Fréttablaðið - 24.08.2017, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 24.08.2017, Blaðsíða 10
gæði... ending… ánægja. skoðaðu úrvalið á Weber.is Regalofagmenn www.regalo.is Fríða Rut Heimisdóttir Hárgreiðslumeistari Veldu með hjartanu 100% vegan hárvörur frá Maria Nila. Head & Hair Heal verndar lit hársins, örvar hárvöxt og vinnur á móti hárlosi, þurrum hársverði og flösu ásamt því að vera bólgueyðandi. Sjampóið og hárnæringin eru hönnuð til daglegra nota fyrir alla. Maskan má nota 1-2 í viku. Allar vörurnar í línunni innihalda vegan innihaldsefni, en hvorki súlföt, paraben né aðra ofnæmisvalda. Regalo ehf Iceland Bæjarhrauni 2 | Hafnarfirði | Sími: 4370000 | hafis@hafis.is Komdu og fáðu rjómaís og laktósafrían vegan ís Íslenskur ís með ítalskri hefð Danmörk Danska lögreglan hefur staðfest að búkurinn sem fannst við Amager á mánudaginn er hluti af jarðneskum leifum sænsku blaðakonunnar Kim Wall. DNA úr búknum var hið sama og fannst í hárbursta og tannbursta Wall. Jens Møller Jensen, sem stýrir rannsókninni á andláti Wall, segir að málmhlutur hafi verið festur við búkinn til að þyngja hann og síðan hafi búknum verið varpað í sjóinn. Wa l l s á s t s í ð a s t l i f a n d i hinn 10. ágúst þegar hún fór af stað í kafbátsferð með uppfinningamanninum Peter Madsen. Unnusti hennar tilkynnti daginn eftir að hún hefði ekki skilað sér úr ferðinni. Nokkru seinna var kafbáturinn sokkinn. Madsen, sem hannaði og smíðaði kafbátinn, er nú grunaður um morð. Hann fullyrti upphaflega að hann hefði skilað Wall heilli á húfi nærri Kaupmannahöfn en síðan hefur hann breytt framburði sínum og sagt að hún hafi látist í slysi og hann hafi komið líkinu fyrir í sjónum. Danska lögreglan telur að Madsen hafi viljandi sökkt kafbátnum. Blóðblettir hafa fundist í bátnum og hafa DNA-próf sýnt að blóðið er úr Wall. Jensen vill ekki tjá sig neitt um dánarorsök en segir að réttarmeinafræðingar séu enn að rannsaka jarðnesku leifarnar. Fram hefur komið að útlimir hafi verið höggnir af búknum. Hann segir að lögreglan leiti enn að þeim líkamsleifum. Betina Hald Engmark, verjandi Madsens, segir að niðurstaða DNA- prófsins breyti engu varðandi skýringar Madsens. „Skjólstæðingur minn og ég lítum það bara jákvæðum augum, að búið sé að finna út úr því að það er Kim Wall sem fannst,“ sagði hún í samtali við Danmarks Radio. „ Þ e s s i D N A - s a m s v ö r u n breytir því hins vegar ekki að skjólstæðingur minn segir að það hafi orðið slys,“ segir Engmark við danska blaðið BT. Verjandinn hafði áður gagnrýnt lögregluna fyrir að hafa tengt þessar jarðnesku leifar við Wall og kafbátinn í tilkynningu á Twitter án þess að geta stutt þá yfirlýsingu með rannsóknargögnum. „Ég gaf í skyn að það væri óeðlilegt af lögreglunni að fullyrða svona áður en staðreyndirnar lægju fyrir. En nú höfum við þær,“ sagði Engmark við BT. jonhakon@frettabladid.is Heldur enn fram að um slys hafi verið að ræða Danska lögreglan hefur staðfest að jarðneskar leifar sem fundust við Amager séu af líki blaðakonunnar Kim Wall. Grunaður ódæðismaður, Peter Madsen, segir konuna hafa lent í slysi og að niðurstöður DNA breyti engu um framburðinn. Danskar björgunarsveitir aðstoðuðu í gær lögregluna við að leita að líkamshlutum af Kim Wall í Kalvebod Fælled í Kaupmannahöfn. Búkurinn fannst 21. ágúst. FréttaBlaðið/EPa Danska lögreglan telur að Madsen hafi viljandi sökkt kafbátnum. n O rEG U r Heilbrigðisráðherra Noregs, Bent Høie, og aðrir háttsettir einstaklingar í heilbrigðisgeiranum h a f a h a r ð l e g a g a g n r ý n t lyfjafyrirtækið Roche sem er meðal fyrirtækja sem norski Olíusjóðurinn, lífeyrissjóður Norðmanna, hefur fjárfest hvað mest í. Norska ríkisútvarpið greinir frá því að heilbrigðisráðherrann hafi oft gagnrýnt lyfjafyrirtækið fyrir að draga það á langinn að bjóða verð sem norsk yfirvöld hafa getað sætt sig við. Eftir þriggja ára samningaviðræður við Roche hefur nú sérstök nefnd ákveðið að bjóða sjúklingum á norskum sjúkrahúsum brjóstakrabbameinslyfið Kadcyla án endurgjalds. Þingmaður Miðflokksins í Noregi, Kjersti Toppe, segir það skjóta skökku við að ríkið skuli í gegnum Olíusjóðinn fjárfesta í lyfjafyrirtækinu Roche samtímis því sem heilbrigðisráðherrann gagnrýnir það fyrir siðleysi gagnvart norskum sjúklingum með því að krefjast hárra greiðslna fyrir mikilvæg lyf. Olíusjóðurinn átti í mars síðastliðnum hlutabréf fyrir 37,2 milljarða norskra króna í fyrirtækinu. Ráðherrann segir ekkert athugavert við fjárfestingu í lyfjafyrirtækjum. – ibs Gagnrýni á fjárfestingu í lyfjafyrirtæki lyfjafyrirtækið roche krafðist hárra greiðslna. FréttaBlaðið/EYÞÓr Olíusjóðurinn átti í mars síðastliðnum hlutabréf fyrir 37,2 milljarða norskra króna í fyrirtækinu. 2 4 . á G ú s t 2 0 1 7 F I m m t U D a G U r10 F r é t t I r ∙ F r é t t a B L a ð I ð 2 4 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :4 2 F B 0 7 2 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 9 0 -0 1 9 4 1 D 9 0 -0 0 5 8 1 D 8 F -F F 1 C 1 D 8 F -F D E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 9 B F B 0 7 2 s _ 2 3 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.