Fréttablaðið - 26.08.2017, Blaðsíða 114
Það hefur varla farið fram hjá neinum að verslun H&M verður opnuð í Smáralindinni í dag, laugardag, eftir langa bið og mikla eftirvænt-
ingu. Af því tilefni er Ann-Sofie
Johansson, listrænn stjórnandi hjá
H&M, stödd hér á landi. Hún hefur
starfað fyrir fyrirtækið í þrjá ára-
tugi og hefur orðið vitni að miklum
breytingum innan fyrirtækisins og
tískubransans á þeim tíma.
„Ég hef unnið hjá fyrirtækinu í
30 ár á þessu ári þannig að það er
aldeilis langur tími. Ég byrjaði sem
sölukona í einni H&M-búðinni í
Stokkhólmi en hafði það að mark-
miði að verða hönnuður hjá H&M,“
segir Ann-Sofie sem hefur sinnt
ýmsum störfum hjá H&M síðan hún
byrjaði hjá fyrirtækinu. Í dag er hún
listrænn stjórnandi og talsmaður,
sem þýðir að hún hefur yfirsýn
yfir alla hönnun H&M og stýrir því
samstarfi sem H&M fer í með tísku-
húsum svo dæmi séu tekin.
Ann-Sofie býr yfir mikilli reynslu
enda hefur hún unnið sig smátt
og smátt upp innan fyrirtækisins.
„Hugmyndin var alltaf að verða
hönnuður en mér fannst góð hug-
mynd að byrja sem sölukona í H&M
til að fá innsýn í fyrirtækið. Sam-
hliða vinnunni tók ég kvöldnám-
skeið í hönnun, sníðagerð og fata-
saumi. Svo setti ég saman ferilskrá
sem ég sýndi þáverandi yfirhönn-
uði H&M, þannig fékk ég starf sem
aðstoðarhönnuður hjá H&M,“ rifjar
Ann Sofie upp.
Aðspurð hvernig tilfinning fylgi
því að hafa náð markmiði sínu og
rúmlega það segir hún: „Ég elska
það. Ég elska enn þá vinnuna mína
vegna þess að ég elska tísku. Ég
elskaði vinnuna mína í upphafi og
ég elska hana enn þann dag í dag,“
útskýrir Ann-Sofie sem segir góðan
anda ríkja innan fyrirtækisins.
Hún segir stemninguna minna á
þá sem ríkir gjarnan innan minni
fyrirtækja. „Hér vinnum við mikið
í teymum og það er mikið lagt upp
úr samvinnu. Þó að við séum stórt
fyrirtæki þá líður manni smá eins
og þetta sé lítill vinnustaður,“ segir
Ann-Sofie.
„En ég held að ást mín á tísku og
sú staðreynd að ég fæ að vinna með
svo mörgum áhugaverðum einstakl-
ingum sem búa yfir mikilli þekk-
ingu geri það að verkum að það er
alltaf gaman í vinnunni. Og maður
hættir aldrei að læra því maður veit
raunverulega aldrei hvað er fram
undan. Auðvitað hefur maður ein-
hverja „gut feeling“ sem byggir á
þekkingu og reynslu en maður veit
aldrei fyrir víst hvað verður næst
í tísku og það er svo spennandi.
Það heldur manni ungum og for-
vitnum.“
Fólk vill gjarnan vita hvaðan
fötin koma
Ann-Sofie hefur orðið vitni að
miklum breytingum síðan hún
hóf störf hjá H&M á sínum tíma.
„Þegar ég byrjaði voru um það bil
tíu hönnuðir að vinna hjá H&M og
við vorum með verslanir í sex eða
sjö löndum. En það er langt síðan,
núna vinna um 300 hönnuðir hjá
H&M. Margt hefur breyst síðan þá.“
En hvernig sér hún framtíðina
fyrir sér, til dæmis árið 2050? „Þetta
er erfið spurning,“ segir Ann-Sofie
eftir smá umhugsun. „Eins og við
vitum flest gegna netverslanir sífellt
stærra hlutverki og ég held að hlut-
verk þeirra eigi eftir að stækka enn
meira með tímanum. Ég held samt
að búðir verði áfram til staðar, þær
hverfa ekki algjörlega. En þær verða
kannski öðruvísi og þjóna mögu-
lega breyttu hlutverki,“ spáir Ann-
Sofie.
„En það sem ég veit ég fyrir víst er
að H&M verður sjálfbærara í fram-
tíðinni. Við höfum sett okkur skýr
markmið þegar kemur að sjálfbærni
og ef við lítum bara til ársins 2030
sem dæmi þá ættum við aðeins
að nota efni sem eru unnin á sjálf-
bæran hátt. Það er erfitt mark-
mið en við erum staðráðin í að ná
því,“ segir Ann-Sofie. Hún tekur
bómullarflíkur sem dæmi, en H&M
hefur það að markmiði að árið
2020 verði öll bómull sem þau nota
annaðhvort lífræn, endurunnin eða
framleidd undir nýjum og ströngum
skilyrðum.
Spurð út í hvort hún verði vör við
að almenningur sé farinn að hugsa
meira um umhverfisvernd þegar
kemur að tísku svarar Ann-Sofie
játandi. „Klárlega. Fólk vill vita
hvaðan hlutirnir koma og hvernig
þeir verða til. Við verðum að leggja
Ann-Sofie gefur
H&M-verslun-
inni í Smáralind
toppeinkunn
og vonast til að
hún standist
væntingar
Íslendinga.
