Fréttablaðið - 26.08.2017, Blaðsíða 105
www.reykjavik.is/styrkir
Styrkir
Reykjavíkurborgar
Reykjavík City grants
Granty Miasta Reykjavík
Reykjavíkurborg auglýsir eftir umsóknum um styrki vegna starfsemi á árinu 2017. Meðal
markmiða styrkveitinga er að styrkja og efna til samstarfs við félagasamtök, fyrirtæki og
einstaklinga um uppbyggilega starfsemi og Þjónustu í samræmi við stefnumörkun, áherslur
og forgangsröðun borgaryfirvalda. Styrkir eru m.a. veittir til verkefna á sviði eftirtalinna
málaflokka:
• félags- og velferðarmála
• skóla- og frístundamála
• íþrótta- og æskulýðsmála
• mannréttindamála
• menningamála
Á www.reykjavik.is/styrkir er hægt að sækja um og finna leiðbeiningar um umsóknarferli.
Einnig er þar að finna reglur um styrkveitingar og nánari Upplýsingar um áherslur borgarinnar
í einstökum málaflokkum. Umsóknarfrestur er til 12:00 á hádegi 3. október nk.
English
The city of Reykjavíkis currently accepting grant applications for the 2017 fiscal year. The goal
of the grants is to strengthen and create cooperation with NGO´s businesses and individuals
in constructive activities and services. In accordance with the city´s policies and priorties.
Grants will be awarded for projects in the following fields:
• social and welfare affairs
• education and leisure
• sports and youth
• human rights
• culture
To apply go to: www.reykjavik.is/styrkir Also available on the website is information on grant
rules and regulations and information about the city´s priorities in the various area of
interest. The application deadline is at 12:00 pm on October 3rd.
Fyrirspurnir og óskir um nánari upplýsingar má
senda á netfangið: styrkir@reykjavik.is
More information: styrkir@reykjavik.is
Wiecej informacji: styrkir@reykjavik.is
Reykjavíkurborg
www.reykjavik.is
Reykjavíkurborg auglýsir eftir umsóknumum styrki vegna starfsemi á árinu 2018.
Meðal markmiða styrkveitinga er að styrkja ogefna til samstarfs við félagasamtök, fyrirtæki ogeinstaklinga
um uppbyggilega starfsemi og þjónustuí samræmi við stefnumörkun, áherslur og forgangsröðun borgaryfirvalda.
Styrkir eru m.a. veittir til verkefna á sviði eftirtalinna málaflokka:
• félags- og velferðarmála
• skóla- og frístundamála
• íþrótta- og æskulýðsmála
• mannréttindamála
• menningarmála
Vakin er athygli á því að við afgreiðslu styrkumsókna er horft sérstaklega til þess hversu vel umsóknir falli að
mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar og markmiðum um innleiðingu á kynjaðri starfs- og fjárhagsáætlun.
Á www.reykjavik.is/styrkir er hægt að sækja um og finna leiðbeiningar um umsóknarferli.
Einnig er þar að finna reglur um styrkveitingar og nánari upplýsingar um áherslur borgarinnar í einstökum
málaflokkum.
Umsóknarfrestur er frá kl. 8.00 am 1. september nk. til 12.00 á hádegi 2. október nk.
The city of Reykjavík is currently accepting grant applications for the 2018 fiscal year.
The goal of the grants is to strengthen and create cooperation with NGO´s, businesses and
individuals in constructive activities and services in accordance with the city‘s policies and priorities.
Grants will be awarded for projects in the following fields:
• social and welfare affairs
• education and leisure
• sports and youth
• human rights
• culture
Be advised that applications are reviewed with regard to the city´s human rights policy and gendered budgeting.
To apply go to: www.reykjavik.is/styrkir
Also available on the website is information on grant rules and regulations and information about the city‘s priorities
in the various areas of interest.
The application window will be open from 8.00 september 1st until 12.00 pm on October 2nd.
