Fréttablaðið - 26.08.2017, Blaðsíða 88
Hvernig fer? Hvernig fer?
Eftir langa bið er komið að stóru stundinni þegar Floyd Mayweather og Conor McGregor munu mætast í hnefaleikabar-daga. Bardaginn var stað-
festur í júní og verður hann sýndur í
um 200 löndum. Mayweather, sem
er einn besti boxari sögunnar, mun
fá um 300 milljónir dollara fyrir að
reima á sig hanskana en Írinn magn-
aði og Íslandsvinurinn McGregor
mun fá örlítið minna. Hann ætti þó
að eiga fyrir salti í grautinn.
Í gær voru um tvö þúsund miðar
þó óseldir í T-Mobile höllina. Engu
að síður er engan bilbug að finna á
þeim sem sjá um bardagann. „Þetta
er og verður stærsti bardagi í sögu
bardagaíþrótta. Það munu milljarð-
ar manna um allan heim horfa,“ lét
Dana White hafa eftir sér í vikunni en
hann er aðalmaðurinn í MMA. Upp-
hæðirnar í kringum bardagann eru
ótrúlegar. Trúlega mun bardaginn
raka inn um 600 milljónum dollara
og skila þannig mestum tekjum allra
bardaga sögunnar.
Mayweather er fertugur og einn
allra besti boxari allra tíma. Hæfi-
leikar hans innan hringsins eru óum-
deildir og tölfræðin hans er glæsileg.
Alls 49 sigrar og ekkert tap á 21 árs
ferli.
Ferill hans utan hringsins er þó
það sem gerir hann að einum óvin-
sælasta sigurvegara allra tíma. Hann
hefur oft verið ásakaður um heimil-
isofbeldi og þrisvar sinnum dæmdur
til refsingar.
Á fimm mánaða tímabili, milli
áranna 2001 og 2002, játaði hann
tvær ákærur á hendur sér en þremur
var vísað frá. Samkvæmt Las Vegas
Review-Journal mun hann hafa
lamið Melissu Brim, móður elstu
dóttur hans. Negldi hann bílhurð
í kjálkann á henni, ýtti henni inn í
bíl þar sem hann lét höggin dynja
á henni. Hann var dæmdur til að
sinna samfélagsþjónustu í 48 klukku-
stundir og í tveggja sólarhringa stofu-
fangelsi.
Í nóvember 2003 var kappinn
handtekinn eftir að hafa lamið tvær
konur á næturklúbbi í Las Vegas.
Hern eatha McGill bar vitni að
Mayweather hefði
kýlt hana og
lamið vinkonu
hennar, Köru
Blackburn,
í b a k i ð
þegar hún
r e y n d i
að koma
henni til
a ð s t o ð a r .
Dómarinn í
málinu, Debo-
rah Lippis, var
h n e yk s l u ð á
f r a m k o m u
Mayweath-
e r s í
r é t t a r -
salnum. „Þú ert kannski frábær og
frægur boxari en það gerir þig ekki
að góðri manneskju,“ sagði hún og
bætti við að framburður Mayweat-
hers væri einn sá ótrúverðugasti
sem hún hefði nokkru sinni heyrt
í réttarsalnum. Hann var dæmdur
til að sinna 100 klukkustunda sam-
félagsþjónustu en samdi sig út úr því
árið 2008 með einhverjum hætti.
Árið 2011 játaði hann að hafa
lamið Josie Harris, barnsmóður sína.
Harris hafði komið heim um 02.30
og fóru þau að rífast. Hún hringdi á
lögregluna og yfirgaf Mayweather
heimilið en kom til baka um þremur
tímum síðar ásamt félaga sínum.
Harris sagði við yfirheyrslur að hún
hefði vaknað við að Mayweather var
að skoða símann hennar. Hún hefði
játað að vera að hitta annan mann og
við það hefðu barsmíðarnar byrjað.
Hann lamdi hana aftan í hnakkann,
dró hana um húsið á hárinu og hótað
henni lífláti. Tíu ára sonur þeirra
hljóp út úr húsinu eftir hjálp en hann
þurfti að komast yfir girðingu í bak-
garðinum til þess að láta nágranna
þeirra vita af ofbeldinu. Mayweather
hafði tekið alla farsíma af heimilis-
fólkinu og því gátu þau ekki hringt
eftir hjálp.
