Fréttablaðið - 04.10.2017, Blaðsíða 30
Hagnaður sænsku fatakeðjunnar dregst samanSkotsilfur
Stjórnendur sænsku fatakeðjunnar Hennes & Mauritz sögðu í vikunni að aukin netverslun hefði rýrt afkomu keðjunnar og dregið úr sölu á
þriðja fjórðungi ársins. Hagnaður H&M, sem er næststærsta fatakeðja í heimi, dróst saman um tuttugu prósent á tímabilinu. Um var að ræða
meiri samdrátt en búist var við. Stjórnendurnir hyggjast loka hátt í níutíu verslunum í ár til að bregðast við gjörbreyttu umhverfi. Fréttablaðið/EPa
Árið 1937 voru aðildarfélagar Blaða-
mannafélags Íslands tuttugu talsins.
Þetta voru þá blaðamenn helstu
dagblaða í Reykjavík og innan hóps-
ins var ein kona. Sem betur fer hefur
mikið breyst síðan þá, enda get ég
ekki ímyndað mér hversu einsleitir
fjölmiðlar væru ef 95% starfsmanna
frétta væru eingöngu karlar. Per-
sónulega tel ég líka að aukin hlut-
deild kvenna í fjölmiðlum hafi aukið
fjölbreytileika efnis og umræðu svo
um munar. Með fleiri konum í fjöl-
miðlum höfum við hreinlega upp-
skorið meira, betra og fjölbreyttara
efni.
En við þurfum ekki aðeins að
fjölga konum innan fjölmiðla,
heldur einnig í hópi viðmælenda.
Þar er oft talað um að hlutföllin séu
70:30, karlmönnum í vil. Undan-
tekning var þó fjölmiðladagur FKA
í fyrra. Þá tóku fjölmiðlar svo ræki-
lega þátt, að konur urðu nánast
allsráðandi í umræðunni og mjög
áberandi í öllum tegundum miðla.
Tvennt gerðist í kjölfarið: í fyrsta lagi
víxluðust kynjahlutföllin í ljósva-
kafréttum, konum í vil. Þetta teljum
við vera einsdæmi í heiminum.
Hins vegar staðfesti góð þátttaka
fjölmiðla áhuga þeirra og vilja til
að jafna stöðu kynjanna í umræð-
unni. Við konurnar stöndum líka
alveg undir því að taka meiri þátt.
Við erum virkar á öllum sviðum
atvinnulífs, í stjórnmálum, erum
vel menntaðar og stöndum jafnfætis
öðrum sem álitsgjafar.
Jöfn ásýnd kynja í fjölmiðlum
getur líka leitt til hraðari breytinga
í svo mörgu. Ég nefni sem dæmi
hraðari árangur í að jafna hlut-
deild kynja í stjórnunarstöðum, í
launum eða í stjórnmálum. Í dag
er fjölmiðladagur FKA 2017 og er
sérlegur gestur okkar Mary Hoc-
kaday frá BBC. Mary mun hitta
fyrir fjölmiðlafólk, FKA konur og
fleiri, en í tilefni dagsins hvet ég
líka fjölmiðla til að ræða við sem
flestar konur, hvert svo sem við-
fangsefnið er.
Markmiðið er að víxla kynjahlut-
föllum viðmælenda í einn dag, eins
og í fyrra. Í þetta sinn hefur Jafn-
réttisráð Evrópu óskað eftir upp-
lýsingum um hvernig til tekst. Það
er því aldrei að vita nema að þetta
sameiginlega verkefni FKA og fjöl-
miðla um aukna ásýnd kvenna í fjöl-
miðlum, endi með að verða öðrum
þjóðum til fyrirmyndar. Háleit
hugmynd en ekki fráleit. Eða hvað
finnst ykkur?
Í fréttum er þetta helst ...
rakel
Sveinsdóttir,
formaður FKA
Eymdarvísitalan, sem búin er til af hagfræð-ingnum Arthur Okun og nefnist á ensku misery index eða economic discomfort index, er
einfaldur mælikvarði yfir almenna
stöðu íbúa landa (nokkurs konar
lífskjör) og stöðu hagkerfisins. Vísi-
talan er reiknuð með því að leggja
saman atvinnuleysi og verðbólgu og
eftir því sem gildið á henni er lægra
gefur það til kynna betri stöðu en
hærra gildi bendir til verri stöðu.
Í rauninni er hægt að túlka
niðurstöður vísitölunnar á nokkra
vegu, til dæmis gefur hún bæði
vísbendingu um lífskjör almenn-
ings í hverju landi fyrir sig, sem og
efnahagslega stöðu landsins. Lítið
atvinnuleysi samhliða lágri verð-
bólgu gefur til kynna að atvinnu-
möguleikar séu góðir og þær tekjur
sem aflað er rýrist ekki í verðbólgu,
samtímis því að vera afleiðing af
góðri efnahagslegri stöðu og kröft-
ugum hagvexti. Á hinn bóginn er
hátt atvinnuleysi og há verðbólga
ávísun á verri lífskjör og almenna
óánægju og gefur til kynna slæma
efnahagslega stöðu.
Í lok árs 2008 fór vísitalan yfir 20
sem var að mestu leyti vegna mjög
hárrar verðbólgu í kjölfar veikingar
krónunnar en síðan hefur vísitalan
lækkað jafnt og þétt. Til saman-
burðar hefur vísitalan í Bandaríkj-
unum einu sinni farið yfir 20 en það
var árið 1980 og árin 2010 til 2012
var hún á bilinu 12 til 13 en er í dag
um 6. Á Íslandi er eymdarvísitalan
nú rúmlega 4 og hefur sjaldan verið
lægri enda er það þannig að lítið
atvinnuleysi fer oft ekki saman með
lágri verðbólgu.