Frekari upplýsingar: styrkir@reykjavik.is
ore information: styrkir@reykjavik.is
ięcej informacji: styrkir@reykjavik.is
Akureyrarvaka stend-ur sem hæst nú um helgina og á meðal skemmtilegra við-burða má nefna óperusýningu í Sam-
komuhúsinu. Það er ekki á hverjum
degi sem ráðist er í óperusýningar
utan höfuðborgarsvæðisins og því
er hér á ferðinni frábært tækifæri
fyrir alla til þess að kynnast óperu-
forminu nánar enda er meira að
segja frítt á sýninguna sem verður
í dag kl. 15 svo vonandi fjölmenna
bæði heimamenn jafnt sem ferða-
langar á meðan húsrúm leyfir.
Óperan sem um ræðir er gamanó-
peran Piparjúnkan og þjófurinn,
gamanópera í einum þætti eftir
tónskáldið Gian Carlo Menotti.
Ópera á Akureyri
Ein af söngvurunum er Elfa Dröfn
Stefánsdóttir og hún segir að upp-
setningu óperunnar megi einfald-
lega rekja til vilja fólks til þess að
vinna saman. „Þetta kom nú bara
þannig til að við Jenný Lára leik-
stjóri höfum verið vinkonur lengi
og erum nú báðar búsettar hér eftir
að hafa farið í okkar mastersnám.
Hún í leiklist og leikstjórn en ég í
óperusöng og okkur langaði ein-
faldlega að búa okkur til vettvang
og gera eitthvað skemmtilegt. Með
því að setja upp óperu þá náum við
að sameina þau listform sem við
höfum sérhæft okkur í og okkar
áhugasvið þar sem ég er með söng-
hlutverk en Jenný Lára leikstýrir.“
Aðspurð hvernig hafi gengið að
ná saman í hóp til þess að koma á
legg óperusýningu á Akureyri segir
Elfa Dröfn að þau hafi hóað saman
í hóp þar sem allir hafi tengingu
norður: „Fólk sem annaðhvort býr
hér eða á ættir hingað að rekja og
það gekk bara alveg ágætlega. Það
eru fjögur hlutverk í óperunni en ég
syng piparjúnkuna Miss Todd, Edda
Björk Jónsdóttir syngur nágranna-
konu mína, slúðurberann Miss
Pink erton, Unnur Helga Möller
syngur Laetitiu sem er þjónustu-
stúlkan mín og svo er það Ívar
Helgason sem syngur Bob sem er
flækingur eða þjófur, við vitum það
ekki alveg, en það kemur vonandi
allt saman í ljós. Matthildur Anna
Gísladóttir sér svo um tónlistar-
stjórn og lætur sig ekki muna um
það að töfra heila hljómsveit fram
í píanóinu sínu.“
Aðgengileg skemmtun
Elfa Dröfn segir að Menotti hafi
upphaflega samið Piparjúnkuna
og þjófinn fyrir útvarp en þrátt
fyrir það sé hún líka sviðsett reglu-
lega nokkuð víða. „Hún gerist í
ónefndum smábæ á óræðum tíma
og þetta er ákveðin innsýn í líf þess-
ara kvenna í þessum bæ þar sem
fátt gerist annað en að nágranna-
konan heimsækir Miss Todd og
svo er slúðrað og talað um veðrið.
Dag einn er svo barið að dyrum og
fyrir utan stendur ákaflega myndar-
legur karlmaður og það er það mest
spennandi sem hefur gerst í lífi Miss
Todd hvernig sem á það er litið. Í
framhaldinu upphefjast svo auð-
vitað ýmis ævintýri að hætti óperu-
formsins þannig að fólk má alveg
búa sig undir að það verði heilmikið
fjör í gamla Samkomuhúsinu.“
Það er óneitanlega þannig að
margir veigra sér eilítið við að taka
fyrstu skref inn í heim óperunnar
sem áhorfendur, enda myndin sem
er dregin upp af óperum víða sú að
þetta sé þungt og krefjandi form.
Elfa Dröfn segist kannast við þetta
viðhorf en að Piparjúnkan og þjóf-
urinn sé ákaflega aðgengilegt verk.
