Fréttablaðið - 04.10.2017, Qupperneq 22
Eftir miklar offjárfestingar í bílaleigubílum undan-farið stíga bílaleigur nú varlega til jarðar. Fjöldi bílaleigubíla hefur fjór-faldast á umliðnum sex
árum en nú horfir til breytinga.
Vegna mikils framboðs og fyrirhug-
aðrar hækkunar vörugjalda á bíla-
leigubíla, sem tekur gildi um næstu
áramót, er einsýnt að bílaleigur muni
halda að sér höndum í bílakaupum
fyrir næsta sumar.
Runólfur Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Félags íslenskra bifreiðaeig-
enda, segir að á grundvelli lögmálsins
um framboð og eftirspurn eigi verð á
notuðum bílum að öðru óbreyttu að
lækka í haust þegar bílaleigur endur-
nýja flota sinn. Bílaleigurnar muni
þó reyna að grípa til aðgerða til þess
að milda höggið. „Það er ekki ósenni-
legt að sumar leigur muni freistast til
þess að leigja bíla út meira ekna en
áður. Við gætum átt von á ákveðinni
breytingu á markaðinum og að það
verði kannski ekki eins mikil endur-
nýjun á bílaleigubílum á komandi
vertíð.“
Fordæmalaus gengisstyrking
krónunnar á umliðnum árum, hæg-
ari vöxtur í ferðaþjónustu og fyrir-
huguð hækkun vörugjalda ógnar
afkomu margra bílaleiga sem eiga
þann kost einan að leita leiða til þess
að hagræða í rekstri og horfa til sam-
einingar við aðrar bílaleigur.
„Það kæmi mér ekki á óvart ef það
yrði einhver samþjöppun í vetur,“
segir Steingrímur Birgisson, forstjóri
Bílaleigu Akureyrar. „Maður hefur
heyrt af nokkrum sem eru í vand-
ræðum, fyrst og fremst vegna gengis-
styrkingar krónunnar síðustu ár, og
það verður væntanlega einhver sam-
þjöppun á markaðinum, eins og við
höfum séð annars staðar í ferðaþjón-
ustunni. Menn munu eflaust horfa til
þess að reyna að nýta hlutina betur
og bregðast við breyttu umhverfi.
Það er ekkert óeðlilegt við það.“
Eftir lygilegan uppgang á undan-
förnum árum – samhliða stóraukn-
um straumi ferðamanna til landsins
– virðist sem hægst hafi á vexti bíla-
leiga. Jafnframt eru vísbendingar um
að afkoma bílaleiga fari versnandi.
Þannig dróst samanlagður hagnaður
þriggja stærstu bílaleiga landsins;
Bílaleigu Akureyrar, ALP, sem rekur
bílaleigur undir merkjum Avis og
Budget, og Hertz, saman um 8 pró-
sent í fyrra. Nam hann 820 millj-
ónum króna borið saman við 891
milljón króna árið 2015. Samanlagt
veltu bílaleigurnar þrjár 13,6 millj-
örðum króna í fyrra samanborið
við 11,8 milljarða árið áður. Hefur
veltan aukist um liðlega 80 prósent
á einungis fjórum árum.
EBIDTA – þ.e. rekstrarhagnaður
fyrir afskriftir, fjármagnsliði og
skatta – sem hlutfall af tekjum var að
meðaltali 16 prósent hjá bílaleigum
árið 2015 en samkvæmt áætlunum
Samtaka ferðaþjónustunnar fór hlut-
fallið niður í sjö prósent í fyrra. Einn-
ig hefur lágt eiginfjárhlutfall bílaleiga
vakið athygli, en í nýlegri ferðaþjón-
ustuúttekt greiningardeildar Arion
banka kom fram að eiginfjárhlutfall
bílaleiga hefði að meðaltali verið
vel undir 10 prósentum síðustu ár.
Hins vegar var ávöxtun eigin fjár hjá
bílaleigum yfir 50 prósent árið 2015,
borið saman við um 35 prósenta
ávöxtun árið 2014.