Hann þurfti að fara í fangelsi,
borga 2.500 dollara sekt, sinna 100
klukkutíma samfélagsþjónustu og
sækja námskeið um heimilisofbeldi
í heilt ár.
Þrátt fyrir að vera aumingi utan
hringsins er óumdeilt að May-
weather er frábær boxari. Og merki-
legt nokk hefur McGregor, sem hefur
nú aldeilis látið ýmislegt flakka í
aðdraganda bardagans, sleppt því að
minnast á þessa hlið á andstæðingi
sínum.
Gunnar Nelson, fremsti bardaga-
kappi Íslands og æfingafélagi McGre-
gors til margra ára, benti á, í samtali
við Fréttablaðið í vikunni að hann
teldi að að McGregor eigi um 50
bardaga sem áhugamaður í hnefa-
leikum og hann geti vel séð fyrir sér
að Mayweather muni liggja rotaður
í gólfinu. „Ég ætla að segja að hann
klári Mayweather í sjöttu lotu með
rothöggi.“
Ætlar að McRota Mayweather
Íslandsvinurinn Conor McGregor ætlar að reyna að lumbra á Floyd Mayweather í bardaga. Ómögulegt er að spá
um niðurstöðu en flestir vonast eftir sigri McGregors enda saga Mayweathers allt annað en falleg utan hringsins.
Tómas Þór Þórðarsson
Floyd vinnur á stigum.
Conor fer hart af
stað en Floyd verst
því og vinnur svo
öruggan sigur í, jú,
íþróttinni sem hann
hefur æft frá fimm
ára aldri á móti gaurnum
sem æfir hana ekki að staðaldri.
Sóli Hólm
Fyrir hnefa
leika sem íþrótt
vona ég að
Mayweather
vinni. Annað væri
svo rosalega lélegt.
Conor er að koma úr
íþrótt þar sem má nota allt, nánast,
meðan Mayweather hefur getað ein
beitt sér að hnefunum allan sinn feril.
Ef bardagaíþróttir væru tónlist, þá væri
Mayweather óperusöngvari en Conor
trúbador sem henti stundum í Nessun
Dorma í góðu gríni en væri samt
bestur ef hann fengi að strömma
góðan Eagle Eye Cherry. Augljóslega
gengi Mayweather betur á La Scala
en væri full stífur á Hressó.
Áslaug Arna
Sigurbjörnsdóttir
Ég held auðvitað
með McGregor
og ég trúi því að
hann roti May
weather í fyrstu
fjórum lotunum. Ef
hann nær því ekki, þá vinnur
Mayweather.
Freyr Alexandersson
Conor rotar
Mayweather
í þriðju lotu.
Kannski
meiri ósk
hyggja heldur
en annað.
Conor er okkar
maður, hef trú á
okkar manni. Skemmtileg
týpa.
Henry Þór Reynisson
Conor nær
einni góðri
vinstri sleggju
og rotar hann
ì 2. lotu. En ef
þetta verða fleiri
en fjórar lotur þá
tekur Mayweather
þetta á stigum.
Kjartan Guðmundsson
Annaðhvort rotar
Conor Floyd og
drepur box
íþróttina í
leiðinni, eða
Mayweather
sigrar auðveld
lega og rifjar upp
fyrir alheiminum að
boxarar eru bestir í boxi.
Hörður
Snævar Jónsson
Floyd klárar hann
án vandræða,
það er tímabært
að slökkt verði í
kjaftfora Íranum.
Garðar Gunnlaugsson
Bardaginn endar með
látum! Conor fær
á sig þungt högg,
gleymir að hann
er í boxbardaga,
hringsparkar Floyd í
hausinn og stekkur
á hann.
TÍU ÁRA SONUR ÞEIRRA
HLJÓP ÚT ÚR HÚSINU
EFTIR HJÁLP EN HANN
ÞURFTI AÐ KOMAST YFIR
GIRÐINGU Í BAKGARÐ-
INUM TIL ÞESS AÐ LÁTA
NÁGRANNA ÞEIRRA VITA
AF OFBELDINU.
LEIKVANGURINN
Benedikt Bóas
benediktboas@365.is
2 6 . Á G Ú S T 2 0 1 7 L A U G A R D A G U R36 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
2
6
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
9
4
-3
E
9
8
1
D
9
4
-3
D
5
C
1
D
9
4
-3
C
2
0
1
D
9
4
-3
A
E
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
1
2
0
s
_
2
5
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K