Fréttablaðið - 04.10.2017, Qupperneq 27
myndi ekki tala um verðstríð, heldur
mjög virka samkeppni þar sem verð-
in breytast nánast frá degi til dags.“
Hagnaðurinn dróst saman
Eins og áður sagði skiluðu þrjár
stærstu bílaleigur landsins um 820
milljóna króna hagnaði í fyrra.
Hagnaður stærstu leigunnar, Bíla-
leigu Akureyrar, dróst saman um 67
prósent á milli ára og nam 110 millj-
ónum króna í fyrra. Rekstrartekjur
námu 6,3 milljörðum króna, borið
saman við 5,7 milljarða árið 2015,
og rekstrargjöld félagsins voru 5,4
milljarðar.
Eignir bílaleigunnar drógust
saman á milli ára, fóru úr 11,9 millj-
örðum í tæpa 11,6 milljarða, og þá
lækkaði eiginfjárhlutfallið úr 4,7 pró-
sentum í lok árs 2015 í 3,2 prósent í
lok síðasta árs. Var handbært fé frá
rekstri rúmar sjö milljónir í lok árs
2016 borið saman við 179 milljónir í
lok árs 2015. Alls störfuðu 220 manns
að meðaltali hjá bílaleigunni á árinu
og fækkaði starfsmönnum um átta á
milli ára.
Hagnaður ALP nam 368 milljón-
um króna í fyrra og jókst um tæpar
140 milljónir á milli ára. Rekstrartekj-
urnar námu 3,8 milljörðum króna
og rekstrargjöldin 2,4 milljörðum.
Var eiginfjárhlutfallið 18,3 prósent í
lok síðasta árs borið saman við 16,0
prósent í lok árs 2015. Alls störfuðu
126 starfsmenn að meðaltali hjá ALP
í fyrra.
Þá hagnaðist Hertz um 342 millj-
ónir króna í fyrra samanborið við 325
milljónir árið áður. Voru rekstrartekj-
urnar 3,5 milljarðar króna og rekstr-
argjöldin 1,8 milljarðar. Eiginfjár-
hlutfallið nam 20,7 prósentum í lok
síðasta árs og hækkaði um tæp fjögur
prósentustig á milli ára, en hins vegar
dróst handbært fé frá rekstri verulega
saman í fyrra og var 67 milljónir í lok
ársins borið saman við 179 milljónir í
lok árs 2015. Meðalfjöldi starfsmanna
var 105 í fyrra.
Maður hefur heyrt
af nokkrum aðilum
sem eru í vandræðum,
aðallega vegna styrkingar
krónunnar síðustu ár, og það
verður væntan-
lega einhver
samþjöppun.
Steingrímur
Birgisson, forstjóri
Bílaleigu Akureyrar
„Rústar“ rekstrargrundvelli bílaleiganna
Gunnar Valur Sveinsson, verk-
efnastjóri hjá Samtökum
ferðaþjónustunnar, segir margar
bílaleigur innan vébanda sam-
takanna vera uggandi yfir fyrir-
hugaðri hækkun vörugjalda á
bílaleigur. Hækkunin tekur gildi
1. janúar næstkomandi en frá og
með þeim degi þurfa bílaleigur
að greiða full vörugjöld af öku-
tækjum sínum.
„Auknar álögur munu tvímæla-
laust hafa þau áhrif að afkomu
einhverra fyrirtækja verði ógnað.
Fjármögnun á nýjum bílum
mun þyngjast og munu bíla-
leigubílar þar með eldast. Með
hærri meðalaldri verða bílarnir
ekki eins öruggir og ekki búnir
sömu gæðum og bílaleigubílar
eru búnir í dag,“ segir Gunnar
Valur. Umhverfið muni jafnframt
breytast. Þannig séu erlendir
ferðamenn á bílaleigubílum
líklegir til þess að draga úr akstri
sínum, dvelja skemur og fara
síður út á landi.