Komið að endastöð
Einn viðmælandi Markaðarins telur
að komið sé að endastöð í fjölgun
bílaleigubíla. Offjárfestingar síðustu
ára, sér í lagi fyrir síðasta sumar, eigi
eftir að koma mörgum í koll.
„Ef það voru of margir bílar á
markaðinum í sumar eru þeir klár-
lega enn þá of margir,“ segir Margeir
Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri
Bílaleigunnar Geysis.
Steingrímur segir enga launung
að of margir bílaleigubílar hafi verið
í boði í sumar. Bílaleigur hafi offjár-
fest. „Fyrir utan smá tímabil í ágúst
áttu flestallar, ef ekki allar, bílaleigur
lausa bíla í sumar. Það var ekki í
þeim mæli að hægt væri að tala um
neyðarástand, en hins vegar var klár-
lega offjárfesting í greininni.“
Í byrjun septembermánaðar voru
25.850 bílaleigubílar á skrá, sam-
kvæmt upplýsingum frá Samgöngu-
stofu, en til samanburðar voru um
6.500 bílaleigubílar skráðir í byrjun
árs 2011. Fjöldinn hefur þannig fjór-
faldast á sex árum. Fjölgunin hefur
verið sérstaklega ör undanfarin tvö
ár og numið tæplega 45 prósentum.
Fjöldi bílaleigubíla fór yfir 26 þúsund
í ágústmánuði, sem var metmánuður,
en dróst örlítið saman í síðasta mán-
uði, eins og algengt er á haustin þegar
bílaleigur freista þess að selja bíla á
endursölumarkaði og minnka þann-
ig flota sinn. Í ljósi mikils offram-
boðs á bílaleigubílum má búast við
stórlækkuðu verði á notuðum bílum
í haust, að mati viðmælanda Mark-
aðarins. Raunar eru víða efasemdir
um hvort innlendi markaðurinn geti
yfir höfuð tekið við öllum notuðu bíl-
unum frá bílaleigunum.
Sigfús Bjarni Sigfússon, fram-
kvæmdastjóri bílaleigunnar Hertz,
segir að margar bílaleigur muni
sennilega halda að sér höndum fyrir
næsta sumar, sér í lagi í ljósi þess að
vörugjöld á bílaleigur muni hækka
um áramótin. Jafnvel gæti staðan
orðið sú að ekki verði nægilegt fram-
boð af bílaleigubílum næsta sumar.
Annar viðmælandi Markaðarins
nefnir að ekki sé ólíklegt að bílaleig-
ur kaupi allt að 40 til 50 prósentum
færri bíla á næsta ári en í ár.
Aðspurður segir Steingrímur að
áhrifin af offramboði sumarsins verði
væntanlega þau að bílaleigur kaupi
færri bíla á næsta ári og haldi þannig
að sér höndum. „Offramboðið þýddi
einnig að verðið var lægra í sumar.
Menn voru að reyna að leigja út flot-
ann sinn.“
Leigutíminn styst
Vegna styrkingar krónunnar hefur
kauphegðun ferðamanna tekið
nokkrum stakkaskiptum og segjast
margir stjórnendur bílaleiga finna
fyrir því. Steingrímur nefnir sem
dæmi að meðalleigutími bíla hafi
styst um einn dag, sennilega úr sjö
til átta dögum í sex til sjö daga. Það
er mikil breyting frá því sem áður
var, en fyrir nokkrum árum var ekki
óalgengt að bílar væru leigðir út í
tvær vikur í senn. Ferðamenn leigja
nú jafnframt minni og ódýrari bíla
en áður. Ástæðan er ekki sú að bíla-
leigur hafi hækkað verð, enda hafa
verðin almennt séð farið lækkandi,
heldur er Ísland einfaldlega orðið
of dýrt að mati margra ferðamanna.
Styrking krónunnar hefur þannig
leikið ferðamenn og vitaskuld bíla-
leigurnar grátt.
