Fréttablaðið - 26.08.2017, Blaðsíða 69
Garðabær efnir hér með til framkvæmdasamkeppni um
tillögu að rammaskipulagi Vífilsstaðalands. Svæðið sem
samkeppnin nær til er um 350 ha að flatarmáli og liggur austan
Reykjanesbrautar. Innan svæðisins er Hnoðraholt, Vetrarmýri,
Smalaholt, Rjúpnahæð, Vífilsstaðir og Vífilsstaðahraun. Svæðið er
skilgreint sem þróunarsvæði í tillögu að Aðalskipulagi Garðabæjar
2016-2030 sem nú er á lokastigi skipulagsferlis. Innan þess er gert ráð fyrir
íbúðarbyggð, íþróttasvæði, golfvelli, útivistarsvæðum, verslun- og þjónustu
og kirkjugarði.
Markmiðið með samkeppninni er að laða fram hugmyndir að heildarsýn fyrir
samkeppnissvæðið og móta framtíðarstefnu um uppbyggingu þess í
rammaskipulagi sem síðar er ætlað að vera leiðbeinandi fyrir gerð
deiliskipulagsáætlana innan svæðisins.
Samkeppnin er framkvæmdasamkeppni í samvinnu við Arkitektafélag
Íslands og skilafrestur er til 20. nóvember 2017. Rétt til þátttöku hafa félagar
í Arkitektafélagi Íslands, Skipulagsfræðingafélagi Íslands, Félagi íslenskra
landslagsarkitekta og aðrir þeir sem rétt hafa til skipulagsgerðar skv.gr.2.5. í
skipulagsreglugerð 90/2013. Einnig nemendur í arkitektúr,
skipulagsfræðum og landslagsarkitektúr og skulu þeir tryggja sér löggiltan
samstarfsaðila. Aðgengi að verkefnisvef þar sem öll ítargögn verður að finna
verður afhent af trúnaðarmanni gegn skráningu til þátttöku frá 29. ágúst.
Keppnislýsing er aðgengileg á vef Garðabæjar www.gardabaer.is.
FRAMKVÆMDASAMKEPPNI
UM RAMMASKIPULAG
VÍFILSSTAÐALANDS
Umhverfissvið. Skipulags- og byggingardeild
Auglýsing um skipulag í Kópavogi.
Kársnes. Hafnarbraut 2, 4, 6, 8 og 10 og Kársnesbraut 108, 110,
112 og 114. Deiliskipulag. Mál nr. 1705661
Bæjarstjórn Kópavogs hefur samþykkt í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, að auglýsa tillögu teiknistofunnar
Traðar að deiliskipulagi við Hafnarbraut 2-10 og Kársnesbraut 108-114.
Skipulagssvæðið sem er um 1.7 ha að stærð, nær til lóðanna við Hafnarbraut 2, 4, 6, 8 og 10 og Kársnesbrautar 108, 110, 112 og
114 og afmarkast af lóðarmörkum Hafnarbrautar 12 og Kársnesbrautar 106 til norðurs, Kársnesbrautar til austurs, lóðarmörkum
Þinghólsbrautar 79, 82 og Kársnesbrautar 115 til suðurs og Hafnarbrautar 9-13 til vesturs. Núverandi húsagötur; Hafnarbraut
og Borgarholtsbraut liggja innan afmörkunar skipulagssvæðisins og koma til með að breytast. Svæðið er hluti þróunarsvæðis
Kársness.
Í tillögunni felst að núverandi byggingar að Hafnarbraut 4, 6, 8 og 10 verða rifin og tvö ný fjögurra hæða fjölbýlishús með
kjallara og niðurgrafinni bílageymslu byggð í þeirra stað. Á lóðinni Hafnarbraut 4-8 verða að hámarki 38 íbúðir og áætlað
nýtingarhlutfall 1.97 (2.46 með kjallara og niðurgrafinni bílageymslu). Á lóð Hafnarbrautar 10 verða að hámarki 40 íbúðir og
áætlað nýtingarhlutfall 1.83 (2.28 með kjallara og niðurgrafinni bílageymslu). Á lóðunum Kársnesbraut 108-114 er í tillögunni
gert ráð fyrir að byggja eina íbúðarhæð ofan á núverandi atvinnuhúsnæði með samtals 20 íbúðum. Gert er ráð fyrir að íbúðum
fjölgi að Hafnarbraut 2 í 4 íbúðir. Reiknað er með 1,3 bílastæðum á hverja íbúð á deiliskipulagssvæðinu. Aðkoma og lóðarmörk
breytast. Svæðið er í gildandi skipulagslýsingu skráð sem svæði 12 en þar er gert ráð fyrir að breytingu lokinni um 20.400
m2 í atvinnu- og íbúðarhúsnæði með niðurgrafinni bílageymslu, þar af um 12.300 nýir fermetar í íbúðarhúsnæði. Áætlað er
að reitanýting fyrir svæði 12 breytist og hækki í um það bil 1.2. Með deiliskipulaginu fylgir minnisblað frá verkfræðistofunni
Mannviti dags. 13. júní 2017 sem fjallar um umhverfismál og möguleg áhrif uppbyggingar á svæðinu á nærliggjandi byggð og
greinargerðin Kársnes - Þróunarsvæði, umhverfisskýrsla, dags. 12. maí 2017 frá verkfræðistofunni Mannviti auk húsakönnunar
dags. 29. maí 2017. Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:1000 ásamt greinargerð, skýringarmyndum, skipulagsskilmálum og
skýringarhefti B dags. 29. maí 2017. Nánar vísast til kynningargagna.
