Fréttablaðið - 26.08.2017, Side 69

Fréttablaðið - 26.08.2017, Side 69
Garðabær efnir hér með til framkvæmdasamkeppni um tillögu að rammaskipulagi Vífilsstaðalands. Svæðið sem samkeppnin nær til er um 350 ha að flatarmáli og liggur austan Reykjanesbrautar. Innan svæðisins er Hnoðraholt, Vetrarmýri, Smalaholt, Rjúpnahæð, Vífilsstaðir og Vífilsstaðahraun. Svæðið er skilgreint sem þróunarsvæði í tillögu að Aðalskipulagi Garðabæjar 2016-2030 sem nú er á lokastigi skipulagsferlis. Innan þess er gert ráð fyrir íbúðarbyggð, íþróttasvæði, golfvelli, útivistarsvæðum, verslun- og þjónustu og kirkjugarði. Markmiðið með samkeppninni er að laða fram hugmyndir að heildarsýn fyrir samkeppnissvæðið og móta framtíðarstefnu um uppbyggingu þess í rammaskipulagi sem síðar er ætlað að vera leiðbeinandi fyrir gerð deiliskipulagsáætlana innan svæðisins. Samkeppnin er framkvæmdasamkeppni í samvinnu við Arkitektafélag Íslands og skilafrestur er til 20. nóvember 2017. Rétt til þátttöku hafa félagar í Arkitektafélagi Íslands, Skipulagsfræðingafélagi Íslands, Félagi íslenskra landslagsarkitekta og aðrir þeir sem rétt hafa til skipulagsgerðar skv.gr.2.5. í skipulagsreglugerð 90/2013. Einnig nemendur í arkitektúr, skipulagsfræðum og landslagsarkitektúr og skulu þeir tryggja sér löggiltan samstarfsaðila. Aðgengi að verkefnisvef þar sem öll ítargögn verður að finna verður afhent af trúnaðarmanni gegn skráningu til þátttöku frá 29. ágúst. Keppnislýsing er aðgengileg á vef Garðabæjar www.gardabaer.is. FRAMKVÆMDASAMKEPPNI UM RAMMASKIPULAG VÍFILSSTAÐALANDS Umhverfissvið. Skipulags- og byggingardeild Auglýsing um skipulag í Kópavogi. Kársnes. Hafnarbraut 2, 4, 6, 8 og 10 og Kársnesbraut 108, 110, 112 og 114. Deiliskipulag. Mál nr. 1705661 Bæjarstjórn Kópavogs hefur samþykkt í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, að auglýsa tillögu teiknistofunnar Traðar að deiliskipulagi við Hafnarbraut 2-10 og Kársnesbraut 108-114. Skipulagssvæðið sem er um 1.7 ha að stærð, nær til lóðanna við Hafnarbraut 2, 4, 6, 8 og 10 og Kársnesbrautar 108, 110, 112 og 114 og afmarkast af lóðarmörkum Hafnarbrautar 12 og Kársnesbrautar 106 til norðurs, Kársnesbrautar til austurs, lóðarmörkum Þinghólsbrautar 79, 82 og Kársnesbrautar 115 til suðurs og Hafnarbrautar 9-13 til vesturs. Núverandi húsagötur; Hafnarbraut og Borgarholtsbraut liggja innan afmörkunar skipulagssvæðisins og koma til með að breytast. Svæðið er hluti þróunarsvæðis Kársness. Í tillögunni felst að núverandi byggingar að Hafnarbraut 4, 6, 8 og 10 verða rifin og tvö ný fjögurra hæða fjölbýlishús með kjallara og niðurgrafinni bílageymslu byggð í þeirra stað. Á lóðinni Hafnarbraut 4-8 verða að hámarki 38 íbúðir og áætlað nýtingarhlutfall 1.97 (2.46 með kjallara og niðurgrafinni bílageymslu). Á lóð Hafnarbrautar 10 verða að hámarki 40 íbúðir og áætlað nýtingarhlutfall 1.83 (2.28 með kjallara og niðurgrafinni bílageymslu). Á lóðunum Kársnesbraut 108-114 er í tillögunni gert ráð fyrir að byggja eina íbúðarhæð ofan á núverandi atvinnuhúsnæði með samtals 20 íbúðum. Gert er ráð fyrir að íbúðum fjölgi að Hafnarbraut 2 í 4 íbúðir. Reiknað er með 1,3 bílastæðum á hverja íbúð á deiliskipulagssvæðinu. Aðkoma og lóðarmörk breytast. Svæðið er í gildandi skipulagslýsingu skráð sem svæði 12 en þar er gert ráð fyrir að breytingu lokinni um 20.400 m2 í atvinnu- og íbúðarhúsnæði með niðurgrafinni bílageymslu, þar af um 12.300 nýir fermetar í íbúðarhúsnæði. Áætlað er að reitanýting fyrir svæði 12 breytist og hækki í um það bil 1.2. Með deiliskipulaginu fylgir minnisblað frá verkfræðistofunni Mannviti dags. 13. júní 2017 sem fjallar um umhverfismál og möguleg áhrif uppbyggingar á svæðinu á nærliggjandi byggð og greinargerðin Kársnes - Þróunarsvæði, umhverfisskýrsla, dags. 