Fréttablaðið - 04.10.2017, Page 2
Þetta endaði í
skemmtiferð sem
maður hefði nú sennilega
ekki farið neitt fljótlega.
Ásdís Gunnarsdóttir frá Hofi í
Öræfum
Okkur finnst þetta
mál vera ákveðinn
prófsteinn.
Bryndís Snæbjörns-
dóttir, formaður
Þroskahjálpar
Veður
Í dag kólnar á landinu í hvassri
norðanátt og fyrir norðan mun
rigna talsvert á láglendi, en til fjalla
mun snjóa. Sunnan- og vestanlands
verður dagurinn að mestu leyti þurr
og bjartur. sjá síðu 20
Bráðabirgðabrúin tekin í notkun
Þjóðvegur 1 verður aftur opinn allan hringinn frá og með hádegi í dag gangi áætlanir Vegagerðarinnar eftir. Smíði bráðabirgðabrúar yfir Steinavötn
hefur gengið mun hraðar en fyrst var áætlað eftir að brúnni yfir ána var lokað fyrir síðustu helgi vegna gríðarlegra vatnavaxta í úrhellisrigningu.
Guðrún Þóra Garðarsdóttir, verkfræðingur hjá Vegagerðinni, segir að reikna megi með að varanleg brú verði tilbúin eftir um tvö ár. Mynd/Guðrún Þóra
kæli- og
Frí Heimsending
á öllum kæli- og
frystitækjum
02–08 okt.
frystidagar
samgöngur Það sem átti að verða
skottúr mæðginanna Ásdísar
Gunnarsdóttur og Eyþórs Sigurðs-
sonar í verslanir frá Hofi í Öræfum
til Hafnar í Hornafirði á miðviku-
dag í síðustu viku endaði óvænt í
um 1.300 kílómetra hringferð um
landið vegna vatnavaxtanna á Suð-
austurlandi. Ásdís segir að uppá-
komuna hafi reynst lán í óláni því
úr hafi orðið fínasta skemmtiferð
með syninum, sem þau hefðu ann-
ars ekki farið.
„Á heimleið frá því að útrétta
á Höfn komum við að Hólmsá á
Mýrum þar sem vatnið var farið
að flæða yfir veginn. Þar stoppuðu
menn frá Vegagerðinni okkur og
bönnuðu okkur að fara yfir. Samt
voru bílar að koma að vestan þar
sem ekki var búið að loka á umferð
þaðan,“ segir Ásdís í samtali við
Fréttablaðið. Eftir að að hafa beðið
um stund ákváðu þau því að snúa
aftur austur á Höfn. Um kvöldið
fréttu þau að vegurinn yrði lík-
lega ekki opnaður aftur fyrr en
eftir nokkra daga og voru þá góð
ráð dýr. Tóku þau ákvörðun um
að gista hjá frændfólki á Höfn og
leggja á hringveginn heim árla
fimmtudags.
„Við gátum ekki verið að bíða á
Höfn marga daga svo við lögðum
af stað klukkan 6 næsta morgun,
héldum austur og keyrðum sem
leið liggur.“
Eftir stopp á Egilsstöðum var
næsti viðkomustaður Mývatn og
síðan haldið í einni beit til Akur-
eyrar, þangað sem þau voru komin
um hádegi. Á Sauðárkróki tóku þau
eldsneyti og skoluðu af bílnum og
héldu ferðalagi sínu áfram.
Verslunarferð breyttist
í óvænta hringferð
Ásdís Gunnarsdóttir frá Hofi í Öræfum ætlaði að skjótast með syni sínum í
búðir á Höfn í síðustu viku. Þegar þau ætluðu heim var búið að loka veginum
vegna vatnavaxta. Lögðu á sig um 1.300 kílómetra ferð til að komast aftur heim.
„Svo stoppuðum við ekki fyrr
en við komum til Reykjavíkur.
