Fréttablaðið - 25.08.2017, Síða 24
Útgefandi: 365 miðlar Veffang: Visir.isÁbyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson Sölumaður auglýsinga: Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.is, s. 512 5433
Dell er góður og traustur förunautur í dagsins önn, og hefur um árabil verið
einn vinsælasti fartölvuframleið-
andinn hjá íslenskum neytendum.
Ástæðan kemur lítið á óvart því
Dell-vélarnar eru sterkbyggðar
og endingargóðar,“ segir Þor-
steinn Máni Bessason, vörustjóri
notendalausna hjá Advania, sem
býður mikið úrval fartölva frá
Dell. Fartölvurnar hafa ólíka kosti
og eiginleika sem þýðir að auðvelt
er fyrir neytendur að finna réttu
fartölvuna.
„2-in-1“ fartölvur
vinsælastar
Fartölvur Dell henta jafnt ein-
staklingum og fyrirtækjum.
„Nú í byrjun skólavertíðar er
vinsælasta vélin hjá okkur úr Dell
Inspiron-línunni. Hún er svo-
kölluð „2-in-1“ vél sem sameinar
notagildi fartölvu og spjaldtölvu.
Hægt er að nota vélina á hefð-
bundinn máta og í öll almenn
not, en þar sem hún er einnig með
snertiskjá og lömum sem snúast
360° er hægt að snúa skjánum við
og þar með breyta henni í spjald-
tölvu. Sá eiginleiki nýtur vinsælda
hjá þeim sem eru mikið á ferðinni
og vilja geta gripið í tölvuna án
þess að þurfa að setja hana upp
á borð eða í kjöltuna,“ útskýrir
Þorsteinn.
Þessi frábæra fartölva er sömu-
leiðis hentug fyrir þá sem halda
kynningar og vilja hafa vélina við
höndina.
„Hægt er að stilla henni upp
líkt og tjaldi og setja á borð, og er
það afar hentugt fyrir þá sem nýta
tölvuna til að horfa á bíómyndir
eða þætti. Vélin tekur þá minna
pláss og er auðveldara fyrir fleiri
en einn að horfa á saman.“
Dell Inspiron fæst í mis-
munandi útfærslum og þremur
stærðum, 13", 15" og 17". Vélarnar
eru léttar, meðfærilegar og með
frábærri rafhlöðuendingu.
„Vinsælasta „2-in-1“ vélin er
15"-útgáfan, enda kraftmikil og
á frábæru verði. Hún státar af
nýjustu gerð Intel i5 örgjörva,
FullHD snertiskjá, 8 GB vinnslu-
minni og 256 GB SSD hörðum
diski. SSD-diskar hafa að undan-
förnu rutt sér mjög til rúms enda
verða neytendur sífellt betur
upplýstir um kosti þeirra fram yfir
hina hefðbundnu hörðu diska. Því
er frábært að geta boðið þessa vel
útbúnu fartölvu á viðráðanlegu
verði, 129.990 krónur, en þess má
geta að ódýrasta „2-in-1“ vélin
kostar 99.990 krónur,“ upplýsir
Þorsteinn.
Flaggskipið frá Dell
Ekki er hægt að tala um fartölvur
frá Dell án þess að nefna hina
margverðlaunuðu XPS-vél.
„XPS er flaggskip Dell og í raun
einstök í stærðarflokknum; blað-
þunn, létt og meðfærileg með
„edge-to-edge“ FHD Infin ity-skjá.
Hún er sláandi falleg og er ytra
byrðið skorið úr heilum álkubb
sem gerir það að verkum að vélin
er bæði sterkbyggð og fögur,“
segir Þorsteinn um stolt Dell-fjöl-
skyldunnar.
„XPS er ekki aðeins flott og
meðfærileg heldur er hún búin
kraftmiklum vélbúnaði undir
húddinu. Viðskiptavinum stendur
til boða að fá tölvurnar í nokkrum
útfærslum og er meðal annars
hægt að fá þær með i7 Kaby Lake,
nýjustu kynslóð örgjörva frá
Intel, SSD-disk og allt að 32 GB
vinnsluminni. Rafhlöðuendingin
er einstaklega góð og samkvæmt
framleiðanda er ending rafhlöðu
við ritvinnslu í Microsoft Word
um 22 klukkutímar á fullri hleðslu.
Dell fullyrðir að með því að kaupa
XPS-fartölvu fái notendur það
besta úr báðum heimum þar sem
vélin sameinar mikið afl í smá-
gerðri vél,“ segir Þorsteinn.
Hann hvetur alla sem eru í far-
tölvuhugleiðingum til að kíkja í
heimsókn í verslanir Advania í
Guðrúnartúni 10 í Reykjavík eða á
Tryggvabraut 10 á Akureyri.
„Sérfræðingar okkar taka vel á
móti ykkur og aðstoða við að finna
fartölvu sem ykkur hentar best.“
Sjá nánar á advania.is.
