Fréttablaðið - 25.08.2017, Side 18
Styttist í peningabardagann sem heimurinn bíður eftir að sjá
Box gegn MMA Það var vel við hæfi að Floyd Mayweather og Conor McGregor skiydu stilla sér upp í hnefaleika- og MMA-pósu á síðasta fundi
sínum. Í kvöld stíga kapparnir síðan á vigtina í Vegas. Vigtunin hefst klukkan 22.00 og verður í beinni á Stöð 2 Sport. Nordic Photos/Getty
2 5 . á g ú s t 2 0 1 7 F Ö s t U D A g U R16 s p o R t ∙ F R É t t A B L A ð i ð
sport
HneFALeikAR Einn stærsti íþrótta-
viðburður síðustu ára fer fram
aðfaranótt sunnudags þegar Conor
McGregor, skærasta UFC-stjarna
heims, stígur úr búrinu inn í hnefa-
leikahringinn þar sem hann mun
mæta Floyd Mayweather, einum
besta boxara sögunnar. May-
weather er enn ósigraður og tók
hanskana niður úr hillunni til að
berjast við Írann kjaftfora. Ef May-
weather ber sigur úr býtum mun
hann ljúka ferlinum á 50 sigrum í
50 bardögum.
Fyrirfram mætti telja að besti
hnefaleikamaður heims ætti ekki
að lenda í vandræðum með mann
sem hefur aldrei barist sem atvinnu-
maður í íþróttinni. En Gunnar Nel-
son, fremsti bardagakappi Íslands
og æfingafélagi Conors til margra
ára, segir í samtali við Fréttablaðið
að hann telji möguleika síns manns
góða og að bardagastíll hans henti
Mayweather illa.
espar hann upp
„Conor mun reyna að setja pressu
á Mayweather því hann gerir sér
grein fyrir að Mayweather mun ekki
koma inn í bardagann og reyna að
rota hann þrátt fyrir yfirlýsingar um
það,“ segir Gunnar. „Mayweather
mun halda sér við sitt og reyna að
vinna tólf lotu bardaga með dóm-
araákvörðun.“
Gunnar segir að fyrstu loturnar
verði áhugaverðar og að Conor
muni reyna að espa Mayweather
upp, sem muni svara með því að
reyna að láta Írann slá vindhögg –
þreyta hann og hægja á honum.
„En Conor er góður í að slá menn
þegar þeir eiga síst von á því. Hann
mun líka reyna að espa hann upp
til að fá hann til að sækja. Þá getur
Conor bakkað og svarað með þess-
ari vinstri sleggju sem hann er
alþekktur fyrir.“
Getur klárað heilan bardaga
Gunnar bendir á að Conor búi yfir
ýmislegu í vopnabúri sínu sem
muni henta Mayweather illa. Svo
sem yfirhandarhöggi sem hefur
verið áður notað gegn Bandaríkja-
manninum með góðum árangri. En
ef Mayweather tekst að verjast því,
mun hann hafa úthald og þol til að
endast í tólf lotu bardaga og vinna
á stigum?
„Já, það tel ég. Conor hefur aldr-
ei verið í betra formi og á að baki
50-60 bardaga sem áhugamaður í
hnefaleikum. Sem MMA-maður er
hann alltaf betri standandi og er
með skrokkinn í það. Ég hugsa að
hann geti komið honum í vandræði
snemma, unnið fyrstu loturnar
og jafnvel þær síðustu líka,“ segir
Gunnar.
„Mér finnst skemmtilegt að
hugsa til þess að hann klári bar-
dagann í fyrstu lotunum og sé fyrir
mér að það gæti gerst. Ég veit líka
að Mayweather hefur aldrei farið
gegn svona bardagamanni áður.
Conor er ekki boxari þó svo að
hann kunni það ótrúlega vel. Það
er bara svo margt í stíl hans sem
Mayweather hefur ekki séð. Hann
hefur aldrei skipst á höggum við
MMA-bardagamann. Það er bara
öðruvísi.“
engin látalæti
Óhætt er að segja að Conor McGreg-
or njóti sín í sviðsljósinu. Hann
hefur verið óhræddur við yfirlýs-
ingar og lofar því að hann muni slá
Mayweather í rot í fyrstu lotunum,
fjórðu eða jafnvel annarri. En Gunn-
ar bendir á að Conor hafi góða
stjórn á tilfinningum sínum.
„Hann er mjög rólegur og yfirveg-
aður þegar hann þarf að vera það.
Svona er hann bara. Þetta eru ekki
látalæti, hann er eins og hann hefur
alltaf verið,“ segir Gunnar sem spáir
vitaskuld sínum manni sigri.
