Fréttablaðið - 04.10.2017, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 04.10.2017, Blaðsíða 13
Hluthafafundur N1 hf. Stjórn N1 hf. boðar til hluthafafundar fimmtudaginn 26. október 2017 klukkan 16:00 á aðalskrifstofu félagsins að Dalvegi 10-14, Kópavogi. Dagskrá fundarins 1. Tillaga um að samþykkja kaup félagsins á öllu hlutafé Festi hf. 2. Tillaga um heimild stjórnar til að hækka hlutafé til að mæta hluta kaupsamningsgreiðslna við kaupin á Festi hf. Nánar um dagskrá fundarins: Í dag var undirritaður kaupsamningur á milli N1 hf. og SF V slhf. um kaup á öllu hlutafé í Festi hf., eins og komið hefur fram í tilkynningu til kauphallar. Viðskiptin eru m.a. háð samþykki hluthafafundar N1 hf. sem jafnframt verður að veita stjórn heimild til útgáfu nýrra hluta í N1 hf. til SF V slhf. til að hægt verði að efna kaupsamninginn. Af því tilefni er eftirfarandi tillaga lögð fyrir fundinn: „Hluthafafundur í N1 hf. sem haldinn er fimmtudaginn 26. október 2017 samþykkir að veita stjórn félagsins heimild til þess að gefa út nýja hluti í félaginu að nafnverði allt að kr. 84.782.609 á genginu 115. Forkaupsréttur hluthafa að hækkuninni er felldur niður, en þess í stað, ef til kemur, er SF V slhf. veittur áskriftarréttur að allri hækkuninni, eins og nauðsynlegt reynist, til þess að hægt verði að standa við uppgjör á kaupsamningi um kaup N1 hf. á öllu hlutafé í Festi hf., frá 3. október 2017, en hluti kaupverðsins er greiddur með nýjum hlutum í N1 hf. Heimild þessi til stjórnar stendur til 31. desember 2018. Gerð skal skráningarlýsing vegna hinna nýju hluta ef til útgáfu þeirra kemur“ Aðrar upplýsingar: Öll skjöl og tillögur sem lögð verða fyrir hluthafafundinn verður að finna á vefsíðu félagsins www.n1.is/ fjarfestatengsl. Hluthöfum stendur einnig til boða að nálgast skjölin í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10-14, Kópavogi, virka daga milli klukkan 9:00-16:00. Fundurinn fer fram á íslensku og verða fundargögn jafnframt á íslensku. Hluthafar geta látið umboðsmann sækja hluthafafundinn fyrir sína hönd. Umboðsmaður skal leggja fram skriflegt umboð. Ekki verður hægt að greiða atkvæði með rafrænum hætti á fundinum. Hluthöfum gefst kostur á að greiða atkvæði um mál sem eru á dagskrá fundarins bréflega. Skal beiðni um slíka atkvæðagreiðslu hafa borist skrifstofu félagsins eða á netfangið hluthafar@n1.is eigi síðar en fimm dögum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 16.00 laugardaginn 21. október 2017. Hluthafar eiga rétt á því að fá ákveðin mál tekin til meðferðar á hluthafafundi ef þeir gera um það skriflega eða rafræna kröfu. Óski hluthafi eftir að koma máli eða tillögu á dagskrá hluthafafundar skal slík beiðni hafa borist skrifstofu félagsins eða á netfangið hluthafar@n1.is eigi síðar en tveimur vikum fyrir fundinn, þ.e. fyrir kl. 16.00 fimmtudaginn 12. október 2017. Endanleg dagskrá og tillögur verða birtar viku fyrir fundinn. Aðgöngumiðar, atkvæðaseðlar og önnur fundargögn verða afhent frá klukkan 15:30 þann dag sem hluthafafundurinn verður haldinn. Stjórn N1 hf. Fótbolti Rúnar Kristinsson er tekinn við KR á nýjan leik. Hann skrifaði undir þriggja ára samning við félagið. Rúnar er öllum hnútum kunnug- ur hjá KR. Hann spilaði með liðinu á árunum 1987-94 