„Í fyrsta lagi er þetta stutt ópera,
ekki nema um klukkustund í sýn-
ingu. Í öðru lagi er hún líka fyndin
og skemmtileg og í raun ekki krefj-
andi í hlustun. Óperan er á ensku og
að auki þá erum við með íslenska
texta sem verður varpað upp. Ég
er því þeirrar skoðunar að þetta sé
mjög aðgengileg ópera, melódísk
og heillandi enda eru þarna mjög
fallegar aríur. Þannig að fólk þarf
ekkert að óttast því það er mikið
leikhús í þessu.“
Elfa Dröfn segir að þau séu farin
að hlakka til frumsýningarinnar
sem verður í Samkomuhúsinu í dag
klukkan þrjú og það sé sérstaklega
ánægjulegt að vera í þessu gamla og
fallega húsi. „Það er líka ekki leiðin-
legt að geta sagt að það sé frítt inn
í tilefni af Akureyrarvöku. Vonandi
verður svo framhald á þessu hjá
okkur en við stefnum á það að fara
suður með sýninguna þegar fram
líða stundir.“
Fólk þarf ekkert
að óttast
Óperan Piparjúnkan og þjófurinn verður
frumsýnd í gamla Samkomuhúsinu í dag
og frítt inn í tilefni af Akureyrarvöku.
Söngkonurnar Elfa Dröfn Stefánsdóttir og Unnur Helga Möller í hlutverkum
sínum í Piparjúnkan og þjófurinn.
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
Í fyrStA lAgi er
þettA Stutt ÓPerA,
ekki nemA um klukkuStund Í
Sýningu. Í öðru lAgi er hún
lÍkA fyndin og Skemmtileg
og Í rAun ekki krefjAndi Í
hluStun.
Um helgina gefst alveg einstakt tækifæri til þess að kynn-ast norrænni samtímatón-
list á skemmtilegan hátt í Norræna
húsinu. Ensemble Sirius er hópur
fimm tónlistarkvenna frá Árósum
sem spila á saxófón, kontrabassa,
píanó, trompet og slagverk. Samstarf
kvennanna er samnorrænt tónlistar-
verkefni sem þær kalla Ferðalag um
norræna náttúru og gengur út á að
kynna samtímatónlist frá sex nor-
rænum löndum og stuðla að sterkri
norræni tónlistarhefð.
Gunn Hernes verkefnisstjóri segir
að hópurinn ætli að vera með tvo
ókeypis viðburði um helgina þar
sem áhorfendum verður boðið í
ímyndað ferðalag víða um norður-
slóðir. „Á laugardaginn (í dag) kl.
13 verður vinnustofa þar sem þær
munu leitast við að opna huga fólks
fyrir samtímatónlist sem er í huga
margra tormelt og krefjandi. Fólk
þarf ekkert að gera þarna annað en
að koma og hlusta og læra um sam-
tímatónlist því þó þetta sé vinnu-
stofa þá sjá þær alveg um þetta,“
segir Gunn og hlær. „Á sunnudeg-
inum verða þær svo með tónleika
kl. 15 þar sem þær flytja verk eftir
Þuríði Jónsdóttur en hún tekur þátt
í þessu skemmtilega verkefni fyrir
hönd Íslands. Það er frítt inn á báða
þessa skemmtilegu viðburði þannig
að við vonumst eftir því að sjá sem
flesta koma og í senn læra og njóta
samtímatónlistar.“ – mg
Ferðalag um norræna náttúru
fÓlk þArf ekkert Að
gerA þArnA AnnAð
en Að komA og hluStA og
lærA um SAmtÍmAtÓnliSt.
m e n n i n g ∙ F R É T T A B L A ð i ð 53L A U g A R D A g U R 2 6 . á g ú s T 2 0 1 7
2
6
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
1
2
0
s
_
P
1
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
9
3
-E
F
9
8
1
D
9
3
-E
E
5
C
1
D
9
3
-E
D
2
0
1
D
9
3
-E
B
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
2
0
s
_
2
5
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K