Síðast fór vísitalan undir 5 árið
1998 en þá var atvinnuleysi og verð-
bólga á mjög svipuðum slóðum og
í dag. Í síðustu viku kom mæling á
vísitölu neysluverðs frá Hagstofu
Íslands sem var heldur lægri en
búist var við. Mælist ársverðbólgan
nú 1,4%, en án húsnæðis mælist
hins vegar 3,1% verðhjöðnun. Það
Eymdarvísitala Íslands sjaldan verið lægri
Valdimar
Ármann
forstjóri
GAMMA Capital
Management
er því bæði atvinnuleysi og verð-
bólga sem hefur verið að lækka og
stuðla að lægri eymdarvísitölu en
við höfum áður séð.
Eymdarvísitalan er einfaldur
mælikvarði og ber að taka niðurstöð-
unni sem slíkri, þ.e. einföldu mati á
stöðunni. Til eru endurbættar útgáf-
ur af eymdarvísitölunni sem felast til
dæmis í því að bæta við vaxtakjörum
og draga síðan frá ársbreytingu í
vergri landsframleiðslu á hvern íbúa.
Hugmyndin er þá sú að hærri vaxta-
kjör bæti við eymdina ásamt háu
atvinnuleysi og hárri verðbólgu en
hár hagvöxtur dragi úr eymdinni. Má
í því sambandi nefna að raunvextir á
löngum verðtryggðum ríkisbréfum
voru árið 1998 um fjögur prósent en
eru í dag rúmlega tvö prósent. Einnig
hefur verið sett fram að ekki eigi að
jafnvigta atvinnuleysi og verðbólgu
þar sem hærra atvinnuleysi hefur
neikvæðari áhrif en hærri verðbólga.
En þrátt fyrir einfaldleikann má
sjá á einfaldan hátt að staðan er góð
á Íslandi og að almennt hafi lands-
menn það gott á þann hátt að flestir
hafa atvinnu og tekjurnar eru ekki
rýrðar í verðbólgu. Í samanburði
á eymdarvísitölunni við erlend
ríki má sjá að þau sem skora verst í
eymdarvísitölunni eru þau þar sem
efnahagsleg óstjórn og óstöðugleiki
er mestur, og þar ríkir raunveruleg
eymd.
20
15
10
5
0
19
91
19
92
19
93
19
94
19
95
19
96
19
97
19
98
19
99
20
00
20
01
20
02
20
03
20
04
20
05
20
06
20
07
20
08
20
09
20
10
20
11
20
12
20
13
20
14
20
15
20
16
20
17
Eymdarvísitalan
4,2
Átök í Skeljungi
Mikið hefur
gengið á innan
olíufélagsins
Skeljungs að
undanförnu.
Aðeins nokkrum
vikum eftir að
tilkynnt var um að
Valgeir Baldursson myndi láta af
störfum sem forstjóri var greint frá
því að Sigurður Orri Jónsson, sem
hefur verið framkvæmdastjóri
fyrirtækjasviðs, myndi sömu-
leiðis yfirgefa olíufélagið. Að sögn
kunnugra hafði Sigurður Orri, sem
er vinur Jóns Diðriks, stjórnar-
formanns Skeljungs, augastað á
forstjórastólnum en þess stað var
Hendrik Egholm, framkvæmda-
stjóri dótturfélags Skeljungs í
Færeyjum, ráðinn í starfið. Þá
hefur Lúðvík Björgvinsson, for-
veri Sigurðar Orra í starfi, einnig
hætt eftir tæplega 30 ára störf hjá
Skeljungi, síðast sem viðskipta-
stjóri, sem þykir talsverð blóðtaka
fyrir félagið.
Enginn aukvisi
Þrír nýir stjórnar-
menn, Gísli
Heimisson,
Magnús E.
Björnsson og
Eric a. Stubbs,
tóku sæti í stjórn
íslenska fjármála-
tæknifyrirtækisins Monerium í
síðasta mánuði. Stubbs þessi hefur
á undanförnum árum starfað hjá
mörgum þekktustu stórbönkum
heims og starfar í dag sem sjóðs-
stjóri í eignastýringardeild Royal
Bank of Canada. Þar áður stýrði
hann eignastýringarþjónustu fjár-
festingarbankans Bear Stearns sem
var seldur til JP Morgan vorið 2008.
Á meðal stofnenda Monerium eru
þeir Jón Helgi Egilsson og Sveinn
Valfells.
Kom á óvart
Óhætt er að segja
að skipun Krist-
rúnar Mjallar
Frostadóttur,
hagfræðings
Viðskiptaráðs
Íslands, og Þórólfs
Matthíassonar í verð-
lagsnefnd búvara hafi komið á
óvart. Viðskiptaráð og Þórólfur hafa
um árabil verið ötulir andstæðingar
landbúnaðarkerfisins. Skipanin
féll í grýttan jarðveg hjá banda-
mönnum kerfisins en Sigmundur
Davíð Gunnlaugsson lýsti henni
sem „stríðsyfirlýsingu við bændur“.
Hann getur þó prísað sig sælan
að fulltrúar bænda fara enn með
meirihluta í nefndinni.
4 . o k t ó b E r 2 0 1 7 M I Ð V I k U D A G U r10 markaðurinn
0
4
-1
0
-2
0
1
7
0
4
:2
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
E
7
-2
C
9
C
1
D
E
7
-2
B
6
0
1
D
E
7
-2
A
2
4
1
D
E
7
-2
8
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
3
_
1
0
_
2
0
1
7
C
M
Y
K