12. maí 2017 frá verkfræðistofunni Mannviti auk húsakönnunar dags. 29. maí 2017. Tillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:1000 ásamt greinargerð, skýringarmyndum, skipulagsskilmálum og skýringarhefti B dags. 29. maí 2017. Nánar vísast til kynningargagna. Tillagan verður til sýnis á Skipulags- og byggingardeild Kópavogs, Fannborg 6, 2. hæð frá kl. 8:30 til 16:00 mánudaga til fimmtudaga og á föstudögum frá 8:30 til 15:00, frá og með 29. ágúst 2017. Einnig má sjá tillöguna á heimasíðu bæjarins, www. kopavogur.is. Athugasemdir eða ábendingar skulu hafa borist skriflega skipulags- og byggingardeild Umhverfissviðs, Fannborg 6, 200 Kópavogi eigi síðar en kl. 15:00 mánudaginn 16. október 2017. Þeir sem ekki gera athugasemdir innan tilskilins frests, teljast samþykkir tillögunni. Skipulagsstjóri Kópavogs.Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er. Deildarstjóri óskast til starfa í leikskólanum Sæborg, Star haga 11, 107 Reykjavík. Sæborg er menningarleikskóli þar sem unnið er í anda hugmyndafræði Reggio Emilia og áhersla lögð á skapandi starf með börnum og lýðræði. Leikskólinn hefur fengið hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs og unnið er að spennandi þróunarverkefnum. Sjá nánar á heimasíðu leikskólans, www.saeborg.is Helstu verkefni og ábyrgð • Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra. • Að bera ábyrgð á uppeldis- og menntunarstarfinu sem fram fer á deildinni. • Stjórnun, skipulagning og mat á starfi deildarinnar. • Að bera ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá. • Að bera ábyrgð á foreldrasamvinnu. Hæfniskröfur • Leikskólakennaramenntun • Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með börnum • Þekking á skráningarvinnu • Áhugi og þekking á skapandi starfi með börnum æskileg • Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum • Frumkvæði í starfi • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð Umsóknarfrestur er til og með 10. september nk. Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf sem fyrst. Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitar- félaga og KÍ vegna Félags leikskólakennara. Umsækjendur eru beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Reykjavíkur- borgar, www.reykjavik.is/storf Nánari upplýsingar um starfið veitir: Soffía Þorsteinsdóttir í síma 693-9851 og tölvupósti soffia.thorsteinsdottir@reykjavik.is Deildarstjóri á yngstu deild í leikskólanum Sæborg SB Glugga og hurðasmiðja SB ehf. Glugga og hurðasmiðja SB óskar eftir að ráða starfsmann í frágang á gluggum og hurðum á verkstæði fyrirtækisins. Kjörið væri ef um eldri og reyndari smið væri að ræða. Eins óskum við eftir að ráða starfsmann í vélasal, við vinnu á tölvustýrðum trésmíðavélum. Upplýsingar í síma: 565 4151 og á netfangi: hurdir@simnet.is eða á staðnum. Starfsmenn óskast Fyrirtækið er stofnað 1974 og er sérhæft í glugga-og hurðasmíði Hvaleyrarbraut 39, 220 Hafnarfirði Sími: 565-4151 • hurdir@simnet.is Ísleifur heppni, Mathöll Hlemmur | www.isleifurheppni.is Við opnuðum við frábærar viðtökur í Hlemmur - Mathöll og viðtökurnar fóru fram úr okkar björtustu vonum. Við þurfum því starfsfólk strax í fullt starf og í hlutastarf. Vinsamlegast sendið umsóknir á arkiteo@arkiteo.is eða hafið samband í síma 696 3699. HJÁLP !!! STARFSFÓLK ATVINNUAUGLÝSINGAR 27 L AU G A R DAG U R 2 6 . ÁG Ú S T 2 0 1 7 2 6 -0 8 -2 0 1 7 0 4 :2 2 F B 1 2 0 s _ P 0 6 9 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 5 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 D 9 4 -7 4 E 8 1 D 9 4 -7 3 A C 1 D 9 4 -7 2 7 0 1 D 9 4 -7 1 3 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 1 2 0 s _ 2 5 _ 8 _ 2 0 1 7 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.