Fréttablaðið - 26.08.2017, Blaðsíða 18
Stuðningsmenn Ever-
ton eiga eftir að elska
Gylfa Þór
Heimir Hallgrímsson fylgdist að
sjálfsögðu vel með fyrsta leik
Gylfa Þórs Sigurðssonar í byrjun-
arliði Everton gegn Hajduk Split
í fyrradag. Gylfi skoraði frábært
mark í upphafi seinni hálfleiks
með skoti rétt fyrir innan miðju.
Mark sem lengi verður talað um
enda var markið í heimsklassa.
Þvílík byrjun.
Heimir er ánægður með að
félagaskipti Gylfa til Everton eru
frágengin og Hafnfirðingurinn er
byrjaður að spila og skora með
nýja liðinu. Það lofar góðu fyrir
framhaldið.
„Hann á eftir fá að fullt af
spiltíma og vera í lykilhlutverki
þarna. Þetta er gott skref fyrir
hann, gott lið og metnaðarfullur
þjálfari [Ronald Koeman]. En við
erum ánægðastir með að þessi
félagaskiptasaga sé búin og
óvissunni sé lokið. Hann byrjaði
vel, með marki og góðri spila-
mennsku,“ sagði Heimir sem
býst við því að stuðningsmenn
Everton taki ástfóstri við Gylfa.
„Ég er 100% viss um að stuðn-
ingsmenn Everton eiga eftir að
elska hann. Þetta er verkamanna-
lið og stuðningsmennirnir vilja
að leikmennirnir séu vinnusamir
og það er Gylfi svo sannarlega. Ég
veit að íbúar Liverpool eiga eftir
að elska hann, allavega þeir bláu.“
Fótbolti Fátt kom á óvart í vali
Heimis Hallgrímssonar á íslenska
landsliðshópnum sem mætir Finn-
landi og Úkraínu í undankeppni
HM 2018 í byrjun næsta mánaðar.
Aðeins tvær breytingar eru á
hópnum frá leiknum gegn Króatíu
í júní. Rúnar Alex Rúnarsson og
Jón Guðni Fjóluson koma inn
fyrir Ögmund Kristinsson og Aron
Sigurðarson. Ögmundur er búinn
að missa sæti sitt í byrjunarliði
Hammar by og fær tíma til að finna
sér nýtt félag áður en félagaskipta-
glugginn lokast um mánaðamótin.
„Það er oft erfitt að velja hópinn
fyrir leiki í september. Leikmenn
eru að byrja að spila með sínum
liðum og margir ekki búnir með
marga leiki. En leikmennirnir sem
byrjuðu fyrir okkur síðast hafa stað-
ið sig vel í þessum upphafsleikjum,
við vorum ánægðir með hópinn
síðast og þess vegna er ekki mikil
breyting hjá okkur,“ sagði Heimir.
Þrátt fyrir að hafa raðað inn
mörkum fyrir Maccabi Tel Aviv í
byrjun tímabilsins er Viðar Örn
Kjartansson ekki í landsliðs-
hópnum, ekki frekar en Matthías
Vilhjálmsson, leikmaður Noregs-
meistaranna Rosenborg. Líkt og
gegn Króatíu eru aðeins þrír fram-
herjar í íslenska hópnum; Alfreð
Finnbogason, Jón Daði Böðvarsson
og Björn Bergmann Sigurðarson. Er
það vísbending um að íslenska liðið
muni spila með einn framherja í
næstu leikjum, líkt og það gerði
gegn Króatíu?
„Ekkert endilega. En við spil-
uðum annað leikkerfi síðast og það
virkaði. Það er gott þegar við erum
ekki auðlesnir. En það eru margir
í hópnum sem geta spilað fleiri en
eina stöðu,“ sagði Heimir sem segir
að lið hafi verið farin að lesa það
íslenska.
„Við erum frekar auðlesnir. Við
erum með frekar einfaldan leikstíl
en hann virkar. Þessi breyting virk-
aði hjá okkur síðast.“
Á blaðamannafundinum í gær
minntist Heimir á meðalaldurinn
í íslenska hópnum og hvernig
þjálfarateymið hefði unnið í því að
lækka hann.
„Við verðum stundum að horfa
til lengri tíma en til næsta leiks. Við
höfum verið nokkuð fastheldnir
á byrjunarliðið undanfarin ár og
það er hættulegt því þá fá aðrir ekki
reynslu á meðan. Þess vegna ákváð-
um við það fyrir tveimur árum að
gefa strákunum sem eru ekki í byrj-
unarliðinu tækifæri til að spila alla
vináttulandsleiki,“ sagði Heimir.
Á fundinum ræddi íslenska þjálf-
arateymið aðallega um finnska liðið
sem Ísland mætir í Tampere laugar-
daginn 2. september. Íslendingar
unnu fyrri leik liðanna á drama-
tískan hátt. Síðan þá hafa Finnar
skipt um þjálfara. Markku Kanerva,
sem lék 59 landsleiki fyrir Finnland
á sínum tíma, tók við af Svíanum
Hans Backe.
