Fréttablaðið - 26.08.2017, Side 16

Fréttablaðið - 26.08.2017, Side 16
Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Einar Þór Sverrisson forStjóri: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kjartan Hreinn Njálssson kjaranh@frettabladid.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Gunnar Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is Mín skoðun Sif SigmarsdóttirHingað til hafa alþjóðleg stórfyrirtæki vafalaust litið á Ísland sem of lítinn bita. Þau hafa einfaldlega ekki talið borga sig að opna versl- anir hér á landi. Peningar eru einn lygilegasti skáldskapur sem maðurinn hefur samið. Samkvæmt ísraelska sagnfræðingnum og metsöluhöfundinum Yuval Noah Harari eru peningar aðeins hugarburður, saga sem við sameinumst um að trúa á. Fyrir 70.000 árum varð stökkbreyting í heila mannsins. Í kjölfarið tóku tungumálahæfileikar tegundarinnar óvæntum framförum. Í stað þess að tjá sig aðeins um það sem við blasti í raunheimum – tré, steina, vatnsból og ljón sem lágu í leyni – fór maðurinn að geta tjáð sig um hluti sem ekki voru til í alvörunni. Hann fór að spinna upp sögur. Harari segir þennan eiginleika liggja til grundvallar getu mannsins til að vinna saman í stærri hópum en nokkur önnur dýrategund. Þúsundir, jafnvel milljónir einstaklinga, geti sameinast um sögu og unnið að sameiginlegu markmiði í krafti hennar. Sem dæmi um sögur, hluti sem ekki séu til í alvörunni heldur fyrir- finnist aðeins í sameiginlegum hugarheimi mannsins, nefnir Harari þjóðríki, mannréttindi, lög, guð og peninga. Nælonsokkur með gati Uppi á vegg heima hjá mér hangir breskt plakat úr síðari heimsstyrjöld. Um er að ræða teikningu af föngulegri ungri konu í hnésíðum köflóttum kjól með mjótt mitti. Sveipuð pastellituðum fortíðarljóma gramsar hún í fataskáp. Hún heldur á nælonsokk sem hún skoðar af alvörugefinni íhygli. Á plakatinu stendur stórum stöfum: „Make-do and mend.“ Sýndu nægjusemi og bættu það sem þú átt. Fataskömmtun hófst í Bretlandi sumarið 1941. Til- gangur hennar var að tryggja að takmarkaður varningur- inn dreifðist jafnt til allra á tímum er mikill skortur ríkti. Sem lið í fataskömmtuninni hleyptu bresk yfirvöld af stokkunum átaki undir slagorðinu „make-do and mend“ þar sem fólk var hvatt til að sýna nægjusemi og laga fatnað frekar en að kaupa nýjan. Stutt í veskið Í dag verður opnuð í Smáralind verslun sem færir íslenska neytendur enn einu skrefi fjær því að þurfa nokkurn tímann að stoppa í sokka, laga saumsprettu og sýna nægjusemi. Koma H&M til landsins er að mörgu leyti fagnaðarefni. Hverjum finnst gaman að stoppa í sokka? Opnun fatakeðjunnar er þó tilefni til að staldra við. Í neyslusamfélagi samtímans er stutt í veskið. Við teygjum okkur ekki aðeins í það þegar komið er gat á sokkana og okkur vantar nýja heldur einnig þegar sokka- skúffan er stútfull af stráheilum pörum. Yfirfull sokka- skúffa inniheldur hins vegar annað og meira en sokka. Apar og Jón Sigurðsson Peningar eru kannski skáldskapur. Það sem þeir standa fyrir er það þó ekki. Frasinn „time is money“, eða tími er peningar, er flestum kunnur. En ef tími er peningar, eru þá peningar ekki tími? Ruslahaugar veraldarinnar eru fullir af lítið notuðum fatnaði, flatskjáum sem enn virka og brauðgerðartækjum sem aldrei voru notuð; hlutum sem eitt sinn voru keyptir fyrir peninga sem einhver fékk í skiptum fyrir tíma sinn – tíma sem ekki var varið með fjölskyldu eða vinum, tíma sem ekki fór í að sinna hugðarefnum, tíma sem aldrei kemur til baka. Homo sapiens er eina dýrategundin sem getur tjáð sig um hluti sem ekki eru til. Api léti aldrei af hendi banana í skiptum fyrir loforð um hundrað banana í himnaríki að lífinu loknu. Api léti aldrei banana af hendi fyrir pappírs- snepil með mynd af Jóni Sigurðssyni. Í tilefni opnunar H&M í dag er rétt að velta fyrir sér visku fortíðar; annars vegar visku apans sem tæki