„Ég ætla að segja að hann klári
Mayweather í sjöttu lotu með rot-
höggi.“ eirikur@frettabladid.is
Klárar Mayweather með rothöggi
Gunnar Nelson telur að Conor McGregor sé bardagamaður sem henti Floyd Mayweather illa. Hann óttast ekki að illa fari fyrir
sínum manni þó að Írinn muni þurfa að fara í tólf lotu bardaga gegn einum besta hnefaleikakappa sögunnar.
Conor er góður í að
slá menn þegar þeir
eiga síst von á því. Hann
mun líka reyna að
espa hann til
að fá hann til
að sækja.
Gunnar Nelson
© GRAPHIC NEWSHeimild: Wire agencies Mynd: Getty Images
Floyd Mayweather, heimsmeistari í hnefaleikum, mætir UFC-meistaranum
Conor McGregor í hnefaleikabardaga í Las Vegas. Bardaginn, sem hefur
verið kallaður „Peningabardaginn“, mun slá öll áskriarmet
Aldur
Þjóðerni
Gerðist atvinnumaður
Sigrar-töp
Rothögg
Hæð
Faðmur
Stíll
SAMANBURÐUR
40
Bandarískur
1996
49-0
26
1,73 m
1,83 m
Hefðbundinn
29
Írskur
2008
21-3
18
1,75 m
1,88 m
Örvhentur
Money The Notorious
Ósigraður
heimsmeistari í
¤mm
þyngdar¦okkum,
hefur alls unnið 15
titla, er talinn einn af
bestu boxurum allra
tíma
Græðir: 100
milljónir dollara
Ein stærsta stjarnan í
MMA og fyrsti
UFC-meistarinn í
tveimur
þyngdar¦okkum
samtímis. Þreytir
frumraun sína í
atvinnuhnefaleikum
Græðir: 75
milljónir dollara
1977: Fæddur 24. febrúar í Michigan inn í
mikla hnefaleikaªölskyldu
1996: Vinnur brons á Ólympíuleikunum í
Atlanta. Tapið í undanúrslitunum er hans eina í
hringnum
1998: Verður heimsmeistari í fyrsta sinn
2002: Byrjar að keppa í léttvigt. Verður heims-
meistari í annað sinn eir sigur á José Luis Castillo
2007: Verður heimsmeistari í ¤mmta
þyngdar¦okknum eir sigur á Oscar De La Hoya
2015: Sigrar Manny Pacquiao í
„Bardaga aldarinnar“
1988: Fæddur 14. júlí í Dublin á Írlandi
2008: Þreytir frumraun sína í MMA
gegn Gary Morris. Vinnur í annarri lotu
2013: Semur við UFC. Sigrar Marcus
Brimage í fyrsta bardaga sínum fyrir
sambandið
2015: Verður meistari í annað sinn
þegar hann bindur endi á 10 ára
sigurgöngu José Aldo á 13 sekúndum
2016: Tapar sínum fyrsta UFC-bardaga fyrir
Nate Diaz eir að hafa fært sig upp í veltivigt
Mayweather tekur á móti McGregor í hringnum
Í dag
14.30 opna kanadíska Golfst.
18.00 the Northern trust Golfst.
18.40 Bristol - Aston Villa Sport
22.00 conor - Mayw. vigtun Sport2
inkasso-deildin:
18.00 hK - haukar
19.15 Fram - Fylkir
evrópudeild UeFA:
Braga - Fh 3-2
Böðvar Böðvarsson skoraði mörk FH.
Braga fór áfram, 5-3, samanlagt.
hajduk split - everton 1-1
Gylfi Sigurðsson skoraði mark Everton.
Everton fór áfram, 3-1, samanlagt.
Maccabi - rheindorf 2-2
Viðar Örn Kjartansson skoraði fyrra mark
Maccabi.
Maccabi fór áfram, 3-2, samanlagt.
AeK - club Brugge 3-0
Arnór Ingvi Traustason sat á bekk AEK.
AEK fór áfram, 3-0, samanlagt.
rosenborg - Ajax 3-2
Matthías Vilhjálmsson spilaði síðasta hálf-
tímann fyrir Rosenborg.
Rosenborg fór áfram, 4-2, samanlagt.
inkasso-deildin:
Leiknir r. - Þróttur 1-0
1-0 Ragnar Leósson, víti (11.).
Keflavík - Ír 3-2
1-0 Adam Róbertsson (26.), 1-1 Már Viðars-
son (40.), 1-2 Renato Punyed (45.), 2-2 Jeppe
Hansen (78.), 3-2 Leonard Sigurðsson (87.).
2
5
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:5
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
9
1
-D
4
2
C
1
D
9
1
-D
2
F
0
1
D
9
1
-D
1
B
4
1
D
9
1
-D
0
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
2
4
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K