Margeir segir spár greinenda um
að gengi krónunnar myndi styrkjast
enn frekar í sumar ekki hafa gengið
eftir. Þess í stað hafi gengið veikst
umtalsvert frá því í júní. „Og þar
liggur kannski vandinn. Hvar er þessi
meinti stöðugleiki gjaldmiðilsins?
Þessar sveiflur eru erfiðar viðfangs
og ekki að gera neinum greiða, hvar
svo sem menn starfa innan ferða-
þjónustunnar.“
Viðmælendur Markaðarins taka
fram að margar bílaleigur muni lík-
lega eiga erfitt með að fjármagna
bílakaup á næstunni. Slík fjármagns-
frek kaup kalli á aukið eigið fé sem sé
ekki alls staðar til reiðu. Meðalverð
á bílaleigubílum er í kringum þrjár
milljónir króna fyrir utan virðis-
aukaskatt, samkvæmt upplýsingum
frá greiningardeild Íslandsbanka, og
er því ekki óvarlegt að áætla að bein
fjárfesting vegna bílakaupa í grein-
inni hafi slagað hátt í 30 milljarða
króna í fyrra. Er þá ótalin öll önnur
fjárfesting, svo sem í húsnæði og við-
haldi.
Margeir segir horfurnar í vetur
ágætar. „Bókunarstaðan er fín fyrir
haustið sem er ánægjuefni. Það er
meiri kraftur en áður yfir vetrar-
tímann og meiri umferð á vegunum.
Hins vegar eru verðin lægri. Okkur
hefur gengið ágætlega í ár. Það verður
ekki sagt annað. Við höfum náð að
stýra flotanum okkar þannig að við
vorum uppseldir yfir hásumarið, en
eigum töluvert af bílum á lausu núna
eins og allar bílaleigur. Nú er einnig
það tímabil gengið í garð þegar bíla-
leigur reyna að losa sig við bíla.“
Sigfús Bjarni segir sumarið hafa
verið ólíkt því sem vant er. „Það er
ljóst að það var meira framboð af
bílaleigubílum en áður. Við jukum
framboðið eitthvað, en stigum samt
varlega til jarðar og vorum með mjög
góða nýtingu á okkar flota. Haustið
lítur vel út. Verðin hafa lækkað og
samkeppnin er mikil og hörð. Ég
Róðurinn að þyngjast hjá bílaleigum
Vísbendingar eru um að hægst hafi á vexti bílaleiga. Afkoman fer jafnframt versnandi. Eftir miklar offjárfestingar í bílaleigubílum á um-
liðnum árum munu margar leigur halda að sér höndum. Vegna mikils framboðs er búist við að verð á notuðum bílum lækki í haust.
Ef það voru of
margir bílar á
markaðinum í sumar eru
þeir klárlega enn þá of
margir.
Margeir Vilhjálms-
son, fram-
kvæmdastjóri
Bílaleigunnar
Geysis
Bílaleiga
Akureyrar ALP Hertz
Hagnaður
á árinu 2016 110 milljónir 368 milljónir 342 milljónir
Breyting á milli
2015 og 2016 67% 59% 5%
Rekstrartekjur
á árinu 2016 6,3 milljarðar 3,8 milljarðar 3,5 milljarðar
Breyting á milli
2015 og 2016 11% 27% 13%
Minni hagnaður en aukin veltaKristinn Ingi
Jónsson
kristinningi@frettabladid.is
Bílaleigubílar hafa myndað sístækkandi hluta af heildarbílaflota landsins á síðustu árum. Bílaleiguflotinn var um það bil tíu prósent af heildarbílaflotanum á síðasta ári. FRéttABLAðið/Anton BRinK
4 . o k t ó b e r 2 0 1 7 M I Ð V I k U D A G U r6 markaðurinn
0
4
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:2
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
E
7
-1
3
E
C
1
D
E
7
-1
2
B
0
1
D
E
7
-1
1
7
4
1
D
E
7
-1
0
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
3
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K