði ekki nema hársbreidd að
þingið ákvæði um daginn að svipta
24 milljónir Bandaríkjamanna
nýfengnum heilbrigðistryggingum
til að fjármagna skattalækkun handa
auðmönnum. Þetta skýrir að hluta
hvers vegna Bandaríkin teljast ekki
lengur vera óskorað lýðræðisríki á
viðtekna kvarða stjórnmálafræðinga.
Æ fleiri fræðimenn lýsa
Bandaríkjunum sem fáræðisríki (e.
oligarchy) frekar en lýðræðisríki.
Fæstir telja þó rétt að kalla Bandaríkin
þjófræðisríki (e. kleptocracy) líkt og
t.d. Rússland og ýmis önnur lönd þar
sem harðdrægir hagsmunaseggir hafa
sölsað undir sig náttúruauðlindir
eða önnur hlunnindi á kostnað
almennings. Fyrrverandi siðameistari
Hvíta hússins hefur þó nýlega varað
við hættunni á að sú nafngift kunni að
festast við Bandaríkin.
Heilbrigð fjármögnun stjórn-
málastarfsemi þarf að lúta skýrum
takmörkunum og ströngu eftirliti.
Hömlulaus fjárframlög til stjórnmála-
manna og flokka grafa undan lýðræði
og ógna velferð almennings eins og
reynsla Bandaríkjanna vitnar um.
Nærandi eða tærandi?
Þorvaldur
Gylfason
Í dag
Straumhvörfin 2010 eiga sér
þá einföldu skýringu að það ár
létti Hæstiréttur Bandaríkjanna
öllum hömlum af fjárfram-
lögum til stjórnmálastarfsemi á
þeirri forsendu að fyrri hömlur
feli í sér málfrelsisskerðingu.
Þessi dómur gerði fámennum
hópi auðmanna kleift að taka
sér boðvald yfir auknum fjölda
þingmanna.
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæwww.volkswagen.is
Við látum framtíðina rætast.
Passat GTE Variant. Dráttarbeisli fylgir í júlí og ágúst.
Nú fylgja dráttarbeisli með öllum Volkswagen Passat GTE Variant í júlí og ágúst. Hann er jafnvígur
á rafmagn og bensín. Þú kemst flestra þinna ferða á raforkunni einni saman, en í langferðum tekur
sparneytin bensínvélin við. Láttu það eftir þér að krækja í nýjan Passat GTE Variant.
Passat GTE Variant togar í mann.
Verð frá 4.930.000 kr.
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 19F i M M T u d a g u R 2 4 . á g ú S T 2 0 1 7
2
4
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:4
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
8
F
-B
7
8
4
1
D
8
F
-B
6
4
8
1
D
8
F
-B
5
0
C
1
D
8
F
-B
3
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
7
2
s
_
2
3
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K