XPS-fartölvan er flaggskip Dell og margverðlaunuð fyrir fegurð, kraft, úthald og
gæði. Einnig er vélin með einstökum Infinity Edge-skjá. MYNDIr/ANTON BrINK
Dell Inspiron „2-in-1“-fartölvan er einstaklega skemmtileg og býður upp á
fjölbreytta notkunarmöguleika með snertiskjá og lömum sem snúast 360°.
Framhald af forsíðu ➛
2 KYNNINGArBLAÐ 2 5 . ÁG Ú S T 2 0 1 7 F Ö S T U DAG U RFArTöLVur
Fartölvurnar í iStore eru mjög vinsælar meðal nemenda. MYNDIr/ANTON BrINK
Verslunin iStore í Kringlunni sérhæfir sig í sölu á Apple-vörum, þ.m.t. hinum
vönduðu og vinsælu MacBook
fartölvum. iStore er á engan hátt
tengd versluninni Epli og liggur
helsta sérstaða verslunarinnar í
frábærri þjónustu við viðskiptavini
sína að sögn Sigurðar Helgasonar,
eiganda iStore. „Við leggjum sér-
staklega mikið upp úr að þjónusta
viðskiptavini með skjótum og
sveigjanlegum vinnubrögðum.
Sem dæmi erum við eina verslunin
hérlendis sem lánar viðskipta-
vinum sambærilegar fartölvur
meðan viðgerð stendur yfir, án
endurgjalds. Því þurfa viðskipta-
vinir okkar ekki að bíða í allt að
tvær vikur eftir tölvunni úr viðgerð
og geta því haldið námi sínu og
starfi áfram af fullum krafti.“
Frábær þjónusta
Ef eitthvað kemur upp á varðandi
hugbúnaðinn, t.d. stýrikerfi
tölvunnar, er tölvan sett upp á
nýtt og komið í lag segir Sigurður.
„Þessa þjónustu veitum við líka
ókeypis á meðan flestir aðrir rukka
fyrir hana enda eru hugbúnaður og
stýrikerfi venjulega ekki í ábyrgð.
Við gerum það hins vegar og ekki
nóg með það, við veitum líka
ókeypis þjónustu og viðbrögð
umfram ábyrgðartímann. Til okkar
koma t.d. viðskiptavinir með allt
að fjögurra ára gamlar tölvur en
við erum enn að hjálpa þeim að
kostnaðarlausu. Það má því segja
að viðskiptavinurinn detti sjálf-
krafa inn í VIP-klúbb hjá okkur
enda kunnum við vel að meta þá
sem skipta við okkur og þeir finna
um leið fyrir því.“
Hann segir þessa góða þjónustu
vera meginmuninn á þeim og
samkeppnisaðila sínum. „iStore
er vissulega litli aðilinn á markað-
inum en við erum svo sannarlega
ekki með neina minnimáttar-
kennd. Við erum að selja sömu
vörur og hinir eru að gera en
aðgreinum okkur með frábærri
þjónustu sem viðskiptavinir okkar
kunna svo sannarlega vel að meta.“
Úrval fartölva
Hingað til hefur MacBook Air
notið mestra vinsælda hjá fram-
haldsskóla- og háskólanemendum.
„MacBook Air 13" hefur verið mjög
vinsæl hjá okkur. Hún er á mjög
viðráðanlegu verði, hefur mjög
góða rafhlöðuendingu og 128 GB.
Undanfarið höfum við þó séð
aukningu í sölu á MacBook Air 13"
256 GB og MacBook Pro með Touch
Bar snertistiku. Þessar fartölvur eru
af næstu kynslóð fartölva, eru hrað-
virkari og með nýjustu gerð af USB-
tengi sem er alhliða tengi sem mun
ganga í allt í framtíðinni. Virkilega
öflugar og flottar fartölvur.“
Á þeim sjö árum sem liðin eru
síðan iStore opnaði verslun sína
hafa eigendur hennar verið dug-
legir að styrkja langveik börn. „Við
höfum gefið 53 iPad spjaldtölvur
til langveikra barna sem hefur
mælst mjög vel fyrir. Við ætlum að
sjálfsögðu að halda þessu áfram
enda gleðja gjafirnar börnin heil-
mikið og styrkja þau í veikindum
þeirra.“
Allar nánari upplýsingar um far-
tölvur og aðrar vörur iStore má
finna á www.istore.is.
Þjónusta fyrir námsmenn
Auk úrvals vara frá Apple er iStore í Kringlunni þekkt fyrir frábæra þjónustu við viðskiptavini sína.
MacBook-fartölvurnar hafa notið mikilla vinsælda meðal nemenda og starfsfólks í atvinnulífinu
iStore er vissulega
litli aðilinn á mark-
aðinum en við erum svo
sannarlega ekki með
neina minni-
máttar-
kennd.
Sigurður
Helgason
2
5
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:5
7
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
9
1
-A
7
B
C
1
D
9
1
-A
6
8
0
1
D
9
1
-A
5
4
4
1
D
9
1
-A
4
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
2
4
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K