Fréttablaðið - 04.10.2017, Page 20

Fréttablaðið - 04.10.2017, Page 20
– Tengir þig við framtíðina! Sjónvarpsdreifikerfi fyrir hótel, gistiheimili og skip. Auðbrekku 3 • Kópavogur • s. 564 1660 oreind@oreind.is • www.oreind.is Tveir bandarískir fjárfestingarsjóðir á vegum eignastýringarfyrirtækisins Eaton Vance Management komust nýverið í fyrsta sinn á lista yfir tutt- ugu stærstu hluthafa tryggingafélags- ins TM. Sjóðirnir Global Macro Portfolio og Global Macro Absolute Return Advantage eiga þannig í dag saman- lagt 2,84 prósenta hlut í TM sem þýðir að þeir eru saman elleftu stærstu hlut- hafar félagsins. Hlutur sjóðanna er metinn á tæpar 590 milljónir króna miðað við gengi bréfa TM eftir lokun markaða í gær. Sjóðirnir eru einu erlendu aðilarnir sem komast á lista yfir stærstu hlut- hafa í TM. Þeir eru jafnframt á lista yfir stærstu hluthafa í öllum þremur tryggingafélögunum – Sjóvá, TM og VÍS – sem eru skráð á hlutabréfa- markað. Sjóðirnir umræddu voru ekki á hluthafalista TM í lok síðasta árs, sam- kvæmt upplýsingum Markaðarins. Fjárfestingarsjóðir á vegum Eaton Vance hafa frá árinu 2015 verið langsamlega umsvifamestir erlendra aðila á íslenskum hlutabréfamarkaði. Sjóðirnir eru á meðal tuttugu stærstu hluthafa í tíu félögum í Kauphöllinni og má ætla að samanlagt markaðsvirði þess eignarhlutar nemi vel yfir tíu milljörðum króna. – kij Tveir bandarískir fjárfestingarsjóðir komnir með 2,8 prósenta hlut í TM Hlutabréf TM hafa hækkað um 16 prósent í verði í ár. FréTTablaðið/anTon brink Me ð a l l a u n s t a r f s m a n n a í stóru sjóða-stýringarfélög-unum þremur – Íslandssjóðum, Landsbréfum og Stefni – á fyrri helmingi ársins hækkuðu á bilinu um 180 til 320 þúsund krónur á mánuði frá sama tíma í fyrra. Mesta launaskriðið var hjá Stefni, en starfsmenn félagsins voru að meðal- tali með um 2.070 þúsund krónur í heildarlaun á mánuði á fyrstu sex mánuðum ársins. Hækkuðu launin um 18 prósent á milli ára. Af þremur stóru sjóðastýringar- félögunum, sem eru í eigu Arion banka, Íslandsbanka og Lands- bankans, greiddi Stefnir sem fyrr hæstu launin á fyrri helmingi ársins, en til samanburðar voru starfsmenn Íslandssjóða að meðal- tali með um 1.710 þúsund krónur í mánaðarlaun og hjá Landsbréfum námu launin um 1.690 þúsund krónum. Meðallaun starfsmanna Íslands- sjóða hækkuðu um liðlega 15 pró- sent á milli ára en hjá Landsbréfum hækkuðu launin um 12 prósent. Þess má geta að meðalmánaðar- laun starfsmanna Stefnis námu um 820 þúsund krónum árið 2009 og hafa þau þannig hækkað um rúm- lega 150 prósent á átta árum. Á sama tíma hefur almenn launavísi- tala hækkað um 60 prósent. Upplýsingar um launagreiðslur félaganna byggja á árshlutareikn- ingum þeirra um heildarlaun og meðalfjölda starfsmanna á fyrstu sex mánuðum ársins. Í einhverjum tilfellum innihalda þær greiðslur kaupauka sem stjórnendur og lykil- starfsmenn félaganna fengu í sinn hlut. Íslandsbanki og Landsbank- inn eru eins og kunnugt er í eigu íslenska ríkisins sem fer jafnframt með 13 prósenta hlut í Arion banka. Meðallaun starfsmanna í sjóða- Launaskrið hjá sjóðastýringarfélögum Með 2,9 milljónir króna í mánaðarlaun Launagreiðslur og hlunnindi til handa framkvæmda- stjórum stóru sjóðastýringarfélaganna þriggja hækk- uðu umtalsvert í fyrra. Laun og hlunnindi til handa Flóka Halldórssyni, framkvæmdastjóra Stefnis, námu ríflega 35 milljónum króna í fyrra eða sem nemur um 2,9 milljónum króna á mánuði. Árslaunin voru til samanburðar 30,3 milljónir króna árið 2015. Mánaðar- laun Helga Þórs Arasonar, framkvæmdastjóra Lands- bréfa, námu um 2,8 milljónum króna