og 2007 og þjálf- aði það svo með frábærum árangri á árunum 2010-14. Á þeim tíma varð KR tvisvar Íslandsmeistari og þrisvar bikarmeistari. KR vann titil á fjórum síðustu tímabilum Rúnars með liðið en síðan þá hefur KR ekki unnið stóran titil. Rúnar tekur við þjálfarastarfinu hjá KR af Willum Þór Þórssyni. Undir stjórn Willums endaði KR í 4. sæti Pepsi-deildar karla í sumar og komst ekki í Evrópukeppni í fyrsta sinn í áratug. „Við vitum allir hvað KR stendur fyrir. KR vill alltaf vera í toppbar- áttu. Félagið gekk í gegnum erfitt ár sem við þurfum að snúa við og breyta. Við þurfum að koma KR aftur í Evrópukeppni, reyna að bæta árangurinn frá því í sumar og stefna hærra,“ sagði Rúnar sem var látinn taka pokann sinn hjá Loke- ren í ágúst. Þar áður stýrði hann Lilleström í Noregi. Rúnar segir að það hafi tekið sig tíma að ákveða næstu skref hjá sér en á endanum hafi það verið erfitt að hafna sínu félagi. „Það voru ýmsir möguleikar í stöðunni en á endanum er erfitt að segja nei við KR. Þetta er mitt uppeldisfélag. Auðvitað þurfti ég umhugsunartíma en á endanum valdi ég að koma aftur til KR,“ sagði Rúnar Kristinsson. – iþs Erfitt fyrir Rúnar að segja nei við KR Rúnar Kristinsson er aftur kominn heim í KR. FRéttablaðið/vilhelm Spáin í Domino’s deild kvenna 2017-18: 1. Keflavík 188 stig 2. haukar 144 stig 3. valur 130 stig 4. Skallagrímur 129 stig 5. Snæfell 105 stig 6. Stjarnan 83 stig 7. breiðablik 43 stig 8. Njarðvík 41 stig Spáin í Domino’s deild karla 2017-18: 1. KR 414 stig 2. tindastóll 403 stig 3. Grindavík 319 stig 4. Njarðvík 267 stig 5. Stjarnan 266 stig 6. Þór Þ. 246 stig 7. Keflavík 239 stig 8. ÍR 191 stig 9. haukar 189 stig 10. valur 89 stig 11. höttur 84 stig 12. Þór ak. 60 stig KörFubolti KKÍ kynnti árlega spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna um lokaröðina í Domino’s-deildum karla og kvenna í körfubolta. Karlalið KR og kvennalið Kefla- víkur unnu bæði tvöfalt á síðasta tímabili og báðum liðum er spáð Íslandsmeistaratitlunum aftur. Keflavíkurkonur fengu algjöra yfirburðakosningu í Domino’s-deild kvenna en KR-karlar höfðu betur í spánni í karladeildinni eftir hörku- keppni frá Tindastól. Snæfell kemst ekki í úrslitakeppn- ina kvennamegin frekar en Stjarnan og í staðinn fara þangað lið Hauka og Vals sem komust ekki í úrslita- keppnina síðasta vor. Njarðvíkingar komast ekki bara í úrslitakeppnina á ný í karladeildinni heldur ná þeir líka heimavallarrétti samkvæmt spánni. Grindavík verð- ur í þriðja sæti en Haukarnir missa af úrslitakeppninni annað árið í röð. Höttur og Þór Akureyri falla í 1. deild karla samkvæmt spánni en upp í staðinn koma Skallagrímur og Breiðablik. Njarðvík fellur úr Domino’s-deild kvenna en KR kemur upp í deildina í staðinn. – óój Keflavík og KR verja titlana Fleiri svona gætu verið á leiðinni í Keflavík í vetur. myNd/vÍKuRFRéttiR S p o r t ∙ F r É t t A b l A ð i ð 13M i ð V i K u D A G u r 4 . o K t ó b e r 2 0 1 7 0 4 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :2 8 F B 0 4 8 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D E 7 -0 0 2 C 1 D E 6 -F E F 0 1 D E 6 -F D B 4 1 D E 6 -F C 7 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 4 8 s _ 3 _ 1 0 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.