„Það er aðeins öðruvísi jafnvægi
í liðinu. Þeir eru framar á vellinum
og aðeins sókndjarfari en þeir voru
gegn okkur. Liðið er mjög hávaxið
og þeir eru kannski að bregðast
við föstu leik atriðunum okkar sem
skiluðu þremur mörkum gegn þeim
síðast,“ sagði Heimir. ingvithor@365.is
Sókndjarfari og ferskari Finnar
Heimir Hallgrímsson gerði aðeins tvær breytingar á íslenska landsliðshópnum sem mætir Finnlandi og
Úkraínu í undankeppni HM. Heimir á von á sókndjarfara og ferskara finnsku liði en síðast.
Japanskur landsliðsmaður spilaði með meisturunum í gærkvöldi
Á flugi Japaninn Ryuto Inage spilaði með Valsmönnum í æfingaleik í kvöld. Þetta er japanskur landsliðsmaður sem var í för með landsliðinu er það
var í æfingabúðum hér á landi á dögunum. Hann spilar í hægra horninu og er skemmtilegur. Það gæti því enn fjölgað í deildinni. Fréttablaðið/ernir
Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari. Fréttablaðið/anton brink
Í dag
laugardagur:
08.55 F1: Æfing Sport 2
11.20 bournem. - Man. City Sport
11.50 F1: tímataka Sport 2
13.25 augsburg - Mönchen. Sport
16.10 alaves - barcelona Sport 4
16.20 Man. Utd - leicester Sport
16.25 Dortmund - Hertha Sport 2
17.00 northern trust Golfstöðin
18.00 Huddersf. - Southa. Sport 2
18.30 Palace - Swansea Sport 3
19.00 opna kanadíska Sport 4
19.40 Watord - brighton Sport 2
22.00 newcastle - W. Ham Sport 2
00.40 Mayweat. - McGregor Sport
Sunnudagur:
11.30 F1: keppni Sport 2
12.20 Wba - Stoke Sport 3
12.20 Chelsea - everton Sport
14.50 liverpool - arsenal Sport
16.00 northern trust Golfstöðin
16.45 Grindavík - kr Sport 2
17.00 Messan Sport
17.00 tottenham - burnley Sport 3
19.00 opna kanadíska Sport 4
19.00 Stjarnan - FH Sport
20.10 r. Madrid - Valencia Sport 2
21.15 Pepsi-mörkin Sport
22.40 Síðustu 20 Sport
inkasso-deildin:
Hk - Haukar 2-0
1-0 Bjarni Gunnarsson (45.), 2-0 Reynir Már
Sveinsson (77.).
Fram - Fylkir 1-5
1-0 Hlynur Magnússon (5.), 1-1 Albert Inga-
son (19.) 1-2 Andri Jónsson (27.), 1-3 Albert
Ingason (29.), 1-4 Ásgeir Arnþórsson (41.),
1-5 Albert Ingason, víti (56.).
STJARNAN Í BANASTuði
Stjörnukonur buðu upp á aðra
markaveisluna í röð í forkeppni
Meistaradeildar Evrópu í Króatíu
í gær þegar Garðabæjarliðið vann
11-0 sigur á ZFK istanov frá Make-
dóníu.
Þetta er stærsti sigur íslensks liðs
í Evrópukeppni frá upphafi en
gamla metið fyrir Evrópukeppnina
í ár var 9-0 sigur Valskvenna á
ísraelska liðinu Maccabi Holon
árið 2008. Stjarnan jafnaði metið í
fyrsta leiknum í riðlinum og bætti
það síðan í kvöld.
Þetta er líka í fyrsta sinn sem
íslenskt lið skorar meira en tíu
mörk í einum og sama Evrópu-
leiknum.
Stjarnan vann 9-0
sigur á færeyska
liðinu frá Klaksvík
í fyrsta leik sínum
í riðlinum og
hefur þar með
skoraði tutt-
ugu mörk í
fyrstu tveimur
leikjum
sínum.
Síðasti leikurinn
á móti heima-
stúlkum í Osijek
verður hreinn úrslita-
leikur um sæti í 32
liða úrslitum Meistara-
deildarinnar.
DEMBELE Á LEið TiL BARcA
Barcelona gengur betur að kaupa
Ousmane Dembele frá Borussia
Dortmund en félaginu hefur
gengið að kaupa Philippe cout-
inho frá Liverpool.
Liverpool vill ekki selja Philippe
coutinho en Borussia Dortmund
viðist vera tilbúið að láta Ousmane
Dembele frá sér fyrir 150 milljónir
evra. BBc segir frá.
Dembele er því á góðri leið með
að verða næstdýrasti knattspyrnu-
maður sögunnar á eftir Neymar
sem Paris Saint Germain keypti frá
Barcelona fyrir 220 milljónir evra.
2 6 . á g ú s t 2 0 1 7 l A U g A R D A g U R18 s p o R t ∙ F R É t t A b l A ð i ð
sport
2
6
-0
8
-2
0
1
7
0
4
:2
2
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
D
9
3
-F
E
6
8
1
D
9
3
-F
D
2
C
1
D
9
3
-F
B
F
0
1
D
9
3
-F
A
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
1
2
0
s
_
2
5
_
8
_
2
0
1
7
C
M
Y
K