í fyrra borið saman við um 2,5 milljónir árið áður. Þá námu laun og hlunnindi til handa Haraldi Erni Ólafssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra Íslands- sjóða, 26,7 milljónum króna á síðasta ári, eða sem nemur um 2,2 milljónum króna á mánuði, en hann lét af störfum í september í fyrra. Tók Kjartan Smári Höskuldsson við forstjórastarfinu. stýringarfélögunum eru töluvert hærri en meðallaun í fjármálageir- anum. Þannig námu heildarlaun í fjármála- og vátryggingastarfsemi að meðaltali 893 þúsund krónum á mánuði í fyrra, samkvæmt nýjum tölum Hagstofu Íslands. Þá var greint frá því í Markað- inum í síðasta mánuði að meðal- laun starfsmanna smærri fjármála- fyrirtækja landsins hefðu nokkurn veginn staðið í stað á milli áranna 2015 og 2016. Fengu starfsmenn fyrirtækjanna almennt að meðal- tali á bilinu 780 þúsund til 1.610 þúsund krónur í mánaðarlaun í fyrra. Hins vegar hækkuðu arð- og kaupaukagreiðslur til starfsmann- anna umtalsvert á milli ára. Hagnaður stórjókst Hagnaður af rekstri sjóðastýringar- félaganna þriggja jókst verulega á fyrri helmingi ársins. Stefnir hagnað- ist hvað mest eða um 669 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum ársins borið saman við 322 milljónir á sama tímabili í fyrra. Jókst hagnaðurinn þannig um 108 prósent á milli ára. Hagnaður af rekstri Íslandssjóða nam 114 milljónum króna á tímabil- inu, en var 46 milljónir á sama tíma í fyrra. Þá jókst hagnaður Landsbréfa um 91 prósent og nam 556 millj- ónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Heildareignir í stýringu félaganna námu um 630 milljörðum króna í lok júnímánaðar. Eignir í stýringu Starfsmenn sjóðastýring- arfyrirtækja bankanna voru með 1.690 til 2.070 þúsund krónur í laun á mánuði á fyrri helmingi ársins. Launaskriðið var hvað mest hjá Stefni. Meðallaun starfsmanna Stefnis hafa hækkað um 150 prósent á átta árum. Kristinn Ingi Jónsson kristinningi@frettabladid.is Stefnis voru 277 milljarðar króna en þær drógust saman um 130 millj- arða á fyrstu sex mánuðum ársins. Hjá Íslandssjóðum voru eignir í stýringu 197 milljarðar í lok júní borið saman við 25 milljarða í lok síðasta árs. Aukninguna má rekja til eignastýringar á sérgreindum eignasöfnum sem félagið tók að sér á tímabilinu, að því er fram kemur í árshlutareikningnum. Eignir í stýringu Landsbréfa námu 157 milljörðum króna í lok júní og drógust saman um 27 milljarða króna á fyrri helmingi ársins. Skila neikvæðri ávöxtun Allir hlutabréfasjóðir sjóðastýr- ingarfélaganna þriggja hafa skilað neikvæðri ávöxtun það sem af er ári. Lökust er hún hjá hlutabréfasjóðum í stýringu Landsbréfa, en sem dæmi hefur sjóðurinn Öndvegisbréf skilað neikvæðri ávöxtun upp á 8,7 pró- sent og sjóðurinn Úrvalsbréf nei- kvæðri ávöxtun upp á 12,4 prósent. Hlutabréfasjóðurinn Stefnir – ÍS 15 hefur á árinu skilað neikvæðri ávöxtun upp á 4,9 prósent og þá eru hlutabréfasjóðir í stýringu Íslands- sjóða með neikvæða ávöxtun upp á eitt til tvö prósent, samkvæmt upp- lýsingum á vef Keldunnar. Til samanburðar hefur úrvalsvísi- tala Kauphallarinnar lækkað um 3,7 prósent það sem af er árinu. Meðalmánaðarlaun starfsmanna á fyrri helmingi 2017 Íslandssjóðir 1.710.000 Landsbréf 1.690.000 Stefnir 2.070.000 4 . o k t ó b e r 2 0 1 7 M I Ð V I k U D A G U r4 markaðurinn 0 4 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :2 8 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D E 7 -2 7 A C 1 D E 7 -2 6 7 0 1 D E 7 -2 5 3 4 1 D E 7 -2 3 F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 8 s _ 3 _ 1 0 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.