MYND/OzzO
PHOtOgrAPHY
Úr höfuðstöðvum H&M. MYND/H&M
Listrænn stjórnandi H&M, Ann-Sofie Johans-
son, er stödd á Íslandi vegna komu H&M til
landsins. Hún hefur áhugaverðar hugmyndir
um framtíð tísku og veit fyrir víst að fólk
mun aldrei hætta að spá í tískustrauma.
okkar af mörkum fyrir jörðina og
við hjá H&M viljum vera leiðandi
í umhverfisvernd og sjálfbærni í
framleiðslu. Við viljum veita öðrum
fyrirtækjum innblástur.“
Spurð út í hvort hún finni að
H&M, sem stórt fyrirtæki, verði fyrir
þrýstingi um að vera umhverfis-
vænt segir hún: „Já, og við setjum
sjálf pressu á okkur. Við höfum
mikla ábyrgð og fáum þess vegna
stórt hlutverk til að virkilega breyta
hlutunum. Við getum verið leiðandi
í þessum málum.“
„En það er erfitt að spá fyrir um
framtíðina en það sem ég veit fyrir
víst er að fólk mun áfram vilja klæða
sig upp á og pæla í tísku. Það mun
aldrei breytast,“ bætir hún við um
framtíðarpælingar sínar.
tískubransinn
orðinn skemmtilegri
Það er augljóst að Ann-Sofie elskar
vinnuna sína en þegar hún er spurð
út í hver sé stærsta áskorunin sem
fylgir starfi hennar segir hún: „Að
finna réttu tískuna, finna út hvað
fólk vill kaupa og hverju það vill
klæðast, þetta er stærsta áskorunin
sem við stöndum frammi fyrir á
hverjum degi. Við viljum skapa
flotta tísku, góð gæði og gott verð.
Þetta snýst allt um að hlusta á kúnn-
ann og reyna að finna út hvað hann
vill. Án viðskiptavinanna værum við
ekki hér,“ segir Ann-Sofie.
Hún tekur fram að hönnuður
H&M þurfi ekki aðeins að bregðast
við þörfum viðskiptavinanna heldur
einnig óskum þeirra. Hún tekur sem
dæmi að viðskiptavinurinn á að geta
keypt sér sokkapar í H&M en líka
skrautlegan kjól sem passar inn í
nýjustu tískustrauma. „Við viljum
geta boðið upp á bæði undirstöðu-
flíkur en líka nýjustu tískustraum-
ana.“
Ann-Sofie segir tískubransann
hafa orðið skemmtilegri á undan-
förnum árum. Í dag geti hver sem er
tollað í tískunni. „Iðnaðurinn er allt-
af að breytast og það er svo margt
í tísku í dag. Það er til dæmis erfitt
að segja að eitthvað sé alls ekki í
tísku, nær ómögulegt. Það þykir mér
gera tískubransann skemmtilegan.
Þegar ég byrjaði í þessu þá var eigin-
lega bara eitthvað eitt í tísku hverju
sinni. En í dag er þetta allt öðruvísi
þannig að ég myndi segja að tískan
sé orðin skemmtilegri. Í dag er svo
auðvelt að tjá sig með klæðaburði
enda spáir fólk líka meira í tísku nú
til dags,“ útskýrir Ann-Sofie.
„Loksins erum við komin“
Eins og kunnugt er hafa Íslendingar
beðið með eftirvæntingu eftir komu
H&M til landsins. Spurð út í hvort
hún hafi orðið vör við eftirspurnina
hlær Ann-Sofie og segir: „Já, ég hef
heyrt af þessu. Það var kominn tími
til að við kæmum til Íslands. Ég veit
til þess að það eru til ótal Facebook-
síður þar sem fólk óskar eftir að fá
H&M-búð til síns lands, ég veit ekki
hvort Íslendingar hafa verið með
slíka síðu. Og ég meina, það er auð-
vitað gaman að finna að fólk kann
að meta það sem við gerum. Þetta
snýst bara allt um að finna rétta
staðsetningu á réttum tíma og svo
framvegis. En manni finnst hálf-
partinn eins og við hefðum átt að
vera löngu komin til Íslands,“ segir
hún og hlær.
„Loksins erum við komin og það
verður spennandi að sjá hvernig
okkur verður tekið. Þetta er frábær
búð, ein af þeim bestu sem ég hef
séð reyndar,“ segir hún um verslun-
ina í Smáralind. „Hún er svo björt og
opin og hér er góður andi.“
Þegar blaðamaður kemur á fund
Ann-Sofie, tæpum sólarhring fyrir
opnun, hefur ein manneskja stillt
sér upp fyrir utan búðina til að
mæta á opnunina. „Það er stórkost-
legt, ég vona bara að við stöndumst
væntingar,“ segir Ann-Sofie og skell-
ir upp úr. „Maður veit svo sem aldr-
ei hver viðbrögðin verða og maður
verður alltaf að vera auðmjúkur.“
manni
finnst
hálfpartinn
eins og við
hefðum átt
að vera
löngu komin
til Íslands.
Fólk mun
alltaf vilja
klæða
sig upp á
iðnaðurinn er
alltaf að breytast
og það er svo margt Í tÍsku Í
dag. það er til dæmis erfitt
að segja að eitthvað sé alls
ekki Í tÍsku, nær ómögulegt.
Guðný
Hrönn
gudnyhronn@365.is
2 6 . á g ú s t 2 0 1 7 L A U g A R D A g U R62 L í f i ð ∙ f R É t t A B L A ð i ð
Lífið
2
6
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
D
9
4
-2
A
D
8
1
D
9
4
-2
9
9
C
1
D
9
4
-2
8
6
0
1
D
9
4
-2
7
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
2
0
s
_
2
5
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K