Um kvöldið vorum við komin til
dóttur minnar í Hveragerði þar
sem ég gisti. Þá vorum við búin að
keyra um 1.000 kílómetra frá Höfn
til Hveragerðis á einum degi,“ segir
Ásdís um ferðalagið mikla. Þá voru
eftir um 300 kílómetrar heim að
Hofi. Á þriðja degi frá því að mæðg-
inin lögðu af stað í verslunarferð
til Hafnar og rúmlega 1.300 kíló-
metrum síðar skiluðu þau sér loks
heim að Hofi á laugardaginn. Fyrir
forvitna þá segir Ásdís að matvör-
una sem hún keypti á Höfn ekki
hafa sakað. Hún vill því síður en
svo kalla þessa löngu verslunarferð
hremmingar.
„Þetta endaði í skemmtiferð sem
maður hefði nú sennilega ekki farið
neitt fljótlega. Það má því alveg
segja að þetta hafi verið lán í óláni
og endað vel.“ mikael@frettabladid.is
Ferðalagið langa frá Hofi og heim
Hof
akureyri Egilsstaðir
Höfn
MývatnSauðárkrókur
Hveragerði Þjóðveginum var lokað við
Hólmsá á
Mýrum.
118 km
1.214 km
DÓmsmáL Fötluð 24 ára stúlka, sem
þarfnast umönnunar allan sólar-
hringinn, og foreldrar hennar hafa
stefnt Reykjavíkurborg og íslenska
ríkinu fyrir að synja stúlkunni um
húsnæðisúrræði og fullnægjandi
umönnun. Í rúm sex ár hafa for-
eldrarnir þurft að annast stúlkuna
vegna þessa. Aðalmeðferð í málinu
fór fram í síðustu viku. Formaður
Landssamtakanna Þroskahjálpar
segir að um prófmál sé að ræða.
Stúlkan hefur alla sína ævi þurft
mikla aðstoð. Í stefnu málsins
segir að eftir að hún varð átján ára
hafi Reykjavíkurborg neitað að
veita henni nauðsynlega þjónustu.
Umönnun hennar hafi því lent á
foreldrunum. Hefur móðir hennar
af þessum sökum þurft að hætta á
vinnumarkaði.
„Okkur finnst þetta mál vera
ákveðinn prófsteinn á það hvort
það sé í raun svo að ábyrgð á þjón-
ustu fatlaðra barna falli alfarið
úr gildi við átján ára aldur,“ segir
Bryndís Snæbjörnsdóttir, formaður
Þroskahjálpar.
„Ef niðurstaðan er sú að ábyrgðin
við umönnun er sett algerlega á for-
eldra við átján ára aldur þá þarf að
breyta lagarammanum,“ segir Bryn-
dís.
Auk viðurkenningar á því að
ákvörðun borgarinnar hafi verið
ólögmæt krefst stúlkan tíu milljóna
króna í miskabætur. Foreldrarnir
krefjast skaðabóta, tæpra 30 þús-
und króna fyrir hvern dag frá því að
stúlkan varð átján ára. – jóe
Ekki fengið
umönnun í
meira en sex ár
LögrEgLumáL Maður var fluttur á
sjúkrahús eftir hnífsstungu í kjöl-
far átaka í Æsufelli í Breiðholti í
gærkvöld. Þegar Fréttablaðið fór í
prentun stóð leit að gerendum yfir.
Lögreglan var með talsverðan við-
búnað vegna málsins. Í tilkynningu
frá henni kemur fram að hún hafi
verið kölluð til á áttunda tímanum
vegna átaka í heimahúsi. Frumrann-
sókn stæði yfir. Enginn hefði verið
handtekinn.
Leitað var í nágrenni íbúðarinn-
ar í gærkvöld. Gunnar Hilmarsson,
aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu, staðfesti við
blaðið að leit stæði yfir að grun-
uðum. Ekki væri unnt að gefa upp
hvort um einstakling eða samverka-
menn væri að ræða. Verið væri að
ræða við vitni og aðra sem mögu-
lega gætu veitt upplýsingar um
málið. – jóe
Hnífsstunga í
Æsufelli í gær
4 . o k t Ó b E r 2 0 1 7 m I ð V I k u D a g u r2 F r é t t I r ∙ F r é t t a b L a ð I ð
0
4
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:2
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
E
6
-F
B
3
C
1
D
E
6
-F
A
0
0
1
D
E
6
-F
8
C
4
1
D
E
6
-F
7
8
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
3
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K