Fréttablaðið - 24.08.2017, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 24.08.2017, Blaðsíða 64
Síðan við fluttum til Noregs hef ég orðið hrifin af skandinavískum stíl og meiri litum. Ég fór frá litlausu heimili yfir í mikla litadýrð sem ágerðist eftir að ég kláraði listaskólann hér í Álasundi,“ segir listakonan og kennarinn Aldís Gunnarsdóttir sem býr ásamt manni sínum og tveimur börnum í stóru húsi sem hún lýsir sem dæmigerðu norsku timburhúsi. „Það er með A-þaki og frönskum gluggum.“ Það sem vekur athygli við heimili Aldísar er litadýrðin sem ríkir og skemmtilegir munir prýða hvern krók og kima. „Ég hef satt best að segja engan einn ákveðinn stíl. Ég blanda oftar en ekki saman nýju og gömlu, hvítu og lit og svo síðasta ár hef ég puntað svolítið með kopar, gulli og silfri og þá blanda ég því öllu saman í einn graut. Ég er ekkert endilega viss um að innanhússhönnuðir væru alltaf sammála uppsetningunni en ég þarf auðvitað ekkert að spá í það. Hver segir að ólíkir metallitir geti ekki átt saman? Ég neita því bara staðfastlega að það sé ekki hægt að blanda þeim saman,“ segir hún og hlær. „Þegar við fluttum inn í nýtt hús, fyrir um tveimur árum, þá fannst mér ekkert annað koma til greina en að hafa fallega liti í kringum mig. Kannski var það líka uppreisnarseggurinn í mér sem fékk útrás og fór í mótþróa við allt sem var svart, hvítt og grátt þó að mér finnist það oft mjög fallegt hjá öðrum.“ Þræðir flóamarkaði „Mín uppáhaldslitasamsetning eru bjartir litir sem oftar en ekki eru á móti hver öðrum á litaspjaldi. Mér finnst til dæmis turkísblár og appelsínugulur mjög fallegir saman. Mér finnst bara litir almennt vera skemmtilegir og hressandi,“ útskýrir Aldís sem er mikill fagurkeri. „Eitt af mínum áhugamálum er að þræða flóamarkaði í fjársjóðsleit og það eru ófáir hlutir á heimilinu þaðan. Ég hef til dæmis gert upp ruggustól, hengt upp bróderaða mynd af Mónu Lísu þar sem ég spreyjaði gullrammann bleikan og keypt mörg glös og skrautmuni sem núna prýða heimilið. Það eru ansi margir hlutir á heimilinu keyptir notaðir, hvort sem það eru húsgögn eða skrautmunir og svo er ég mjög veik fyrir búsáhaldabúðum, ég er með ákveðið blæti fyrir þeim. En ég get líka dottið í það að kaupa dýra og vandaða muni sem mér þykja fallegir. Ætli það megi ekki bara líkja mér við hrafninn sem dregst að öllu sem glitrar.“ gudnyhronn@365.is og skemmtilegt í Noregi Aldís Gunnarsdóttir. Aldís Gunnarsdóttir býr á litríku heimili í Noregi. Þangað flutti hún fyrir sjö árum og síðan þá hefur smekkur hennar á innanhússhönnun verið að breytast smátt og smátt. Ég er ekkert eNdilega viss um að iNNaNhússhöNNuðir væru alltaf sammála uppsetN- iNguNNi eN Ég þarf auðvitað ekkert að spá í það. „Það er svo skemmtilega heimilislegt að horfa á Mónu greyið með strikavarir eftir bróderinguna,“ segir Aldís um myndina af Mónu. Innblásturinn kemur úr öllum áttum að sögn Aldísar og húsgögn og stofu­ stáss kaupir hún víða. Túrkisblár og appelsínugulur er ein uppáhaldslitasamsetning Aldísar. litskrúðugt „Við hjónin erum bókaunnendur og höfum sankað að okkur skemmtilegum bókum í gegnum árin,“ segir Aldís sem hefur flokkað bækurnar eftir lit. 2 4 . á g ú s t 2 0 1 7 F I M M t U D A g U R44 l í F I ð ∙ F R É t t A B l A ð I ð Lífið 2 4 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :4 2 F B 0 7 2 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D 8 F -F C A 4 1 D 8 F -F B 6 8 1 D 8 F -F A 2 C 1 D 8 F -F 8 F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 9 A F B 0 7 2 s _ 2 3 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.