Fréttablaðið - 04.10.2017, Side 12
H E I L S U R Ú M
FORTE
hægindasófar
Þægilegir rafdrifnir hægindastólar
og sófar með leðri á slitflötum.
FORTE 1 FORTE 2
FORTE 3
TILBOÐ
77.440 kr.
TILBOÐ
124.615 kr.
TILBOÐ
151.920 kr.
Fullt verð: 96.800 kr. Fullt verð: 155.768 kr.
Fullt verð: 189.900 kr
A
R
G
H
!!!
2
00
91
7
Vöðva eða
liðverkir?
Voltaren Gel er bæði
verkjastillandi og
bólgueyðandi
Voltaren Gel - njótum þess að hreyfa okkur
Voltaren 11,6 mg/g hlaup. Inniheldur díklófenaktvíetýlamín. Staðbundnir bólgukvillar. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun
lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is.
Voltaren_Gel 5x10.indd 1 31/03/2017 13:44
4 . o k t ó b e r 2 0 1 7 M I Ð V I k U D A G U r12 S p o r t ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð
sport
FótboLtI Strákarnir okkar í íslenska
karlalandsliðinu í fótbolta æfðu
í fyrsta sinn sem hópur í Anta-
lya í Tyrklandi í gær við frábærar
aðstæður. Aron Einar Gunnarsson
landsliðsfyrirliði er enn þá mjög
tæpur fyrir leikinn vegna meiðsla í
rassvöðva og þá yfirgaf Hannes Þór
Halldórsson, markvörður liðsins,
æfinguna ansi snemma.
Allir aðrir eru klárir í slaginn og
á meðal þeirra er vængmaðurinn
Jóhann Berg Guðmundsson sem
hefur verið einn besti leikmaður
Íslands í undankeppninni. Þessi
leikmaður Burnley í ensku úrvals-
deildinni óttast ekki Tyrki þó að
hann beri vitaskuld virðingu fyrir
gæðum liðsins og þessum erfiða úti-
velli þar sem heimamenn tapa helst
ekki leik.
„Ef við ætlum beint á HM þá þurf-
um við að vinna þessa tvo leiki. Það
er alveg klárt. Þetta er erfiður úti-
leikur sem við erum að fara í en við
vitum svo sem að við getum unnið
þetta lið. Það er samt eiginlega ekki
hægt að bera þá saman á heimavelli
og útivelli þannig að þetta verður
erfitt. Við höfum samt fulla trú á því
að við getum unnið þetta lið,“ segir
Jóhann Berg.
FótboLtI Öryggi er kannski ekki
beint fyrsta orðið sem margir
tengja við Tyrkland eftir valdarán
og hryðjuverkatilraunir þar undan-
farin misseri en það virðist enginn
þurfa að óttast of mikið um strákana
okkar. Þeir eru í öruggum höndum.
Lögreglumenn fylgja íslenska
liðinu og svo er lögreglan með
sólarhringsvakt fyrir utan hótelið
eins og á flestum öðrum hótelum í
Belek-hluta Antalya sem er mikill
ferðamannastaður.
„Mönnum hérna er svo rosa-
lega annt um orðsporið sitt að þeir
passa að ekkert komi hér upp á. Hér
koma stór félagslið og önnur lands-
lið reglulega þannig að vel er passað
upp á alla,“ segir Víðir Reynisson,
öryggisstjóri íslenska hópsins í
Tyrklandi.
Strákarnir fljúga til Eskisehir á
miðvikudagskvöldið þar sem önnur
lögregla tekur við íslenska liðinu en
Víðir óttast ekkert þar enda borgin
með þeim framsæknari í Tyrklandi.
„Þetta er mjög frjálslynd háskóla-
borg. Það verður hugsað mjög vel um
okkur þar líka. Tyrkirnir eru í mestu
veseni bara með sitt fólk þegar á
leik stendur en við erum í góðum
málum,“ segir Víðir Reynisson. – tom
Strákarnir okkar eru
í öruggum höndum
Víðir Reynisson passar upp á íslenska hópinn í Tyrklandi. FRéTTablaðið/ÓskaRÓ
Jóhann berg Guð-
mundsson á ferðinni með
liði sínu burnley.
Gátum ekki neitt
Kantmaðurinn úr Kópavogi fer ekk-
ert í felur með skoðun sína beðinn
um að horfa um öxl og fara yfir
muninn á frammistöðunni á móti
Finnlandi og svo Úkraínu en tapið
gegn Finnum gæti reynst dýrkeypt.
„Fótbolti er bara svona. Við
gátum ekki neitt á móti Finnlandi,
það verður bara að segjast alveg eins
og er. Þrátt fyrir það áttum við að
skora og ná að minnsta kosti í jafnt-
efli,“ segir Jóhann Berg en strákarnir
skrifar frá
Antalya
Tómas Þór Þórðarson
tomas@365.is
svöruðu fyrir þá frammistöðu
með frábærum leik og enn betri
sigri á móti Úkraínu.
„Við ákváðum því bara að mæta
dýrvitlausir til leiks á móti Úkraínu
og sýndum hvers megnugir við
erum.“
Hungrið til staðar
Ef einhver óttaðist um að strákarnir
væru orðnir kærulausir eða saddir
eftir frammistöðuna á móti Finn-
landi voru þeir fljótir að skrúfa
fyrir það rugl með sigrinum gegn
Úkraínu. Í heildina hefur liðið
spilað mjög vel í erfiðum riðli og
stendur nú á barmi þess að komast
að minnsta kosti í umspil um sæti á
HM 2018 í Rússlandi.
„Það voru eflaust margir sem
hugsuðu eftir EM að þetta væri nú
bara komið hjá þessu liði og allir
væru orðnir saddir. Það góða er að
HM er enn stærra en EM og við vilj-
um fara á eitthvað enn þá stærra,“
segir Jóhann Berg.
„Það hefur líka sýnt sig í þessari
keppni. Við erum í góðri stöðu í erf-
iðasta riðlinum en fjögur lið í þess-
um riðli voru á EM. Það verður bara
að segjast eins og er að við höfum
gert vel en við erum ekki saddir og
ætlum okkur á HM.“
Viljum
stærri
hluti
Strákarnir okkar í ís-
lenska landsliðinu í
fótbolta geta að minnsta
kosti tryggt sér sæti í
umspili um sæti á HM
2018 með sigri í næstu
tveimur leikjum. Næsta
hindrun á leiðinni til
Rússlands eru Tyrkir.
0
4
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:2
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
E
6
-F
6
4
C
1
D
E
6
-F
5
1
0
1
D
E
6
-F
3
D
4
1
D
E
6
-F
2
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
3
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K