Fréttablaðið - 24.08.2017, Blaðsíða 10
gæði... ending… ánægja.
skoðaðu úrvalið á Weber.is
Regalofagmenn
www.regalo.is
Fríða Rut Heimisdóttir
Hárgreiðslumeistari
Veldu með hjartanu 100% vegan
hárvörur frá Maria Nila.
Head & Hair Heal verndar lit hársins,
örvar hárvöxt og vinnur á móti hárlosi,
þurrum hársverði og flösu ásamt því
að vera bólgueyðandi. Sjampóið og
hárnæringin eru hönnuð
til daglegra nota fyrir alla.
Maskan má nota 1-2 í viku.
Allar vörurnar í línunni innihalda
vegan innihaldsefni, en hvorki súlföt,
paraben né aðra ofnæmisvalda.
Regalo ehf Iceland
Bæjarhrauni 2 | Hafnarfirði | Sími: 4370000 | hafis@hafis.is
Komdu og fáðu rjómaís og laktósafrían vegan ís
Íslenskur ís með ítalskri hefð
Danmörk Danska lögreglan hefur
staðfest að búkurinn sem fannst
við Amager á mánudaginn er hluti
af jarðneskum leifum sænsku
blaðakonunnar Kim Wall. DNA úr
búknum var hið sama og fannst í
hárbursta og tannbursta Wall.
Jens Møller Jensen, sem stýrir
rannsókninni á andláti Wall, segir
að málmhlutur hafi verið festur við
búkinn til að þyngja hann og síðan
hafi búknum verið varpað í sjóinn.
Wa l l s á s t s í ð a s t l i f a n d i
hinn 10. ágúst þegar hún
fór af stað í kafbátsferð með
uppfinningamanninum Peter
Madsen. Unnusti hennar tilkynnti
daginn eftir að hún hefði ekki skilað
sér úr ferðinni. Nokkru seinna var
kafbáturinn sokkinn. Madsen, sem
hannaði og smíðaði kafbátinn,
er nú grunaður um morð. Hann
fullyrti upphaflega að hann hefði
skilað Wall heilli á húfi nærri
Kaupmannahöfn en síðan hefur
hann breytt framburði sínum og
sagt að hún hafi látist í slysi og hann
hafi komið líkinu fyrir í sjónum.
Danska lögreglan telur að Madsen
hafi viljandi sökkt kafbátnum.
Blóðblettir hafa fundist í bátnum
og hafa DNA-próf sýnt að blóðið er
úr Wall.
Jensen vill ekki tjá sig neitt
um dánarorsök en segir að
réttarmeinafræðingar séu enn
að rannsaka jarðnesku leifarnar.
Fram hefur komið að útlimir hafi
verið höggnir af búknum. Hann
segir að lögreglan leiti enn að þeim
líkamsleifum.
Betina Hald Engmark, verjandi
Madsens, segir að niðurstaða DNA-
prófsins breyti engu varðandi
skýringar Madsens. „Skjólstæðingur
minn og ég lítum það bara
jákvæðum augum, að búið sé að
finna út úr því að það er Kim Wall
sem fannst,“ sagði hún í samtali við
Danmarks Radio.
„ Þ e s s i D N A - s a m s v ö r u n
breytir því hins vegar ekki að
skjólstæðingur minn segir að það
hafi orðið slys,“ segir Engmark við
danska blaðið BT.
Verjandinn hafði áður gagnrýnt
lögregluna fyrir að hafa tengt
þessar jarðnesku leifar við Wall og
kafbátinn í tilkynningu á Twitter án
þess að geta stutt þá yfirlýsingu með
rannsóknargögnum.
„Ég gaf í skyn að það væri
óeðlilegt af lögreglunni að fullyrða
svona áður en staðreyndirnar
lægju fyrir. En nú höfum við
þær,“ sagði Engmark við BT.
jonhakon@frettabladid.is
Heldur enn fram að um
slys hafi verið að ræða
Danska lögreglan hefur staðfest að jarðneskar leifar sem fundust við Amager séu
af líki blaðakonunnar Kim Wall. Grunaður ódæðismaður, Peter Madsen, segir
konuna hafa lent í slysi og að niðurstöður DNA breyti engu um framburðinn.
Danskar björgunarsveitir aðstoðuðu í gær lögregluna við að leita að líkamshlutum af Kim Wall í Kalvebod Fælled í
Kaupmannahöfn. Búkurinn fannst 21. ágúst. FréttaBlaðið/EPa
Danska lögreglan telur
að Madsen hafi viljandi
sökkt kafbátnum.
n O rEG U r Heilbrigðisráðherra
Noregs, Bent Høie, og aðrir háttsettir
einstaklingar í heilbrigðisgeiranum
h a f a h a r ð l e g a g a g n r ý n t
lyfjafyrirtækið Roche sem er meðal
fyrirtækja sem norski Olíusjóðurinn,
lífeyrissjóður Norðmanna, hefur
fjárfest hvað mest í.
Norska ríkisútvarpið greinir
frá því að heilbrigðisráðherrann
hafi oft gagnrýnt lyfjafyrirtækið
fyrir að draga það á langinn að
bjóða verð sem norsk yfirvöld hafa
getað sætt sig við. Eftir þriggja ára
samningaviðræður við Roche hefur
nú sérstök nefnd ákveðið að bjóða
sjúklingum á norskum sjúkrahúsum
brjóstakrabbameinslyfið Kadcyla án
endurgjalds.
Þingmaður Miðflokksins í
Noregi, Kjersti Toppe, segir það
skjóta skökku við að ríkið skuli
í gegnum Olíusjóðinn fjárfesta í
lyfjafyrirtækinu Roche samtímis
því sem heilbrigðisráðherrann
gagnrýnir það fyrir siðleysi gagnvart
norskum sjúklingum með því að
krefjast hárra greiðslna fyrir mikilvæg
lyf. Olíusjóðurinn átti í mars
síðastliðnum hlutabréf fyrir 37,2
milljarða norskra króna í fyrirtækinu.
Ráðherrann segir ekkert athugavert
við fjárfestingu í lyfjafyrirtækjum.
– ibs
Gagnrýni á fjárfestingu í lyfjafyrirtæki
lyfjafyrirtækið roche krafðist hárra greiðslna. FréttaBlaðið/EYÞÓr
Olíusjóðurinn átti í mars
síðastliðnum hlutabréf fyrir
37,2 milljarða norskra króna
í fyrirtækinu.
2 4 . á G ú s t 2 0 1 7 F I m m t U D a G U r10 F r é t t I r ∙ F r é t t a B L a ð I ð
2
4
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:4
2
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
9
0
-0
1
9
4
1
D
9
0
-0
0
5
8
1
D
8
F
-F
F
1
C
1
D
8
F
-F
D
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
B
F
B
0
7
2
s
_
2
3
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K