aldrei fram veskið í H&M, hins vegar nægjusömu húsfrúarinnar á plakatinu sem gerði það ekki heldur. Því í hvert sinn sem við afhendum tíma okkar í skiptum fyrir óþarfa sem endar sem óbreytt rusl grafið í jörðu urðum við tíma okkar; við urðum líf okkar. Við erum jörðuð þegar við erum öll. Er ekki óþarfi að við séum grafin lifandi? Viðskiptavinir grafnir lifandi í H&M Frábært verð á glerjum Einfókus gler Verð frá kr. 16.900,- Margskipt gler Verð frá kr. 41.900,- Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is Skiptu um lit! iGreen V4.02.02M umgjörð kr. 14.900,- Með iGreen umgjörðum getur þú útbúið þá litasamsetningu sem þú vilt. Verslun á Íslandi stendur á tímamótum. Áskoranir mæta kaupmönnum úr mörgum áttum. Miklu munar um internetverslunina en í ofanálag þurfa íslenskir kaupmenn nú að glíma við alþjóðlegar verslunarkeðjur sem hingað sækja í auknum mæli. Á síðustu misserum hefur fjöldi alþjóðlegra fyrir- tækja haslað sér völl á okkar litla markaði. Fyrst Bau- haus, svo Costco og nú síðast H&M. Útlend merki eru í sjálfu sér engin nýlunda. Breytingin felst í því að nú reka hin alþjóðlegu risafyrirtæki verslanirnar sjálf, milliliðalaust, en ekki með sérleyfissamningum eins og hingað til hefur nánast undantekningarlaust tíðkast með þekkt útlend vörumerki eins og Zara, Sports Direct, Topshop og Debenhams. Hingað til hafa alþjóðleg stórfyrirtæki vafalaust litið á Ísland sem of lítinn bita. Þau hafa einfaldlega ekki talið borga sig að opna verslanir hér á landi. Augljóst er hvað hefur breyst – ferðamannafjöldinn. Ísland er ekki lengur einangruð eyja í norðri heldur vin- sæll áfangastaður ferðamanna sem gjarnan vilja gera sín innkaup á stöðum sem þeir þekkja. Ísland er líka, og sennilega sérstaklega í tilviki Costco, áhugaverður til- raunamarkaður. Hér má prófa nýjungar og æfa sig áður en haldið er á stærri alþjóðlega markaði. Innlendir kaupmenn hafa heldur betur fundið fyrir samkeppninni á undanförnum mánuðum. Gengi Haga, stærsta verslunarfyrirtækis landsins, hefur hríðfallið í Kauphöllinni, og olíufélögin hafa sömuleiðis átt í vandræðum. Þá eru ótalin fyrirtæki sem ekki eru skráð á markað og þurfa ekki að birta rekstrarniðurstöður sínar. Kaupmennirnir þurfa ekki bara að etja kappi við nýja alþjóðlega keppinauta, heldur einnig internetið. Heimurinn er skyndilega innan seilingar fyrir íslenska neytendur. Skórnir sem þú skoðar á netinu geta verið komnir upp að dyrum daginn eftir. Kostnaður við send- ingu og opinber gjöld eru miklu minni en áður. Áhugavert hefur verið að fylgjast með þessum breyt- ingum dynja yfir. Þeir sem fyrir voru á markaðnum hafa reynt að undirbúa sig. Hagar hafa til að mynda minnkað verslanir sínar og hætt að selja föt. Óljóst er hvort þessar breytingar skili tilætluðum árangri. Hvað neytendur varðar hefur verið athyglisvert að fylgjast með hversu mikils pirrings virðist gæta út í rót- gróin verslunarfyrirtæki hér á landi. Það hlýtur að vera áhyggjuefni, að neytendur hafi það á tilfinningunni að á þeim hafi verið okrað. Vissulega er rétt að innlendir kaupmenn líða fyrir smæðina í samkeppni við erlenda risa. Þeir hafa líka búið við há opinber gjöld og von- lausan gjaldmiðil. Það skýrir hins vegar ekki allt. Íslenskra kaupmanna bíður það verkefni að endur- heimta traust neytenda í breyttu rekstrarumhverfi. Tíminn leiðir í ljós hverjir standa uppi sem sigurvegarar að lokum. Gerbreytt staða 2 6 . á g ú s t 2 0 1 7 L A U g A R D A g U R16 s k o ð U n ∙ F R É t t A B L A ð i ð SKOÐUN 2 6 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :2 2 F B 1 2 0 s _ P 1 2 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 1 0 5 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 9 3 -E F 9 8 1 D 9 3 -E E 5 C 1 D 9 3 -E D 2 0 1 D 9 3 -E B E 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 1 2 0 s _ 2 5 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.