Fréttablaðið - 04.10.2017, Síða 32

Fréttablaðið - 04.10.2017, Síða 32
Markaðurinn Miðvikudagur 4. október 2017fylgirit fréttablaðsins um Viðskipti og fjármál | Viðskiptavefur Vísis @VisirVidskiptiwww.visir.is Stjórnar- maðurinn @stjornarmadur 02.10.2017 Eyþór Arnalds fjárfestir tók í liðinni viku sæti í stjórn Árvakurs, útgáfufélags Morgunblaðs- ins. Einkahlutafélagið Ramses II, sem er í eigu Eyþórs, er stærsti einstaki hluthafi Þórsmerkur, eiganda Árvakurs, með 22,87 prósenta hlut. Eyþór kom nýr inn í stjórnina í stað Frið- björns Orra Ketilssonar sem setið hefur í stjórn Árvakurs frá árinu 2015. Félag Eyþórs fór inn í hluthafahóp Þórsmerkur í apríl þegar félagið keypti eignarhluti útgerðarfélaganna Sam- herja, Síldarvinnslunnar og Vísis. Fyrir í stjórn Árvakurs sitja þau Sigur- björn Magnússon stjórnarformaður, Ásdís Halla Bragadóttir, Bjarni Þórður Bjarnason og Katrín Pétursdóttir. Félagið Hlynur A, í eigu Guðbjargar Matthíasdóttur, útgerðarkonu í Vestmannaeyjum, er næststærsti hluthafi Þórsmerkur með 16,5 prósenta hlut en þar á eftir kemur félag í eigu Kaupfélags Skagfirðinga með 15,84 pró- senta hlut. – kij Eyþór arnalds í stjórn Árvakurs Eyþór Arnalds Hvernig ætlum við að taka á bónusunum nema ein- mitt með því að skatt- leggja ofurtekjur sem slíkar? Byrjum þar. Katrín Jakobsdóttir, for- maður Vinstrihreyfingar- innar – græns framboðs NÝTT 365.isMARGFALT SKEMMTILEGRI APPLE TV Á 0 KR. MEIRI HRAÐI, SKARPARI MYND OG BETRA VIÐMÓT Við hjá 365 leggjum metnað í að þú njótir fyrsta flokks skemmtunar á sem bestan hátt. Með 365 sjónvarp á Apple TV færðu meiri hraða, skarpari mynd og enn betra viðmót í sjónvarpi framtíðarinnar. Nú getur þú fengið Apple TV 4 með áskrift að efni frá 365 og sparað tugi þúsunda því við bjóðum þér Apple TV á 0 krónur með 12 mánaða áskrift að völdum pökkum 365. með 12 mánaða áskrift að völdum pökkum 365 Nánar á 365.is eða í síma 1817. Nú eru kosningar fram undan og fulltrúar flokkanna komnir í gírinn. Þannig skundaði fyrsti maður á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík í útvarpið og lýsti því yfir að aðalmálið í þessum kosningum væri kynferðis- ofbeldi gegn börnum. Formaður Vinstri grænna lét svo ekki sitt eftir liggja en hún ætlar að láta baráttuna gegn bónusum í fjármálakerfinu á oddinn í kosningabaráttunni. Samfylkingin er eins og fólk man flokkurinn sem allt að því þurrkaðist út í síðustu kosningum. Það telst nánast vera afrek í landi á borð við Ísland þar sem nánast allir geta að minnsta kosti að einhverju leyti sætt sig við sósíaldemókratískar áherslur. Auðvitað eru allir á því að það eigi að vera í algerum forgangi að koma í veg fyrir kynferðisofbeldi gegn börnum. Þá skiptir engu máli í hvaða flokki það er. Kannski var einmitt þetta ein af ástæðum niðurlægingar Samfylk- ingarinnar? Almennar staðhæfingar um sjálfsagða hluti. Ekkert kjöt á beinunum. Útspil formanns VG er af sama toga. Staðreyndin er einfaldlega sú að á Íslandi eru borgaðir lægstu bónusar úr fjármálafyrirtækjum sem þekkist á byggðu bóli. Kaupaukar mega í mesta lagi nema 25% árslauna þess starfsmanns sem um ræðir, innan Evrópusambandsins er hlutfallið 100% en 200% í Bretlandi. Bónusa þarf jafnframt að greiða yfir þriggja ára tímabil. Þannig má sem dæmi segja að starfs- maður með 1,5 milljónir á mánuði, sem telst dágott, fær í sinn hlut 4,5 milljónir að því gefnu að hann nái efsta þrepi. Það greiðist svo á þremur árum, þannig að greiðsla fyrsta árið nemur að frádregnum skatti rétt tæpri milljón aukalega. Varla er þetta hið stórkostlega hneyksli sem Katrín hyggst uppræta? Einnig má velta því fyrir sér hvert hún beinir sjónum sínum næst, en eins og allir vita hefur lengi tíðkast að greiða svokallaða desemberuppbót á almennum vinnumarkaði. Vafalaust á hið sama við um það, eða kannski ekki, enda er þar ekki um banka- menn að ræða? Vonandi sjá kjósendur í gegnum svona lýðskrum. Kosningarnar sem fram undan eru eiga ekki að snúast um bónusa, enda eru þeir ekki raun- verulegt vandamál, þær eiga heldur ekki að snúast um klisjur úr munni pólitíkusa sem hafa skulu það sem betur hljómar. Kosningarnar eiga að snúast um raunveruleg vandamál, og raunverulegar lausnir. Lýst er eftir pólitíkusum með slíkar áherslur. Lýðskrum 0 4 -1 0 -2 0 1 7 0 4 :2 8 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 D E 7 -2 7 A C 1 D E 7 -2 6 7 0 1 D E 7 -2 5 3 4 1 D E 7 -2 3 F 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 8 s _ 3 _ 1 0 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.