Fréttablaðið - 04.10.2017, Síða 16
Elskuleg eiginkona mín, besti vinur í 42
ár og móðir barnanna okkar þriggja,
Sandra Anne Eaton
kennari í Verzlunarskóla Íslands,
lést 27. september 2017. Útför fer fram í
Grafarvogskirkju 6. október kl. 15.00.
Blóm innilega afþökkuð en þeir sem vilja
minnast Söndru geta styrkt gott málefni í hennar nafni.
Sérstakar þakkir færum við því dásamlega fólki sem
vinnur á Taugalækningadeild Landspítalans.
Vilmundur Vilhjálmsson
Alissa Rannveig Vilmundardóttir
Anna Lóa Vilmundardóttir
Eydís Rose Vilmundardóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Egill Jónsson
fyrrverandi brunavörður,
Barmahlíð 3,
lést 23. september á Landspítalanum.
Útförin fer fram frá Háteigskirkju
föstudaginn 13. október kl. 11. Blóm og kransar
vinsamlega afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hans
er bent á Hjartaheill.
Auður Ingvarsdóttir
Sveinbjörg Egilsdóttir Rögnvaldur Ólafsson
Jón Egilsson
Helga Egilsdóttir Guðmundur Björnsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Móðir okkar, tengdamóðir, amma,
langamma og langalangamma,
Gerða Doretz
Hermannsdóttir
Vesturbrún 20,
áður Miðfelli 3,
lést laugardaginn 30. september að Hjallatúni
dvalarheimili Vík.
Gunnar H. Andrésson Hrönn Ásgeirsdóttir
María G. Andrésdóttir
Jón Þórður Andrésson Sigrún Sigurðardóttir
og fjölskyldur.
Ástkær móðir okkar, tengdamamma,
amma, langamma og langalangamma,
Aðalheiður Ólafsdóttir
frá Stóru-Mástungu,
lést 26. september á hjúkrunarheimilinu Skjóli.
Hún verður jarðsungin frá Ólafsvallakirkju 6. október,
kl. 14.00.
Þórdís, Jóna, Ólöf Unnur, Jóhanna, Bjarni
og aðstandendur.
Móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Guðbjörg Vigfúsdóttir
fv. skrifstofustjóri
Iðnskólans í Reykjavík,
Hrafnistu í Reykjavík,
áður Árskógum 6, Reykjavík,
lést þann 29. september sl. Útför hennar fer fram frá
Fossvogskirkju fimmtudaginn 5. október nk. kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hennar er bent á styrktar- og líknarsjóð
Oddfellowa.
Svala Árnadóttir
Laufey Aðalsteinsdóttir Sigurður Kristjánsson
Kristinn Aðalsteinsson Christian Wammer
Egill Aðalsteinsson Anna Margrét Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Minningarathöfn um
Ólöfu Magnúsdóttur Robson
22/2 Abercromby Place
Edinburgh EH3 6QE,
sem lést í Edinborg 23. ágúst sl.
verður í Dómkirkjunni í Reykjavík
föstudaginn 6. október kl. 15.00.
Frank Robson
Magnus Robson Michelle Robson
Anna og Cara Robson
Merkisatburðir
1908 Þórhallur Bjarnarson, 52 ára forstöðumaður Presta-
skólans, er vígður biskup. Hann er biskup til æviloka, 1916.
1939 Kolamálið. Þjóðviljinn sakar ráðherra landins um að
draga að sér eldivið á skömmtunartímum. Ráðherrarnir eru
hreinsaðir af þessum áburði og ritstjórar blaðsins dæmdir
fyrir meiðyrði.
1984 Verkfall BSRB hefst. Það hefur víðtæk áhrif, m.a.
liggur skólahald niðri, strætisvagnar ganga ekki og út-
sendingar Ríkisútvarpsins falla að mestu niður. Samningar
takast 30. október.
4 . o k t ó b e r 2 0 1 7 M I Ð V I k U D A G U r16 t í M A M ó t ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð
tímamót
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli
og útfarir má senda á netfangið
timamot@365.is.
Auglýsingar á að senda á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.
Ég ákvað bara að nota tilefnið og blása til smá hittings á Hótel Holti til að halda upp á þetta á einhvern hátt. Það er gaman að bjóða fólki að koma og hittast
og spjalla saman í stað þess að bjóða allt-
af á sýningar. Það er bara gaman – eleg-
ans,“ segir Freyja Eilíf myndlistarkona og
konan bak við galleríið Ekkisens en það
er þriggja ára í dag. Í tilefni þess er öllum
boðið að stoppa við á Holtinu og fagna
með Freyju og góðvinum Ekkisens.
Hvernig kom það til að þú ákvaðst að
opna þetta rými? „Ég var nýútskrifuð
úr Listaháskólanum og mig langaði að
opna sýningarrými. Það vildi svo til að
ég fékk tækifæri til að gera það á Berg-
staðastræti 25b í húsi ömmu minnar –
amma býr á efri hæðinni og neðri hæðin
er fyrrverandi íbúð og vinnustofa afa
míns. Hann lést árið 2012 þannig að
rýmið öðlaðist nýjan tilgang sem gall-
erí.“
Hvernig hefur þetta svo gengið hjá þér?
„Þetta er bara búið að ganga vel. Það
sem gengur best er að þetta er þekkt
sýningarrými í Reykjavík og það koma
alltaf margir gestir á opnanir – sem
er gott fyrir þann sem er að sýna. Hér
er áherslan á upprennandi og minna
þekkta listamenn en staðsetningin er
góð og það er kósí að koma því að þetta
er í íbúðahverfi sem fólki finnst gott að
koma í og hangsa í garðinum.“
Hver hefur svo verið hápunktur þess-
ara þriggja ára í Ekkisens? „Hápunktur
Ekkisens var án vafa sýning á verkum
afa míns sem var opnuð í júlí í fyrra. Afi
minn, Völundur Draumland, var mynd-
listarmaður en hann sýndi ekki mikið.
Þetta var yfirlitssýning á verkum hans
og kannski nokkurs konar frumsýning
eða kynning á verkum hans. Það var
mjög góður tími – það mun ekkert
toppa það.“
Hvað er næst á dagskrá – er það ekki
bara full ferð áfram? „Jú, full ferð áfram
á meðan þetta er hægt – það eru bara
sýningar á dagskrá, viðburðir og list –
list úti um allt.“
Hátíðarhöldin hefjast klukkan 5 á
Hótel Holti í dag. stefanthor@frettabladid.is
Opnaði sýningarrými í
íbúð afa síns eftir útskrift
Galleríið Ekkisens á Bergstaðastræti hefur í dag verið starfrækt í þrjú ár. Freyja Eilíf var
nýútskrifuð úr Listaháskólanum og langaði að opna sýningarrými – sem hún og gerði í
íbúð og vinnustofu afa síns. Ekkisens leggur áherslu á verk upprennandi listafólks.
Freyja ákvað að opna sýningarrými þegar hún útskrifaðist úr Listaháskólanum.
Freyja ásamt ömmu sinni Diddu fyrir framan Ekkisens en Didda býr á efri hæðinni. FréttabLaðið/Eyþór
0
4
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:2
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
E
7
-1
8
D
C
1
D
E
7
-1
7
A
0
1
D
E
7
-1
6
6
4
1
D
E
7
-1
5
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
3
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K