Tillagan verður til sýnis á Skipulags- og byggingardeild Kópavogs, Fannborg 6, 2. hæð frá kl. 8:30 til 16:00 mánudaga til
fimmtudaga og á föstudögum frá 8:30 til 15:00, frá og með 29. ágúst 2017. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu bæjarins, www.
kopavogur.is. Athugasemdir eða ábendingar skulu hafa borist skriflega skipulags- og byggingardeild Umhverfissviðs, Fannborg
6, 200 Kópavogi eigi síðar en kl. 15:00 mánudaginn 16. október 2017. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests,
teljast samþykkir tillögunni.
Skipulagsstjóri Kópavogs.Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum
og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Deildarstjóri óskast til starfa í leikskólanum Sæborg,
Star haga 11, 107 Reykjavík. Sæborg er menningarleikskóli
þar sem unnið er í anda hugmyndafræði Reggio Emilia og
áhersla lögð á skapandi starf með börnum og lýðræði.
Leikskólinn hefur fengið hvatningarverðlaun skóla- og
frístundaráðs og unnið er að spennandi þróunarverkefnum.
Sjá nánar á heimasíðu leikskólans, www.saeborg.is
Helstu verkefni og ábyrgð
• Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna
samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra.
• Að bera ábyrgð á uppeldis- og menntunarstarfinu sem
fram fer á deildinni.
• Stjórnun, skipulagning og mat á starfi deildarinnar.
• Að bera ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá.
• Að bera ábyrgð á foreldrasamvinnu.
Hæfniskröfur
• Leikskólakennaramenntun
• Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með börnum
• Þekking á skráningarvinnu
• Áhugi og þekking á skapandi starfi með börnum æskileg
• Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
• Frumkvæði í starfi
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
Umsóknarfrestur er til og með 10. september nk.
Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst.
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitar-
félaga og KÍ vegna Félags leikskólakennara. Umsækjendur
eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkur-
borgar, www.reykjavik.is/storf
Nánari upplýsingar um starfið veitir:
Soffía Þorsteinsdóttir í síma 693-9851 og tölvupósti
soffia.thorsteinsdottir@reykjavik.is
Deildarstjóri á yngstu deild
í leikskólanum Sæborg
SB
Glugga og hurðasmiðja SB ehf.
Glugga og hurðasmiðja SB óskar eftir að ráða starfsmann í
frágang á gluggum og hurðum á verkstæði fyrirtækisins.
Kjörið væri ef um eldri og reyndari smið væri að ræða.
Eins óskum við eftir að ráða starfsmann í vélasal, við vinnu
á tölvustýrðum trésmíðavélum. Upplýsingar í síma: 565 4151
og á netfangi: hurdir@simnet.is eða á staðnum.
Starfsmenn óskast
Fyrirtækið er stofnað 1974 og er sérhæft í glugga-og hurðasmíði
Hvaleyrarbraut 39, 220 Hafnarfirði
Sími: 565-4151 • hurdir@simnet.is
Ísleifur heppni, Mathöll Hlemmur | www.isleifurheppni.is
Við opnuðum við frábærar viðtökur í
Hlemmur - Mathöll og viðtökurnar fóru
fram úr okkar björtustu vonum. Við
þurfum því starfsfólk strax í fullt starf
og í hlutastarf. Vinsamlegast sendið
umsóknir á arkiteo@arkiteo.is eða hafið
samband í síma 696 3699.
HJÁLP !!!
STARFSFÓLK
ATVINNUAUGLÝSINGAR 27 L AU G A R DAG U R 2 6 . ÁG Ú S T 2 0 1 7
2
6
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
5
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
9
4
-7
4
E
8
1
D
9
4
-7
3
A
C
1
D
9
4
-7
2
7
0
1
D
9
4
-7
1
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
1
2
0
s
_
2
5
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K