„Í nefndaráliti efnahags- og
viðskiptanefndar Alþingis, þegar
boðaðar breytingar voru sam-
þykktar haustið 2015, kemur
fram að skoða eigi skattbyrði
bílaleigufyrirtækja í samráði við
greinina. Sú skoðun hefur hrein-
lega ekki farið fram. Við höfum
sent fjölmargar tillögur til ráðu-
neytisins en það hefur ekkert
komið út úr því. Það verður að
teljast mjög ámælisvert.“
Steingrímur nefnir að hækkun
vörugjalda muni koma bílaleigum
mjög illa. „Hún mun í rauninni
rústa rekstrargrundvellinum. Það
þarf bara að finna hvaða leiðir
séu færar til þess að takast á við
það. Stjórnvöld lofuðu að ræða
við okkur en það hefur ekki gerst.
Gengisstyrking krónunnar og
síðan þessi vörugjaldahækkun
hefur mikil áhrif á greinina og er í
raun og veru að gjörbylta henni,“
segir hann.
„Þetta er margfalt alvarlegra
mál fyrir ferðaþjónustuna heldur
en til dæmis hækkun á virðis-
aukaskatti á gistingu. Gallinn er
sá að það fattar það enginn,“
nefnir Margeir og bætir við:
„Þegar breytingin tekur gildi um
áramótin verða greidd sömu
vörugjöld af bílaleigubílum og
öðrum fólksbílum. Þá verður
bílaleigubíllinn eina atvinnutækið
á Ísland sem greidd eru full vöru-
gjöld af. Fyrir bílaleigurnar er það
auðvitað galið.“
Hann segir að áhrifin af
hækkuninni verði væntanlega
þau að bílaleigurnar muni í
auknum mæli flytja bíla sjálfar
inn. „Þær munu einfaldlega spyrja
sig: Hvar næ ég í ódýrasta bílinn?
Ég held að þessi breyting verði
mun alvarlegri fyrir bílaumboðin
heldur en bílaleigurnar. Ef maður
lítur til síðustu fjögurra ára hafa
bílaleigurnar keypt um 45 til 50
prósent af heildarsölu bílaum-
boðanna. Það verður rosalega
þungt högg fyrir umboðin að
missa þennan spón úr aski
sínum.“
30.000
25.000
20.000
15.000
10.000
5.000
20
10
M
07
20
10
M
12
20
11
M
05
20
11
M
10
20
12
M
03
20
12
M
08
20
13
M
01
20
12
M
06
20
13
M
11
20
14
M
04
20
14
M
09
20
15
M
02
20
15
M
07
20
15
M
12
20
16
M
05
20
16
M
10
20
17
M
03
20
17
M
08
Fjöldi skráðra bílaleigubíla hefur fjórfaldast á sex árum
TÍMA
RIT
VIÐ PRENTUM
ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA SUÐURHRAUNI 1, 210 GARÐABÆ PRENTUN Í 140 ÁR
Ísafoldarprentsmiðja er umhverfisvottuð prentsmiðja af Svaninum,
norræna umhverfismerkinu. Við erum aðilar að rammasamningi
Ríkiskaupa og rammasamningi Reykjavíkurborgar. Við framleiðum
dagblöð, bækur, tímarit, bæklinga, umbúðir, veggspjöld, bréfsefni,
umslög, nafnspjöld, fjölpóst og margt fleira.
Hafðu samband við viðskiptastjóra okkar
í síma 5 950 300 og við komum
þínum hugmyndum í framkvæmd.
WWW.ISAFOLD.IS
Gunnar Valur
Sveinsson, verk-
efnastjóri hjá
Samtökum
ferðaþjónust-
unnar
markaðurinn 7M I Ð V I K U D A G U R 4 . o K t ó b e R 2 0 1 7 M
0
4
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:2
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
E
7
-1
3
E
C
1
D
E
7
-1
2
B
0
1
D
E
7
-1
1
7
4
1
D
E
7
-1
0
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
3
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K